Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2019, Side 16

Skessuhorn - 04.12.2019, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 201916 Skagakonan Bjarney Hinriksdóttir hélt til Krítar í lok júní síðastliðins þar sem hún ætlaði að verja sumr- inu. Dvölin varð þó lengri þegar Bjarney fékk upp í hendurnar fimm litla móðurlausa hvolpa sem hún þurfti að hugsa um. Par á ferða- lagi fann hvolpana við hraðbraut og tók þá upp á hótel. Þegar parið þurfti svo að halda heim á leið tók Bjarney að sér að hugsa um hvolp- ana og leitar hún nú til almennings um aðstoð við að fjármagna flutn- ing hvolpanna heim til Íslands. Tók sér listamannaleyfi og hélt út Aðspurð segist Bjarney vera mik- ill dýravinur, kaffiunnandi og æv- intýrakona. Hún þrífst á sköp- un og hefur mikinn áhuga á and- legum þroska, heilsu og vellíðan. Hún starfar sem grafískur hönnuð- ur og vefhönnuður og er jóga- og núvitundarkennari og rekur Jóg- astúdíó í miðbæ Reykjavíkur. Hún fór til Krítar með það markmið að einbeita sér að hönnun og bæta við þekkinguna á því sviði. „Það getur verið hollt að skipta um umhverfi til að fá innblástur og ég ákvað að taka mér smá frí frá jógakennslunni og verja sumrinu á Krít. Ég bjó mér því til mitt eigið listamanna- leyfi og hélt út. Plönin mín breytt- ust auðvitað þegar ég fékk hvolpana til mín og þurfti að afla mér allra upplýsinga um hvernig átti að ala upp hunda,“ segir Bjarney í sam- tali við Skessuhorn. Fljótlega fór allur hennar tími í að hugsa um hvolpana. „Ég hef sannarlega bætt við mig þekkingu, en bara á öðrum sviðum en ég bjóst við,“ segir hún brosandi. Farnir að taka sitt pláss Eins og fyrr segir tók Bjarney við hvolpunum af pari sem fann þá á ferðalagi um Krít. „Þegar símtal- ið kom hugsaði ég mig ekki tvisv- ar um, enda var ég með auka her- bergi og stórar svalir. Hversu erfitt gæti það verið að sjá um fimm litla hvolpa? Það er auðvitað fátt sæt- ara en hvolpar og auðvitað föng- uðu þeir hjarta mitt strax á fyrsta degi,“ segir Bjarney. Hvolparn- ir eru fjórar tíkur og einn rakki og voru þau rétt um sex vikna þegar Bjarney fékk þau. Parið sem fann þau hafði þá gefið þeim nöfnin Kala, Kissi, Funi, Chania og Balos eftir fallegum stöðum á Krít sem þau höfðu heimsótt. Hvolparnir eru núna orðnir sex og hálfs mán- aða. „Þau taka sitt pláss, borða mik- ið og stækka ört. Þau eru Labra- dor blendingar og því ansi stórir og stæltir hundar,“ segir Bjarney. Ætlar sjálf að halda Kissi Þegar hvolparnir fundust voru þeir svo ungir að þeir hefðu þurft að vera lengur hjá móður sinni. Bjarn- ey gekk þeim því í móðurstað. „Ég þurfti að ormahreinsa þá, kaupa gott heilsusamlegt fóður og vítam- ín og gefa þeim öryggi og hlýju,“ segir Bjarney. Hún segir það hafa gengið vel að ala hvolpana upp. „Ég lá yfir hundamyndböndum á You- tube og las greinar til að læra hratt hvernig best væri að ala upp hunda. Ég vissi ekki mikið þar sem ég hafði afar litla reynslu af hundum,“ segir hún. Aðspurð segist hún ekki ætla að eiga alla hundana sjálf þegar þau koma til Íslands. „Hún Kissi verður hjá mér. Hún er sú minnsta í hópn- um en sú ákveðnasta og forvitnasta. Hún valdi mig sjálf og ég ákvað snemma að ég myndi halda henni. Allir hinir eru komnir með góð heimili á Íslandi,“ segir Bjarney. En af hverju að flytja þau öll til Íslands fremur en að finna heimili fyrir þau á Krít? „Það hvarlaði aldrei að mér að skilja þá eftir hér á Krít, aðallega vegna þess sem ég hef orðið vitni að hér hvað varðar meðferð á dýr- um. Dýravelferð hér er komin afar stutt,“ segir hún. „Það er erfitt að finna fólk sem vill taka að sér dýr og víða sjást hundar bundnir í stuttri keðju allan liðlangan daginn í sjóð- andi hita. Það liggja fyrir vísinda- legar sannanir fyrir því að dýr eru viðkvæmar verur og upplifa tilfinn- ingar. Þau hafa getu til að njóta lífs- ins sem og þjást tilfinninganlega. Virðing fyrir dýrum í heiminum er nú mikilvægari en nokkru sinni fyrr og leiðir til meiri samkennd- ar í samfélaginu. Við gleymum oft að allt líf á jörðinni er samtvinnað; dýr, menn og náttúra.“ Hóf söfnun á Karolina Fund Að flytja hunda til Íslands er flókið og erfitt ferli sem kostar auk þess sitt. „Eins og margir vita er ferlið við að ferðast með dýr til Íslands mjög kostnaðarsamt og flókið. Þeir þurfa að vera orðnir sjö mánaða áður en þeir ferðast, og það er aðal ástæðan fyrir því að við erum ennþá hér á Krít,“ segir Bjarney. Þeg- ar hundarnir svo koma til Íslands tekur við fjögurra vikna einangr- un sem kostar um 250 þúsund fyr- ir hvern hund. „Samtals er kostnað- urinn við að flytja einn hund til Ís- lands um hálf milljón króna,“ segir Bjarney. Hún hefur því leitað eftir aðstoð með söfnun í gegnum Kar- olina Fund til að koma hundunum til Íslands. Auk þess sem hún hef- ur gefið út myndskreytta bók með sögum af hundunum sem hún ætl- ar að selja. „Á Karolina Fund get- ur fólk lagt til fjárhæð að eigin vali og fengið í staðinn mörg frá- bær verðlaun. Þar er meðal ann- ars í boði myndskreytta bókin, kort í jóga, grafísk hönnun og vef- síðugerð og svo eru frábærir lista- menn að gefa vinnuna sína,“ seg- ir Bjarney. Söfnunin hefur geng- ið vel og segist Bjarney hafa fundið mikinn stuðning, bæði fjárhagsleg- an og í formi fallegra og hvetjandi skilaboða. „Þetta er há upphæð sem við þurftum að safna og við eigum ennþá nokkuð í land, en ég hef fulla trú á að þetta takist. Karolina Fund er allt eða ekkert vettvangur og því gerum við allt til að láta þetta tak- ast,“ segir hún og bætir því við að hún sé mjög þakklát öllum þeim sem hafa stutt hana með fjárfram- lögum og með því að deila söfnun- inni á samfélagmiðlum. „Öll hjálp er innilega vel þegin þar sem margt smátt gerir eitt stórt,“ segir hún. Bók um hundana Myndskreyttu bókina sem Bjarney er að selja sem hluta af söfnuninni hefur hún unnið ásamt manninum sínum José, en þau vinna bæði við skapandi greinar. Ætlunin er að gefa bókina út í apríl á næsta ári og mun helmingur ágóðans renna til Dýrahjálpar. „Þegar við byrjuð- um að kynnast persónuleika hvers hvolps fyrir sig sáum við snemma að hver hundur kom með sinn ein- staka karakter. Við sjáum þessi ein- kenni sem ofurkrafta hvers og eins og það veitti okkur innblástur við að skrifa um ævintýri þeirra og skapa myndskreyttar sögur, sem ætlaðar eru fólki á öllum aldri. Bókin, með hundunum fimm sem söguhetjum, mun verða bók um stóru spurning- ar lífsins, hindranir og hvernig við yfirstíum þær; vinsemd, vinskap, visku og kærleik. Við notum okkar eigin persónulegu reynslu og gildi, þekkingu á núvitund, heimspeki og kunnáttu okkar sem hönnuðir og myndskreytar til að myndskreyta bókna og setja hana upp til prent- unar,“ segir Bjarney. Þeir sem vilja leggja Bjarneyju og hundunum lið geta fundið „Hin Frábæru Fimm“ á Karolina Fund á slóðinni: https://www.karolina- fund.com/project/view/2639. Þá er hægt að fylgjast með þeim á Fa- cebook undir heitinu The Fabulo- us Five. arg/ Ljósm. úr einkasafni Sjálf ætlar Bjarney að eiga Kissi þegar þau kom til Íslands en hinir hvolparnir hafa fengið góð heimili hér á landi. Kom fimm hvolpum til bjargar og ætlar að flytja þá heim til Íslands Bjarney Hinriksdóttir kom fimm hvolpum á Krít til bjargar og ætlar nú að flytja þá til Íslands. Hvolparnir fimm eru Labrador blendingar og verða því nokkuð stórir. Bjarney hefur hugsað um hvolpana ásamt manninum sínum José. Hvolparnir fimm er farnir að taka sitt pláss í sófanum.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.