Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - sep. 2019, Side 34

Læknablaðið - sep. 2019, Side 34
394 LÆKNAblaðið 2019/105 Skipunartími 5 framkvæmdastjóra var á enda og aðrir fjórir fengu uppsagnar- bréf. „Framkvæmdastjórar lækninga og hjúkrunar, fjármála og mannauðs verða hins vegar áfram. Þrjár nýjar stöður fram- kvæmdastjóra verða síðan í stað þeirra níu sem hættu, þannig að alls verða 7 í nýrri framkvæmdastjórn, auk mín,“ segir Páll Matthíasson forstjóri. „Þrjú klínísk svið verða til og undir hverju sviði fjórir til fimm kjarnar.“ En hverjir eiga séns á þess- um þremur störfum? „Skoðun mín hefur alltaf verið sú að þegar stöðurnar séu lausar sé hægt að sækja um þær. Umsóknir skila fólki viðtali og viðtalið starfi. Ég á því von á því að fólk með mikla reynslu úr stjórnun í heil- brigðisþjónustu hér innanhúss og vonandi fólk annars staðar frá sæki um. Þetta eru viðamiklar stöður sem krefjast mikillar reynslu og þekkingar úr íslensku heil- brigðiskerfi,“ segir Páll sem er nýfluttur með yfirstjórn spítalans að Skaftahlíð 24 frá Eiríksgötu 5 sem breytt verður í göngudeildarhús. Engin einkaskrifstofa á nýjum stað Fimmtíu fermetra skrifstofan varð eftir að Eiríksstöðum og hann skrifstofulaus í nýju vinnuumhverfinu og saknar þess ekki. „Ég var heilu og hálfu dagana utan skrif- stofunnar,“ segir hann, sáttur við hreyfan- leikann og skrifstofuleysið. „Það er ekki góð nýting á almannafé að setja slíkan fermetrafjölda í skrifstofu sem stendur auð helminginn af tímanum eða meira. Nútímatækni gerir okkur kleift að vera miklu sveigjanlegri og fólk fær þá að- stöðu sem það þarf í þau verkefni sem það er að sinna hverju sinni, ekki ólíkt því sem gildir í klíníkinni. Þetta er verkefnamiðuð vinnuaðstaða.“ Páll segir að nú hafi verið rétti tíminn til breytinga en fyrra skipurit hafi verið orðið 10 ára gamalt, sett í tíð Huldu Gunn- laugsdóttur forvera hans í starfi árið 2009. „Þá voru hugmyndir um að hafa fram- kvæmdastjórnina mjög klíníska, hafa einn aðila með klínískan bakgrunn yfir hverju sviði, að sviðin væru í ákveðinni innbyrðis samkeppni um starfsfólk, ár- angur og annað slíkt. Skrifstofa var um hvert svið og framkvæmdastjóri,“ segir hann, og að margir þættir þessa skipurits hafi verið gagnlegir við hremmingarnar eftir bankahrunið og samdráttinn á heil- brigðiskerfinu um meira en 20% í kjölfarið. Nýja skipuritið henti hins vegar breyttu samfélagi. Nýtt skipurit fyrir breytt samfélag „Það er alveg ljóst að spítalinn hefur stækkað, verkefnin eru önnur og sam- félagið annað,“ segir hann. „Ég vil fá skipulag sem endurspeglar þá þjónustu sem við erum að veita og hjálpar okkur í því verkefni að veita framúrskarandi þjón- ustu og skapa góðan vinnustað.“ Páll segir spítalann nú í fyrri bylgju breytinga. „Ég geri ráð fyrir því að auglýsa nýjar stöður framkvæmdastjóra í lok vik- unnar eða byrjun næstu,“ segir hann þar sem við sitjum í nýinnréttuðu og látlausu fundarherbergi á fjórðu hæð Skaftahlíðar mánudaginn 26. ágúst. Páll skerpir á skipuritinu fyrir breytt samfélag og nýjan spítala Tími var kominn á breytt skipulag, segir Páll Matthíasson, forstjóri, sem ætlar að taka upp nýtt skipurit fyrir spítalann og bæta við stjórnendalögum. Markmiðið er að ná spítalanum upp úr sílóum fortíðarinnar inn á þá braut að fylgja sjúklingnum betur eftir á vegferð hans til betri heilsu. Breytingar með víðtæku samráði „Við fáum betra skipurit með því að draga fleiri að borðinu,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, sem hefur leitað víðtæks samráðs um breytt skipurit sem nú stefnir í. Breytingar án samráðs hefðu komið verr við fólk. „Það er styrkur í að fá fleiri sjónarmið að. Ég hef setið á annað hundrað fundi með allt frá einum aðila upp í 200 manns. Frá hverjum einasta fundi hef ég komið með hugmynd sem hægt hefur verið að nýta áfram beint eða óbeint,“ segir Páll. „Ég hef kynnt breytingarnar fyrir fjölmörgum innan spítalans, fyrir stjórnendum spítalans, fyrir læknaráði, hjúkrunarráði, ráðgjafanefnd Landspítala, landlækni og ráðherra og hef verið að taka allt saman og er í lokavinnu skipuritsins,“ segir hann. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.