Læknablaðið - sep. 2019, Síða 38
398 LÆKNAblaðið 2019/105
„Það er ótrúlegur bónus að keppa fyrir
Íslands hönd,“ segir Þórdís Jóna Hrafn-
kelsdóttir, landsliðsmaður í utanvega-
hlaupum og hjartalæknir. Þær Þórdís og
Elín Edda Sigurðardóttir læknir í sérnámi
í gjörgæslu- og svæfingalækningum, hafa
skapað sér nafn í hlaupaheiminum. Elín
Edda á næstbesta tíma sem íslensk kona
hefur náð í bæði heilu og hálfu maraþoni
en þeim síðari náði hún í frumraun sinni.
Tími Elínar Eddu var sá besti sem náðst
hefur í tvo áratugi en þjálfari hennar,
Martha Ernstsdóttir, á þann besta.
Báðar sitja þær nú á ílangri skrifstofu
Þórdísar Jónu á Landspítala við Hring-
braut í læknasloppunum og klossunum.
Elín Edda tók skutluna, rútuferðina á milli
Hringbrautarspítala og Borgarspítala. „Það
er svo gaman því félagsskapurinn er alltaf
svo góður,“ segir hún þar sem við kom-
um okkur fyrir og tengjum upptökutæki
og tölvu, svo hægt sé að hlusta á viðtalið
á vef Læknablaðsins. Við ætlum að ræða
hlaupabakteríuna sem þær þó þvertaka
fyrir að sé fíkn. Hlaupið einfaldlega haldi
hausnum rétt skrúfuðum á í amstri dags-
ins og geri þær að betri læknum.
Ekki fíkn heldur stresslosun
„Ég myndi klárlega segja að það væri
þörf,“ segir Þórdís en ekki fíkn, því væru
hlaupin fíkn þyrfti sífellt að hlaupa lengri
vegalendir og engin leið væri að stoppa.
„Hlaupin þjóna þeim tilgangi að takast á
við daglega lífið, ná þessari afslöppun sem
maður þarf til að kúpla sig frá amstrinu,“
segir Þórdís sem lengst hefur hlaupið 88
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hlaupið kryddar lífið
Elín Edda og Þórdís hittust á Landspítalanum á góðum sumardegi og ræddu hlaupin með blaðamanni Læknablaðsins. Mynd/gag
Læknarnir Elín Edda
Sigurðardóttir og Þórdís
Jóna Hrafnkelsdóttir
eru afrekshlauparar.
Elín Edda er í fremstu
röð Íslendinga í
heilum og hálfum
maraþonum og Þórdís
Jóna er í landsliðinu í
utanvegahlaupum og
æfir nú fyrir 100 kílómetra
hlaup sem fram fer á
Ítalíu í október.