Læknablaðið - sep. 2019, Síða 52
412 LÆKNAblaðið 2019/105
Kristófer Þorleifsson
formaður. Öldungadeildar LÍ
Stofnfundur Öldungadeildar Læknafélags
Íslands var haldinn 7. maí 1994. Haldin
var 25 ára afmælishátíð í framhaldi af
aðalfundi félagsins 3. maí síðastliðinn í
Hvammi á Grand Hótel. Alls mættu 45
á hátíðina og snæddu saman gómsæta
þriggja rétta máltíð.
Hátíðinni stjórnaði Kristófer Þorleifs-
son formaður Öldungadeildar LÍ.
Á hátíðinni var Sigurður Egill Þor-
valdson gerður að heiðursfélaga, en hann
var formaður félagsins frá 2009 til 2013.
Formaður afhenti Sigurði heiðursskjal og
eiginkonu hans Jónu Þorleifsdóttur blóm-
vönd.
Undir borðum flutti Reynir Tómas
Geirsson fyrrv. prófessor og forstöðulækn-
ir á kvennadeild Landspítala erindi sem
nefndist „Normannar og Engilsaxar. Um
saumaða sögu“. Í erindinu fjallaði Reynir
um meginverk í miðaldasögu Evrópu,
saumaðan 70 metra langan refil eða vegg-
saum sem gerður var í Englandi um 10-12
árum eftir innrás Normanna í England
1066. Refillinn er kenndur við borgina Ba-
yeux í Normandí þar sem hann hefur ver-
ið geymdur nær óslitið í 950 ár. Eiginkona
Reynis, Steinunn J. Sveinsdóttir (1945-2018)
þýddi danska skáldsögu um tilurð ref-
ilsins og saumaskapinn, og Reynir hefur
verið að vinna að útgáfu þýðingarinnar.
Hann fjallaði um refilinn sjálfan, – mesta
listaverk snemmmiðalda sem gert var af
konum, um saumaskapinn og saumaað-
ferðina sem gleymdist eftir 13. öld nema
á Íslandi, um sögu hans og hvernig ref-
illinn varðveittist lítt skemmdur í nær
1000 ár. Hann rakti sögu þá sem refillinn
lýsir, það er að segja herferð Normanna
til Englands, tildrög hennar og aðstæður
beggja megin Ermarsundsins, tilviljanir
sem gerðu siglingu 100 lítilla skipa með
hesta og hermenn mögulega, erfiða stöðu
Engilsaxa, sem neyddust til að berjast fyrst
við norskan her norðar í landinu og ganga
svo hraðgöngu suður að Ermarsundi til að
berjast við Normannana og bandamenn
þeirra við Hestengi. Hann sýndi fjölda
mynda, bæði af stærri og smærri atrið-
um í reflinum, – sögulegum, lýsandi og
skondnum, myndir af reflinum sjálfum á
safninu í Bayeux og af stöðum sem tengj-
ast sögunni beint og óbeint. Í lokin var
orrustunni við Hestengi lýst. Loks fjallaði
Reynir um hvaða þýðingu innrás Nor-
manna hafði fyrir samfélagsskipan á Bret-
landi og framrás sögunnar, á Bretlandi, í
Evrópu og hvernig hún gæti hafa tengst
tilurð breska heimsveldisins.
Góður rómur var gerður að erindi
Reynis og honum þakkað með heiðurs-
skjali og bókagjöf sem formaður afhenti
honum. Samkomunni lauk um kl. 23 og
héldu þá gestir hver til síns heima glaðir
og reifir.
Öldungadeild
Læknafélags
Íslands 25 ára
Ö L D U N G A D E I L D
Stjórn Öldungadeildar
Kristófer Þorleifsson formaður
Jóhannes M. Gunnarsson ritari
Guðmundur Viggósson gjaldkeri
Halldóra Ólafsdóttir
Margrét Georgsdóttir
Öldungaráð
Hörður Alfreðsson
Magnús B. Einarson
Reynir Þorsteinsson
Snorri Ingimarsson
Þórarinn E. Sveinsson
Umsjón síðu
Magnús Jóhannsson
Sigurður E. Þorvaldsson heiðursfélagi og eiginkona
hans, Jóna Þorleifsdóttir, ásamt formanni.
Hluti afmælisgesta.
Reynir Tómas Geirsson prófessor emeritus.