Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 7
JEEP® RENEGADE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 4.990.000 kr.
JEEP® RENEGADE TRAILHAWK - Verð á sýningarbíl: 5.490.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.490.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LONGITUDE LUXURY - Verð á sýningarbíl: 7.990.000 kr.
JEEP® CHEROKEE LIMITED - Verð á sýningarbíl: 8.790.000 kr.
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
VETURINN ER OKKAR TÍMI - ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
TILBOÐ Á VÖLDUM SÝNINGARBÍLUM
ERUM Í SAMNINGSSTUÐI
JEEP© WRANGLER
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 11.590.000 KR.
JEEP© GRAND CHEROKEE
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 9.990. 00 KR.
JEEP© CHEROKEE
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 7.490.000 KR.
JEEP© RENEGADE
TILBOÐSVERÐ Á SÝNINGARBÍL
FRÁ: 4. 90. 0 KR.
Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra
mælti fyrir fjöl-
miðlafrumvarpi
sínu á mánudag.
Frumvarpið
hefur verið
umdeilt og
hefur staðið í
þingflokki Sjálf-
stæðismanna.
Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir
sveitarstjóri
Húnaþings vestra
gagnrýndi harð-
lega Landsnet,
RARIK og fleiri
aðila vegna
lélegs undirbún-
ings fyrir óveðrið
í vikunni. Voru
tengivirki í sveitinni ómönnuð.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
umhverfisráðherra
mætti á loftslags-
ráðstefnuna
í Madríd og
fagnaði því að
loksins væri
komin fram
fjöldahreyfing
fólks sem stæði upp
fyrir umhverfið. Sagði hann Gretu
Thunberg hafa hreyft við fólki.
Þrjú í fréttum
Ráðherrar og
sveitarstjóri
TÖLUR VIKUNNAR 08.12.2019 TIL 14.12.2019
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
24
fá ríkisborgararétt
samkvæmt frumvarpi
allsherjarnefndar.
15
hektarar af skógræktar-
landi verður tekið undir
golfvöll í Garðabæ sam-
kvæmt áætlunum.
1.558
umsagnir um klukku-
frumvarp bárust og 56
prósent vilja seinka
klukkunni.
130.000
saurgerlar mældust í
hverjum 100 millilítrum af
sjó við Grandabryggju.
2
milljarðar króna er það
sem reikna má með að
óveðrið í vikunni kosti
þjóðarbúið.
ÓVEÐUR „Þetta er þung staða fyrir
íbúa hér fyrir norðan,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra í
samtali við Fréttablaðið gær. Katr-
ín ferðaðist norður í land í gær og
fór yfir stöðuna í landshlutanum
með heimamönnum eftir óveðrið
sem geisað hefur. Með forsætisráð-
herra í för voru Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra, Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmála-
ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra og Kristján Þór
Júlíusson sjávarútvegsráðherra.
Þegar Fréttablaðið náði tali
af Katrínu var hún á leiðinni frá
Dalvík á Sauðárkrók. Þaðan var
ferðinni heitið í Húnaþing þar sem
ráðherrarnir hugðust funda með
bæjarráðum bæði á Blönduósi og
Hvammstanga. Hún sagði heim-
sóknina á Dalvík magnaða en að
ljóst væri að bæjarbúar ættu mikið
verk fyrir höndum. Varðskipið Þór
hefur séð Dalvíkingum fyrir raf-
magni síðan í gær.
„Auðvitað er það alltaf allt öðru-
vísi að sjá hlutina svona og skynja
hver staðan er,“ segir Katrín. „Það var
magnað að sjá varðskipið í þessari
notkun og svo að sjá þær gríðarlegu
skemmdir sem þarna hafa orðið,
með berum augum. Það liggur alveg
ljóst fyrir að það mun taka einhverja
daga að ljúka viðgerðum hér,“ bætir
hún við.
„Við sáum þarna skemmdirnar
sem veðrið hefur valdið og til dæmis
hvernig línan hefur farið vegna ísing-
ar sem þarf að brjóta handvirkt. Við
hittum mennina og konurnar sem
eru búin að vera að brjóta ísinn og
þetta er engin smá vinna. Fólk er í
raun og veru búið að vera að vinna í
tvo sólarhringa án þess að unna sér
hvíldar,“ segir Katrín.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst frá
íbúum á Norðurlandi um ófull-
nægjandi innviði á svæðinu og
mikilvægi þess að nægur mannafli
sé á svæðinu til að bregðast við
aðstæðum sem þessum svo fátt eitt
sé nefnt. „Ég held að við getum öll
verið sammála um það að um leið og
viðbragðsaðilar hafa unnið frábæra
vinnu undanfarna daga þá afhjúpar
þetta veður veikleika í okkar kerfi,“
segir Katrín.
Spurð að því hvernig bregðast
skuli við gagnrýni sem þessari segir
Katrín að ríkisstjórnin hafi formlega
sett af stað átakshóp sem skila skuli
tillögum um forgangsatriði til að
styrkja innviði landsins í aðstæðum
sem þessum. „Hópurinn á að skila
af sér tillögum 1. mars á komandi
ári svo hann fær ekki langan tíma,“
segir hún.
„Þetta eru allt þættir sem við
þurfum að taka á og skoða en um
leið er mikilvægt að muna að við
erum eiginlega í miðri á. Það er verið
að bregðast við og vinna hörðum
höndum að því að koma öllu í samt
lag. Svo horfum við til lengri tíma,“
segir Katrín.
birnadrofn@frettabladid.is
Opinberar veikleika í kerfinu
Fimm ráðherrar fóru norður gær og fóru yfir stöðuna eftir óveðrið með heimamönnum. Forsætisráð-
herra segir að unnið sé að því hörðum höndum að koma öllu í samt lag. Átakshópur á að styrkja innviði.
Katrín Jakobsdóttir létti undir með heimamönnum og losaði ísingu af rafmagnssnúru með handafli.
Hún segir fólk hafa unnið í tvo sólarhringa að því að brjóta ísinn af línunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Enn rafmagnslaust
Unnið hefur verið hörðum
höndum að því að koma á raf-
magni víðsvegar um land frá
því að óveðrið skall á. Búast
má við að rafmagn sé komið á
víðsvegar í dag en enn eru þó
nokkrir staðið sem eru án raf-
magns. Til að mynda Melrakka-
slétta, Hörgárdalur, Öxnadalur
og Tjörnes.
Landsnet á og rekur allar
meginflutningslínur rafmagns á
Íslandi og til flutningskerfisins
teljast einnig öll helstu tengi-
virki á landinu. Fyrirtækið er
hlutafélag í eigu Landsvirkjunar,
RARIK, Orkuveitu Reykjavíkur og
Orkubús Vestfjarða.
+PLÚS
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð