Læknablaðið - sept 2019, Qupperneq 54
414 LÆKNAblaðið 2019/105
L I P R I R P E N N A R
Læknablaðið hefur beðið nokkra lipra penna
í læknastétt að senda blaðinu hugleiðingar sínar
í dagsins önn.
Klukkan er tuttugu mínútur yfir sjö að
staðartíma. Sól og tuttugu og ein gráða. Ég
knúsa og kyssi tvær hágrátandi litlar hnát-
ur og hraða mér á lestarstöðina. Mín bíður
tólf klukkustunda næturvakt á bráðamót-
tökunni í Malmö.
Þegar ég kem á minn stað á bráðamót-
tökunni, „övervaket“, sem samanstendur
af sex monitor plássum og þremur ein-
angrunarrýmum, sé ég strax að dagur-
inn hefur verið annasamur. Nóttin líður
hratt og það er stöðugt flæði sjúklinga.
Brjóstverkir, mæði, hjartsláttartruflanir,
alvarlegar sýkingar, brottfallseinkenni og
lyfjaeitranir eru algengustu komuástæður.
Konsult frá svæfingu, hjarta, tauga og smit
eru til taks auk reyndari kollega á bráða-
móttökunni og bráðalyflækningadeildinni.
Klukkan níu um morguninn hef ég klárað
allar nótur og kominn tími til að fara heim
að sofa.
Ég geng hægt út af spítalanum og tek
eftir því hvað ég er svöng. Höfuðverkur,
ógleði og þreyta. Hugsanirnar löngu orðn-
ar móðukenndar og óskýrar. Ég ákveð að
setjast á kaffihús og fá mér morgunmat.
Stelpan sem afgreiðir mig er glaðleg, bros-
ir og spjallar á meðan hún býr til kaffi
með hjarta í mjólkinni. Ég sest niður og
byrja að fara yfir í huganum allt sem ég
gerði um nóttina. Fer yfir greiningu og
meðferð í huganum. Fer að velta mér upp
úr tilfelli um nóttina þar sem greiningin
var óljós, byrja að efast um greininguna
mína og verð að lokum viss um að ég
hljóti að hafa gert stór mistök. Horfi á
stelpuna sem er glöð og áhyggjulaus að
afgreiða kaffi og velti fyrir mér hvort það
ætti ekki vel við mig að vinna á kaffihúsi.
Helginni eyði ég að mestu úti á leik-
velli og úti í garði í góðu verði. Kúka-
bleyjur, prakkarastrik, frekjuköst, þrif og
eldamennska. Hugurinn hvarflar annað
slagið til sjúklinganna sem ég hitti á næt-
urvöktunum í vikunni og alltaf finn ég
fyrir óþægilegri tilfinningu í maganum.
Ég hitti nokkra kvenkyns kollega á laugar-
dagskvöldi og yfir kokteilum ræðum við
vinnuna, þrifafyrirtæki, mismunandi mat-
kassa með kvöldmat sem er einfalt að laga,
barnapíur og reynslu af au-pairum.
Á mánudagsmorgni byrja ég á nýrri
deild. Í lok dagsins sest ég niður og fer
yfir sjúkraskrár allra sjúklinganna sem ég
hitti á næturvöktunum. Allt hefur gengið
vel. Næstu þrjár vikurnar ber ég ábyrgð á
sjö sjúklinga teymi á lungnadeildinni. Það
er góður andi á deildinni og góður sér-
fræðingur. Í lok vikunnar hef ég náð góð-
um tengslum við sjúklinga og aðstandend-
ur. Fundið tilganginn með starfinu aftur.
Ég var nítján ára þegar ég ákvað að
verða læknir. Ég hafði ákveðna hugmynd
um læknisstarfið. Rómantíska hugmynd
um að hjálpa fólki en ekki raunsæja mynd
af starfinu. Læknanámið og starfið hefur
breytt mér sem persónu og haft marg-
vísleg áhrif á mitt líf. Gefið mér margt
en einnig á tímabilum verið mér erfitt og
valdið miklu álagi, á stundum andlegu
álagi og á stundum andlegum og líkam-
legum einkennum vegna vinnuálags.
Nú nýlega birtust niðurstöður könnun-
ar sem Félag ungra sænskra lækna stóð
fyrir í sænska læknablaðinu. Þar kemur
fram að næstum einn af hverjum þremur
ungum læknum í Svíþjóð metur það nokk-
uð eða mjög trúlegt að innan fimm ára
muni þeir skipta um starfsvettvang. Al-
gengustu uppgefnu ástæður voru launa-
kjör, vinnuumhverfi, mikið vinnuálag,
mikil ábyrgð og litlir möguleikar á að hafa
áhrif á vinnutíma og aðstæður í vinnunni.
Ég veit ekki til þess að svipuð könnun
hafi verið framkvæmd á Íslandi. En það
er ekki ólíklegt að hlutföllin séu svipuð,
að um 1/3 ungra lækna eigi erfitt með að
höndla ábyrgð og álag sem fylgir starfinu,
þó að ég eigi erfitt með að trúa að svo stór
hluti íslenskra kollega hafi hugsað sér að
skipta um starfsvettvang.
Við eigum fjölmarga duglega, drífandi
lækna sem eiga ekki í sömu erfiðleikum og
ég, og kannski nokkrir aðrir, að efast um
eigin getu og dómgreind, hafa áhyggjur
þegar heim er komið og eiga í talsverðum
erfiðleikum með að finna jafnvægi milli
vinnu og einkalífs. Það er mín tilgáta að
þeir sem sækjast eftir stöðu yfirlækna og
aukinni ábyrgð tilheyri ekki þessum hópi
sem finnst starf hins almenna læknis svo
krefjandi. Einhverjir yfirlæknar eiga því
erfitt með að sjá ástæður þess að starfs-
umhverfið þurfi að breytast, starfsum-
hverfi sem er sniðið að þeim sem eiga
auðvelt með að höndla álag og ábyrgð.
Við getum haldið áfram á sömu braut en
þá tökum við þá áhættu að missa hluta
vel menntaðra lækna í önnur störf og í
sjúkraleyfi vegna álagstengdra sjúkdóma.
Ég hef brennandi löngun til að verða
framúrskarandi góður læknir. Ég vona að
við getum hjálpast að við að búa til gott
starfsumhverfi svo að „aumingjar“ eins og
ég geti átt möguleika á farsælum starfsferli
innan heilbrigðiskerfisins á Íslandi.
Valgerður Þorsteinsdóttir
valgerdurth@gmail.comÞegar ég verð stór