Skessuhorn - 04.12.2019, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 20198
Datt í hálku
AKRANES: Kona slasað-
ist á Akranesi um kl. 8:00
á föstudagsmorgun. Hún
datt aftur fyrir sig á svelli
á bílastæði, skall á hnakk-
ann og rotaðist. Lögregla
og sjúkralið var kallað á
vettvang. Talið er að konan
hafi misst meðvitund stutta
stund og kvartaði hún und-
an höfuðverk. Var hún flutt
með sjúkrabíl til læknis-
skoðunar á HVE á Akra-
nesi.
-kgk
Ólæstir bílar í
gangi
BORGARNES: Á
fimmtudag hafði Lögregl-
an á Vesturlandi eftirlit
með morgunumferð í og
við Borgarnes. Í dagbók
lögreglu kemur fram að
einum ökumanni hafi verið
gert að skafa betur hélaða
framrúðu og þrír hafi verið
áminntir fyrir að skilja bíla
sína eftir ólæsta og í gangi
fyrir utan Olís við Brúar-
torg. Að svo búnu var lög-
regla við hraðamælingar
við Hafnarfjall en enginn
ökumaður var kærður.
-kgk
Ýmis verkefni
VESTURLAND: Tveir
ökumenn voru stöðvaðir í
umdæmi Lögreglunnar á
Vesturlandi í vikunni sem
leið fyrir að tala í síma und-
ir stýri. Eiga þeir yfir höfði
sér 40 þús. króna sekt fyr-
ir athæfið. Lögregla var
við eftirlit á Innnesvegi
fyrir neðan Grundaskóla
27. nóvember, frá 9:20 til
10:00. Umferð var í með-
allagi og einn ökumað-
ur kærður fyrir of hrað-
an akstur, en hann ók á 50
km/klst. þar sem leyfileg-
ur hámarkshraði er 30 km/
klst. Seinna í vikunni var
einn kærður fyrir að aka á
54 km/klst. á sama kafla.
Einn ökumaður var stöðv-
aður á Vesturlandsvegi við
Melahverfi kl. 1:30 aðfara-
nótt föstudags. Reyndist
hann aka sviptur ökurétt-
indum. Á fullveldisdaginn
var einn ökumaður stöðv-
aður á Akrafjallsvegi á 110
km/klst., þar sem leyfileg-
ur hámarkshraði er 90 km/
klst. Kom síðan í ljós að
hann hafði ekki endurnýjað
ökuréttindi sín. Á hann yfir
höfði sér samanlagt 70 þús-
und króna sekt. Þá klippti
lögregla skráningarnúm-
er af nokkrum bifreiðum í
umdæminu í síðustu viku,
vegna þess að þeir höfðu
ekki verið færðir tímanlega
til aðalskoðunar.
-kgk
Bilaði í
göngunum
HVALFJ: Bíll bilaði í
Hvalfjarðargöngum laust
eftir kl. 18:00 á miðviku-
dagskvöld. Skipting bílsins
bilaði neðst í göngunum og
þurfti að kalla til dráttarbif-
reið til að koma ökumanni
til aðstoðar.
-kgk
Bæta
heilsuvernd
fyrir aldraða
LANDIÐ: Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra
hefur ákveðið að ráðstafa
200 milljónum króna af fjár-
lögum næsta árs til að koma
á fót heilsueflandi móttökum
um allt land innan heilsu-
gæslunnar. Framlagið kem-
ur til viðbótar 130 milljón-
um króna sem ráðherra hafði
áður ákveðið að verja til að
efla þjónustu heimahjúkrun-
ar. „Móttökurnar verða ætl-
aðar eldra fólki og einstak-
lingum með fjölþætt eða
langvinn heilsufarsvanda-
mál. Markmiðið að tryggja
þessum hópi þverfaglega og
heildstæða heilbrigðisþjón-
ustu og innleiða skipulagða
heilsuvernd fyrir aldraða,“
segir í tilkynningu frá ráðu-
neytinu.
-mm
Aflatölur
fyrir Vesturland
23.-29. nóvember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 38.379 kg.
Mestur afli: Ebbi AK:
26.378 kg í sex róðrum.
Arnarstapi: Engar landanir
í vikunni.
Grundarfjörður: 5 bátar.
Heildarlöndun: 247.558 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
70.449 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 13 bátar.
Heildarlöndun: 226.460 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eð-
varðs SH: 49.410 kg í sjö
róðrum.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 240.032 kg.
Mestur afli: Stakkhamar
SH: 57.380 kg í fjórum lönd-
unum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 96.022 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
85.582 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Þórsnes SH - STY:
85.582 kg. 25. nóvember.
2. Hringur SH - GRU:
70.449 kg. 27. nóvember.
3. Runólfur SH - GRU:
64.352 kg. 25. nóvember.
4. Farsæll SH - GRU:
57.662 kg. 26. nóvember.
5. Sigurborg SH - GRU:
52.832 kg. 27. nóvember.
-kgk
Sérstök umræða um jöfnun dreifi-
kostnaðar á raforku fór fram á Al-
þingi í síðustu viku. Málshefjandi
var Halla Signý Kristjánsdóttir,
þingkona Framsóknarflokksins, en
til andsvara var Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ferðamála-, nýsköpun-
ar- og iðnaðarráðherra. Halla Signý
benti á að landsmenn sitja ekki við
sama borð þegar kemur að flutningi
raforku til síns heima og að núver-
andi jöfnunargjald sé langt frá því
að jafna verðmuninn á milli dreif-
býlis og þéttbýlis. Hún minntist á
nýlega skýrslu starfshóps á vegum
ráðuneytisins um raforkuflutning
í dreifbýli, þar sem fram koma til-
lögur um hvernig hægt sé að ráða
bót á þessu. Benti hún á að jöfnun
dreifikostnaðar á raforku væri rétt-
lætismál. Matvælaframleiðsla færi
t.d. að mestu leyti fram í dreifbýli
en núverandi kerfi væri þar drag-
býtur. „Þegar við tölum bara um
samkeppnishæfni atvinnurekenda
í landinu hljótum við að þurfa að
tala um þá alla í einu mengi,“ sagði
hún
Í andsvörum sínum benti Þórdís
Kolbrún á að nokkrar leiðir væru
færar til að jafna verðmuninn milli
landsbyggðarinnar og höfuðborg-
arsvæðisins. Það væri t.d. hægt að
afnema skilin milli dreibýlisgjald-
skrár og þéttbýlisgjaldskrár og sam-
eina þær, hækka jöfnunargjaldið,
eða nýta fjármuni og arðgreiðslur
frá Rarik og Orkubúi Vestfjarða
tímabundið til að fjármagna það
sem upp á vantar. Starfshópurinn
á vegum ráðherra hefur skilað til-
lögum að úrbótum. Það kemur
fram yfirlýstur vilji stjórnvalda til
að bæta flutnings- og dreifikerfi
raforku þannig að það mæti betur
þörfum atvinnulífs og almennings á
öllu landinu.
mm
Nefnd um stofnun þjóðgarðs á
miðhálendi Íslands skilaði Guð-
mundi Inga Guðbrandssyni, um-
hverfis- og auðlindaráðherra í gær
skýrslu sinni um þjóðgarð á miðhá-
lendinu. Í nefndinni sátu fulltrú-
ar allra þingflokka á Alþingi, Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, um-
hverfis- og auðlindaráðuneytis og
forsætisráðuneytis. Í skýrslunni
er lagt til að Hálendisþjóðgarður
verði á landsvæði sem er í sameign
þjóðarinnar, það er þjóðlendum og
friðlýstum svæðum sem eru innan
miðhálendisins. Gert er ráð fyrir
að umhverfis- og auðlindaráðherra
leggi fram frumvarp um stofnun
Hálendisþjóðgarð á Alþingi næsta
vor sem byggi á áherslum nefndar-
innar.
Nefndin leggur til að víðtækt
samráð verði haft um stjórnun þjóð-
garðsins þar sem sveitarfélög og
helstu hagaðilar hafi beina aðkomu.
Stjórnunin verði dreifð og aðkoma
sveitarfélaga og hagaðila aukin frá
því sem þekkst hefur í stjórnsýslu
friðlýstra svæða til þessa. Þá legg-
ur nefndin meðal annars til að Há-
lendisþjóðgarði verði skipt í nokk-
ur rekstrarsvæði þar sem starfrækt
verði svæðisbundin ráð sem fari
með svæðisbundna stefnumörkun,
umsjón og rekstur. Einnig leggur
nefndin áherslu á að Hálendisþjóð-
garður efli og styðji við sjálfbæra
nýtingu hálendisins um leið og
hann grundvallist á sáttmála um að
standa vörð um þær merku minjar í
náttúrufari og menningu sem ein-
kenna hálendi Íslands.
„Hálendisþjóðgarður verður ein-
stakur þjóðgarður á miðhálendi Ís-
lands þar sem er að finna ein stærstu
óbyggðu víðerni Evrópu. Ég vil
þakka nefndinni þeirra frábær-
lega vel unnu störf sem færa okkur
nær því marki að stofna þjóðgarð
á miðhálendinu með öllum þeim
tækifærum sem því fylgja,“ segir
Guðmundur Ingi.
Nefndin hóf störf vorið 2018 og
grundvallast starf hennar á stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar
sem kveðið er á um að komið skuli
á fót þjóðgarði á miðhálendi Ís-
lands og það verði gert í samráði
þverpólitískrar þingmannanefndar.
Í skýrslu sinni undirstrikar nefnd-
in nauðsyn þess að við undirbún-
ing lagafrumvarps verði fjármagns-
þörf þjóðgarðsins greind ítarlega,
bæði hvað varðar stofnun hans og
rekstur. Þá telur nefndin brýnt að
stjórnkerfi Hálendisþjóðgarðs geti
unnið við þær stefnumarkandi áætl-
anir sem nauðsynlegar eru áður en
rekstur þjóðgarðsins hefst.
Við störf nefndarinnar var lögð
áhersla á náið samráð við sveitar-
félög og helstu hagsmunaaðila. Í
ágúst 2018 hélt nefndin tíu fundi
hringinn í kringum landið þar sem
meðal annars var fundað með öll-
um þeim 24 sveitarfélögum sem
hafa skipulagsábyrgð á miðhá-
lendinu, eiga þar upprekstrarrétt-
indi eða aðkomu að Vatnajökul-
sþjóðgarði sem verður hluti af hin-
um nýja þjóðgarði. Auk þess voru í
janúar 2019 haldnir fundir um land
allt með sömu sveitarfélögum sem
og hagaðilum sem þau sjálf kölluðu
til. Þá voru opnir kynningarfundir
haldnir í Reykjavík, auk þess sem
nefndin kynnti vinnu sína jafnóð-
um í samráðsgátt stjórnvalda. Alls
bárust 122 umsagnir sem komu að
miklu gagni við vinnu nefndarinn-
ar. Hægt var að fylgjast með störf-
um nefndarinnar á sérstökum vef á
Stjórnarráðsvefnum þar sem fund-
argerðir, fundarglærur, umsagnir
og annað er aðgengilegt öllum. All-
ir fulltrúar nefndarinnar skrifuðu
undir skýrsluna að frátöldum full-
trúa Miðflokksins.
Umhverfis- og auðlindaráðherra
hefur kynnt í samráðsgátt stjórn-
valda áform um að leggja fram
frumvarp til laga um þjóðgarð á
miðhálendi Íslands og verða drög
að frumvarpi um Hálendisþjóð-
garð kynnt í samráðsgátt þegar þau
liggja fyrir. Sem fyrr segir er áform-
að að umhverfis- og auðlindaráð-
herra leggi frumvarpið fram á Al-
þingi vorið 2020.
mm
Tillaga nefndarinnar um mörk þjóðgarðs á miðhálendi Íslands.
Skýrsla um Hálendisþjóðgarð
afhent ráðherra
Ráðherra afhent skýrslan.
Jöfnun dreifikostnaðar
raforku er réttlætismál