Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 33

Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 33
LÆKNAblaðið 2019/105 393 Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Reynir Arngrímsson formaður Björn Gunnarsson gjaldkeri FAL Guðrún Ása Björnsdóttir Ýmir Óskarsson FÍH Salóme Ásta Arnardóttir Jörundur Kristinsson varaformaður FSL María I. Gunnbjörnsdóttir Gunnar Mýrdal ritari LR Þórarinn Guðnason Guðmundur Örn Guðmundsson Stjórn Læknafélags Íslands Framundan er aðalfundur Læknafélags Íslands. Viðfangsefni málþings fundarins mun að þessu sinni verða símenntun lækna. Auk þess koma til hefðbundinnar umfjöllunar á aðalfundinum álykt- anir félagsmanna um heilbrigðismál, stöðu lækna- stéttarinnar og innra starf félagsins. Fundurinn er að þessu sinni haldinn í skugga lausra samninga nánast allra lækna landsins, hvort sem þeir starfa hjá opinberum stofnunum eða sjálfstætt og mun það án efa setja svip sinn á fundinn. Gæði og þjónusta sem veitt er og hægt er að veita í heilbrigðiskerfinu byggist að miklum hluta á þekkingu og færni lækna sem þar starfa á hverjum tíma. Skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða verk- efni í heilsugæslu, við göngu- og dagdeildaþjónustu og hjá sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum eða meðferð sem krefst innlagnar á sjúkrahús. Það er á ábyrgð heilbrigðisyfirvalda og stjórnenda heilbrigð- isstofnana í umboði heilbrigðisráðherra að tryggja aðgengi að læknisþjónustunni og skilvirkni hennar með umgjörð og aðstöðu sem hæfir starfseminni. Skilgreining og innleiðing frekari gæðavísa en nú tíðkast og skráningu á frammistöðu kerfisins skipt- ir máli og þarf að efla. En lykilatriði er jafnframt og ekki síður að læknar verða að geta haldið við þekk- ingu sinni, fylgst með tækniframförum og tileinkað sér nýjungar jafnóðum. Það má halda því fram að gæði kerfisins byggist á stöðugri endurnýjun og viðhaldi þekkingar. Víða erlendis eru fagfélög lækna og heilbrigð- isyfirvöld farin að gera strangari kröfur um sí- menntun lækna og í sumum tilfellum er það orðið skilyrði fyrir viðhaldi á starfsréttindum, til dæmis í sérgreinum læknisfræðinnar. Þessi þróun sækir fram og mikilvægt að LÍ taki afstöðu í þessum málum og gangi fram fyrir skjöldu í skilgreiningu á þessu verkefni. Þetta verður umfjöllunarefni á málþingi aðalfundarins. Í skoðanakönnun LÍ á síðasta ári kom fram að margir læknar (66%) hafa ekki tækifæri til til þess að sinna viðhaldsmenntun í vinnutíma og er það áhyggjuefni. Niðurstöðurnar sýndu að 20% lækna nýta námsleyfi sitt samkvæmt kjarasamningi að fullu og innan við helmingur gerir það að hluta. Aðeins 28% segjast geta náð 1-2 klukkustundum í viðhaldsmenntun á viku og aðeins 5% hafa lengri tíma aflögu. Tæplega 20% svöruðu að þeir ættu ekki rétt á greiddu námsleyfi. Mikilvægt er að hafa í huga að viðhaldsmenntun hefst um leið og embættisprófum er lokið og læknisstarfið hefst. Menntun læknis lýkur aldrei heldur er ævilöng skuldbinding um stöðuga starfsþjálfun og starfs- þróun. Mikilvægt er að átta sig á hvers vegna svo lítill hundraðshluti lækna fullnýtir kjarasamnings- bundin réttindi til viðhaldsmenntunar. Er það um- gjörðin á vinnustaðnum, álag og mannekla sem er hindrandi, viðhorf yfirmanna eða hafa ákvæði um réttindin dregist aftur úr, til dæmis raunkostnaður sem fylgir því að sækja endurmenntunarnámskeið erlendis? Það er áhyggjuefni fyrir heilbrigðiskerf- ið og hlýtur að kalla á að þeir sem bera ábyrgð á gæðum þjónustunnar og móta heilbrigðisstefnuna skoði hvaða úrbóta er þörf til að tryggja að lækn- ar ástundi og geti nýtt sér möguleika til viðhalds þekkingar og starfsþróunar. LÍ setti á laggirnar vinnuhóp um starfsþróun og símenntun í febrúar síðastliðnum og er mál- þingið undirbúið í samstarfi við vinnuhópinn. Í hópnum sitja læknar úr stærstu sérgreinum lækna hérlendis. Finna má upplýsingar um hann á innri heimasíðu LÍ. Vinnuhópnum er ætlað að gera tillög- ur til stjórnar LÍ um hvernig bæta megi úr og efla símenntun lækna. Í áðurnefndri skoðanakönnun kom fram að fleiri en færri (68%) telja að LÍ eigi að setja lágmarksviðmið varðandi viðhaldsmenntun sérfræðilækna og halda eigi utan um skráninguna. Í núverandi kjaraviðræðum er mikilvægt að halda þessum sjónarmiðum á lofti og leita leiða til að bæta aðgengi lækna að núverandi námsleyfis- réttindum, til dæmis með endurskoðun á ferða- og námskeiðskostnaði. Huga þarf að innleiðingu á innbyggðu hvatakerfi tengdu starfsþróun í kjara- samningum. Jafnframt að taka innan félagsins og á vettvangi kjaraviðræðna til umræðu starfsþró- unarákvæði og réttindi sem finna má í öðrum kjarasamningum hins opinbera, svo sem sérstakt tillegg launatengdra gjalda í fræðslusjóði félag- anna og til starfsmenntaseturs sem í dæmi LÍ væri Fræðslustofnun. Fræðslustarfsemi LÍ og aðildarfé- laga er töluverð. LÍ gefur út Læknablaðið og á vegum félagsins heldur Fræðslustofnun árlega Læknadaga. Á þessum grunni er mikilvægt að byggja og efla faghluta Læknafélagsins, en til þess þarf fjármagn. Meðal hlutverka Fræðslustofnunar í framtíðinni gæti verið að halda utan um skráningu símenntun- ar lækna og standa fyrir frekara fræðslustarfi á eig- in vegum og í samstarfi við innlenda og erlenda að- ila, til dæmis á sviðum sem félögin telja mikilvægt að efla með skipulagningu námskeiða, svo sem í stjórnunarþáttum, en einnig við sértækari fagleg markmið í samvinnu við aðildar- og sérgreinafélög lækna hér heima. Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Símenntun lækna er ævilöng skuldbinding Reynir Arngrímsson formaður Læknafélags Íslands reynir@lis.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.