Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 4

Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 4
Veður Norðlæg átt, 5-13 m/s. Él á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum annars staðar. Hvessir suðaustantil eftir hádegi. Frost 4 til 15 stig, kaldast inn til landsins. SJÁ SÍÐU 58 Lúsíur á Seltjarnarnesi Hátíðlegt var á Lúsíuhátið Sænska félagsins á Íslandi í Seltjarnarneskirkju í gær. Á tónleikum í kirkjunni komu fram kór og hljómsveit undir stjórn Mariu Cederborg sem kallað hefur saman börn og fullorðinna á hverju hausti til að undirbúa Lúsíuhátíðina. Á hátíðinni fer fremst í f lokki Lúsía, prýdd kórónu með kertum, og henni fylgir kór hvítklæddra meyja og jólasveina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Gefðu frí um jólin með gjafabréfi Icelandair STJÓRNSÝSLA Samþykkt lóðar fyrir Ás styrktarfélag á Kirkjubraut á Seltjarnarnesi hefur verið í vinnslu um langt skeið. Einhugur er um það innan bæjarstjórnar að um nauð- synlega framvæmd sé að ræða. Verkefnið er unnið í samvinnu við Ás styrktarfélag, sem hefur ráðist í sambærileg verkefni með Garðabæ og Kópavogsbæ á síðustu misserum. Um er að ræða búsetu- kjarna sem rúma á sex einstaklinga. Verður fyrirkomulagið á þá leið að bæjarfélagið byggir húsið og gerir síðan samning við styrktarfélagið um reksturinn. Mikil vinna var lögð í að finna heppilega staðsetningu búsetu- kjarnans en í febrúar á þessu ári var lagt til í skipulags- og umhverfis- nefnd að Kirkjubraut 20 yrði fyrir valinu og málinu vísað til bygg- ingarfulltrúa bæjarins. Næstu mánuði var málið tekið fyrir í nokkrum nefndum bæjarins og tók þar nokkrum breytingum. Þær breytingar gat Ásgerður Hall- dórsdóttir bæjarstjóri ekki sætt sig við og greiddi ein bæjarfulltrúa atkvæði gegn tillögunni. „Ég var sammála valinu á lóð- inni við Kirkjubraut en ósátt við þær breytingar sem urðu á tillög- unni. Fyrri tillaga gerði ráð fyrir því að þjónustukjarninn myndi vera staðsettur mun lengra frá núverandi byggð við Kirkjubraut, um 30 metra. Málið fór síðan til umhverfisnefndar bæjarins og eftir málsmeðferðina þar kom fram sú tillaga að kjarninn myndi færast um 8 metra nær núverandi byggð. Það féllst skipulagsnefnd á og vísað málinu til bæjarstjórnar. Ég er á þeirri skoðun að ekki hafi verið gætt meðalhófs gagnvart húseigendum við Kirkjubraut og því greiddi ég atkvæði gegn tillögunni,“ segir Ásgerður. Afgreiðslan er að sögn Ásgerðar ekki merki um djúpan pólitískan ágreining innan meirihluta Sjálf- stæðisflokksins á Seltjarnarnesi. „Það er öllum frjálst að hafa sína skoðun og ég virði ákvörðun meiri- hlutans. Það eru allir sammála um að þörfin sé brýn og mikilvægt að ráðist verði í framkvæmdir sem fyrst,“ segir Ásgerður. Breytingin á deiliskipulaginu verður f ljótlega sett í grenndar- kynningu til íbúa og má reikna með að það ferli taki þrjá til sex mánuði. bjornth@frettabladid.is Bæjarstjóri einn gegn íbúðum fyrir fatlaða Lóðin við Kirkjubraut þar sem þjónustukjarninn rís. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Í vikunni samþykkti bæjarstjórn Seltjarnar- ness uppbyggingu þjónustuíbúða á Val- húsahæð. Einhugur var með meirihluta- og minnihluta en þó var eitt atkvæði greitt gegn tillögunni. Ásgerður Halldórsdóttir bæjar- stjóri taldi ekki hafa verið gætt meðalhófs gagnvart öðrum húseig- endum í nágrenninu. Aftakaveður gekk yfir landið í vikunni og þrátt fyrir umfangs- mikinn undirbúning og viðbúnað þeirra sem stuðla að öryggi og vel- ferð landsmanna varð víðtækt og fordæmalaust rafmagnsleysi með tilheyrandi tjóni og óþægindum. Nauðsynlegt að hlúa að orkuinnviðum landsins Páll Erland framkvæmda- stjóri Samorku. FJÖLMIÐLAR Gerður hefur verið samningur þar sem Torg ehf., sem gefur út Fréttablaðið, og heldur úti vefmiðlunum frettabladid.is og hringbraut.is, kaupir tilteknar eignir af Frjálsri fjölmiðlun ehf., útgáfufélagi DV. Hið selda er útgáfuréttur að DV og vefmiðillinn dv.is, ásamt gagna- safni. Samningurinn er með fyrir- vara um samþykki fjölmiðlanefnd- ar og Samkeppniseftirlits. DV á sér langa útgáfusögu hér- lendis og hefur undanfarið verið gefið út vikulega. Dv.is, ásamt undirvefjunum eyjan.is, pressan.is, 433.is, fokus.is og bleikt.is, er einn fjölsóttasti vefmiðill landsins sam- kvæmt mælingum Gallup. Verði af kaupunum verða vef- miðlar Torgs meðal þeirra víðlesn- ustu hérlendis. – jþ Torg kaupir eignir Frjálsrar fjölmiðlunar Lestu greinina í heild á frettabladid.is/skodun Það er öllum frjálst að hafa sína skoðun og ég virði ákvörðun meiri- hlutans. Ásgerður Hall- dórsdóttir, bæjar- stjóri Seltjarnar- ness Pilturinn sem féll í Núpá í Sölva- dal í Eyjafirði á miðvikudags- kvöld fannst látinn við Fossgil um hádegisbil í gær. Hann hét Leif Magnús Grétarsson This- land og hefði orðið sautján ára 22. janúar næstkomandi. Leif átti íslenskan föður og norska móður. Hann fæddist í Noregi og bjó þar fram til átta ára aldurs er hann f lutti til föður- fjölskyldu sinnar í Vestmanna- eyjum. Yfir tvö hundruð manns frá björgunarsveitum, lögreglu og Landhelgisgæslunni tóku þátt í leitinni að Leif við afar krefjandi aðstæður við Núpá. Lést í Núpá Leif Magnús Grétarsson Thisland. +PLÚS 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.