Skessuhorn - 04.12.2019, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2019 13
Jólaútvarp NFGB fm 101,3
Nemendafélags Grunnskóla Borgarness sent út frá Óðali 9.– 13. frá 10:00 23:00. og undanfarin ár og
dagskrá útvarpað áður þáttum en síðan flytja sína þætti beinni útsendingu.
Handritagerð fór fram þar sem hefur tekið sem sérstakt
fréttastofunnar eins og undanfarin ár „Bæjarmálin í beinni” 13. des. kl. er á góðum gestum hljóðstofu þar sem
verða rædd. verða úr íþró�a- og sem og frá sveitarfélaginu.
Mánudagur 9. desember
10:00 Ávarp útvarpsstjóra
10:10 Bekkjarþá�ur 4. bekkur
11:00 Bekkjarþá�ur 6. bekkur
12:00 Fré�r og veður í umsjón fré�astofu
13:00 Bekkjarþá�ur 5. bekkur
14:00 Félagsstarfið 2019-2020 Stjórn Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi
15:00 Kardashian �ölskyldan Örn, Stefán og Þórður
16:00 Sky�urnar þrjár Ólafur, Birgir og Jón Ingi
17:00 Grunnskóli Borgar�arðar Nemendafélag Grunnskóla Borgar�arðar
18:00 Bland í poka Arnór Breki, Sara Sól og Nína
19:00 Tæknitröllin spila jólatónlist Tæknimenn
20:00 Körfuboltajól Arndís, Viktoría og Katla
21:00 Svefn og heilsa Diamond og Jónas
22:00 Jólarugl Elín, Eydís og Thelma
23:00 Dagskrárlok
Þriðjudagur 10. desember
10:00 Bekkjarþá�ur 1. bekkur
10:30 Bekkjarþá�ur 2. bekkur
11:00 Jólahefðir Eydís og Elinóra
12:00 Fré�r og veður í umsjón fré�astofu
13:00 Bekkjarþá�ur 7. bekkur
14:00 Jólaspurningar Díana, Dagbjört og Alexandra
15:00 Hraðaspurningar Valborg, Aðalheiður og Alda
16:00 Jólin í Kína Kacper, Arnar og Friðgeir
17:00 Breska konungs�ölskyldan Andrea og Signý María
18:00 Bestu jólamyndir allra �ma Edda og Elfa
19:00 Lé� jólatónlist Tæknimen
20:00 Ljóðaþá�ur Axel og Elinóra
21:00 Gamlir tæknimenn Marinó, Sigfús og Axel
22:00 Tónlist og spjall Tæknimenn
23:00 Dagskrárlok
Miðvikudagur 11. desember
10:00 Bekkjarþá�ur 3. bekkur
11:00 6. bekkur endurflu�ur þá�ur
12:00 Fré�r og veður í umsjón fré�astofu
13:00 Törutrix Aníta, Unnur og Oddný
14:00 Fóbíur Elín og Thelma
15:00 Spjallbíllinn Sveinn, Magnús Baldur og Haukur
16:00 Jól, jól Julia Caril og Kolfinna
17:00 Ungmennaráð Ungmennaráð Borgarbyggðar
18:00 Húsráð Óðals Nemendur í Húsráði Óðals
19:00 Jólin koma Tæknimenn
20:00 Święta Bożego Narodzenia. (á pólsku) Agata og Julia
21:00 Menntaskóli Borgar�arðar Nemendafélag MB
23:00 Dagskrárlok
Fimmtudagur 12. desember
10:00 1. og 2. bekkur endurflu�ur þá�ur
11:00 Saga Dwayne Johnson Ísak og Hagalín
12:00 Fré�r og veður í umsjón fré�astofu
13:00 Laugargerðisskóli Nemendur úr 9. - 10. bekk Laugargerðisskóla
14:00 5. bekkur endurflu�ur þá�ur
15:00 Fánýtur fróðleikur um dýr Vildís og Ólöf
16:00 You will never walk alone Almar, Dagur og Halldór Grétar
17:00 Íslenskar þjóðsögur Jóhannes og Jónas
18:00 Vöðvinginn Halldór, Aron og Aníta
19:00 Spjallglaðir tæknimenn Tæknimenn
20:00 Happines Kristján, Helgi, Díana og Gróa
21:00 Ljúfir tónar með Candyboy‘s Villi, Andri og Alexander
22:00 Spjall og sprell Elinóra og Jónas
23:00 Dagskrárlok
Föstudagur 13. desember
10:00 3. og 4. bekkur endurflu�ur þá�ur
11:00 Spjallþá�ur Tinnu, Ólafar og Guðrúnar Tinna , Ólöf og Guðrún Eygló
12:00 Fré�r og veður í umsjón fré�astofu
13:00 Bæjarmálin í beinni Stjórn NFGB
14:00 7. bekkur, endurflu�ur þá�ur
15:00 Adele og Lady Gaga Embla, Marija og Reynir
16:00 Í stuði á föstudegi Halldór og Villi
17:00 Tæknimenn spjalla Tæknimenn
19:00 Lokahóf starfsfólks útvarpsins
21.00 Kveðja útvarpsstjóra og dagskrárlok.
Auðvitað minnum við alla á okkar frábæru heimasmíðuðu auglýsingar sem enginn má missa af.
Einnig viljum við þakka öllum fyrirtækjum sem styrktu okkur með kaupum á
auglýsingu, án þeirra væri þetta ekki hægt.
Gleðileg jól
Heilbrigðisráðherra hefur ákveð-
ið að veita Höfða dvalar- og hjúkr-
unarheimili á Akranesi varanlega
rekstrarheimild fyrir fjórum hjúkr-
unarrýmum sem þar hafa verið rek-
in tímabundið sem biðrými fyr-
ir Landspítalann. Þessi fjögur bið-
rými á Höfða voru opnuð árið 2017
og ætluð fólki með gilt færnimat
sem tilbúið var til útskrifar af Land-
spítala en beið eftir varanlegri bú-
setu á hjúkrunarheimili. Stjórnend-
ur Höfða og bæjarstjórn Akranes-
kaupstaðar fóru þess á leit við ráðu-
neytið að heimila að rýmin fjög-
ur verði hluti af almennum rekstri
Höfða, enda aðstaða og mönnun
fyrir hendi. Almennum hjúkrunar-
rýmum á Höfða fjölgar þar með úr
65 í 69 þegar samningur um rekst-
ur biðrýmanna rennur út í mars á
næsta ári.
mm
„Fyrirhugað er að ríkið láni ákveðn-
um kaupendahópum fé fyrir hluta
af útborguninni,“ segir Ásmundur
Einar Daðason, félags- og barna-
málaráðherra, sem boðar frum-
varp um svonefnd hlutdeildarlán að
breskri fyrirmynd. Hann segir að
frumvarp um hlutdeilarlán, þar sem
ríkið getur lánað tekju- og eigna-
litlum fyrir meirihluta útborgunar í
húsnæði, verði lagt fram á Alþingi
í vetur. Ásmundur Einar fór yfir
stöðu mála á Húsnæðisþingi félags-
málaráðuneytisins og Íbúðalána-
sjóðs sem haldið var á mánudag-
inn, og kynnti könnun Íbúðalána-
sjóðs sem sýnir að meirihluti leigj-
enda vill kaupa sína eigin fasteign.
Vísaði hann þá til fyrstu kaupa.
Þessu fólki mættu hins vegar tölu-
verðar hindranir, einkum varðandi
útborgun við kaup. Hann sagði að
könnuð hefðu verið bæði svonefnd
startlán að norskri fyrirmynd og
hlutdeildarlán.
„Slík hlutdeildarlán eða eigin-
fjárlán eiga að brúa bilið fyrir þá
sem eiga þess ekki kost að safna sér
fyrir útborgun í íbúð. Ríkið lánar
ákveðnum kaupendahópum fé fyr-
ir hluta af útborguninni og fær það
svo endurgreitt við sölu eignarinn-
ar eða þegar kaupandinn endur-
fjármagnar lánið,“ sagði Ásmund-
ur Einar og bætti því við að fram-
kvæmdin hjá Bretum hefði verið
skoðuð ítarlega. Ætla má að þessi
lán gætu numið 20-40 prósentum
af kaupverði íbúðar.
„Ef við tökum raunhæft dæmi
um íbúð sem kostar til dæmis 30
milljónir króna þá þarf kaupandi
að leggja sjálfur fram um eina og
hálfa milljón króna í eigið fé. Rík-
ið myndi lána sex milljónir og eftir-
stöðvarnar yrðu fjármagnaðar með
óverðtryggðu húsnæðisláni, frá fjár-
málastofnun. Þegar eignin verður
seld fær ríkið lánið endurgreitt og
svarar endurgreiðslan þá til sama
hlutfalls af verðmæti eignarinn-
ar og upphaflega lánið. Hafi eign-
in hækkað í verði hækkar greiðsla
til ríkisins en hafi eignin lækkað
verður greiðsla til ríkisins að sama
skapi lægri,“ sagði Ásmundur Ein-
ar. Hann bætti því við að úrræði
um skattaafslátt og tilgreinda sér-
eign gætu jafnframt nýst til þess að
lækka óverðtryggt húsnæðislán og
auka þar með eignamyndun.
Fram kemur í skýrslu Íbúðal-
ánasjóðs, Staða og þróun hús-
næðismála, sem kom út sama dag
í tengslum við Húsnæðisþingið,
að reikna megi með því að árleg-
ur fjöldi hlutdeildarlána gæti num-
ið allt frá 350 og upp í eitt þúsund
árlega. Þetta fari eftir því hversu
mikla áherslu byggingaraðilar
koma til með að leggja á íbúðir sem
uppfylla skilyrði um þessi lán.
mm
Ríkið láni tekjulágum fyrir útborgun í húsnæði
Fjölgað um
fjögur varanleg
hjúkrunarrými