Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 10
STJÓRNMÁL Á fjórða tug þingmála verða afgreidd á Alþingi eftir helgi en samkomulag þingf lokka um þinglok gerir ráð fyrir að þingstörf- um ljúki á þriðjudag með atkvæða- greiðslum. Þá verða afgreidd um þrjátíu mál ríkisstjórnarinnar auk nokkurra þingmannamála. Stjórnarflokkarnir lögðu áherslu á að ná þeim málum í gegn sem tengjast lífskjarasamningunum auk svokallaðra dagsetningamála sem þurfa að öðlast gildi um ára- mót. Meðal þeirra mála sem tengj- ast kjarasamningum er frumvarp félags- og barnamálaráðherra um lengingu fæðingarorlofs. Þá verða þau mál einnig kláruð sem þegar hafa verið afgreidd úr nefndum, þeirra á meðal er til dæmis frumvarp menntamála- ráðherra til nýrra laga um sviðs- listir. Einhver styr hefur staðið um nokkur mál; þeirra á meðal mál samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra um sameiningu sveitarfélaga. Hafa þingmenn bæði Miðflokksins og Pírata sett sig mjög á móti mál- inu og verður afgreiðslu þess frestað fram yfir áramót. Þá er mál sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um matvælaeftir- lit erfitt í minnst tveimur stjórnar- flokkum en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leggst það illa í ein- hverja þingmenn bæði Framsóknar og Vinstri grænna. Er það sérstak- lega nýr sjóður, Matvælasjóður, sem er þeim þyrnir í augum en honum var ætlað að leysa af hólmi annars vegar Framleiðnisjóð landbúnaðar- ins og hins vegar AVS rannsóknar- sjóð í sjávarútvegi. Sú lausn hefur verið fundin á málinu að fella öll ákvæði um hin nýja sjóð úr frum- varpinu og hefur breytingartillaga meirihluta atvinnuveganefndar þessa efnis verið lögð fram. Frumvarp um breytingar á lögum um stöðu og stjórn þjóðkirkjunnar hefur einnig mætt nokkurri and- stöðu hjá stjórnarandstöðunni en frumvarpið er lagt fram á grund- velli nýs viðbótarsamkomulags um greiðslur ríkisins til þjóðkirkj- unnar. Í frumvarpinu er kveðið á um aukið sjálfstæði kirkjunnar og sjálfræði um innri málefni. Þó Umdeild mál bíða fram yfir jól Stefnt er að þinglokum á þriðjudag. Mál tengd lífskjarasamningum verða afgreidd, auk frumvarps um málefni þjóðkirkjunnar. Umdeild mál um sameiningu sveitarfélaga og styrki til fjölmiðla bíða nýs árs. Óeining hefur verið um fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Mælt verður fyrir því á mánudag og umsagna aflað yfir hátíðirnar. Sviðslistafrumvarp hennar verður afgreitt fyrir jól en frumvarp hennar um breytingar á námslánakerfinu bíður fram yfir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Mouhamed Lo meðal þeirra sem fá ríkisborgararétt með lögum frá Alþingi Venju samkvæmt afgreiðir Alþingi frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar í aðdraganda þingloka. Samkvæmt frumvarpi alls- herjar- og menntamálanefndar verður 24 einstaklingum frá 16 ríkjum veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni. Elsti maður á listanum er 72 ára en sá yngsti 16 ára. Meðal þeirra sem fá ríkis- borgararétt er Mouhamed Lo sem flúði þrælahald í heimalandi sínu Máritaníu. Synjun á beiðni hans um hæli hér á landi vakti mikla reiði í samfélaginu og naut hann aðstoðar Íslendinga er hann fór huldu höfði hér á landi í rúmt ár. Ákvörðun um brottvísun hans var felld úr gildi um mitt ár 2012 og honum var loks veitt dvalar- leyfi af mannúðarástæðum á Íslandi árið 2013. Skrá um heilabilunarsjúkdóma Frumvarp um að heilabilunarsjúkdómum verði bætt við þann lista sem Embætti landlæknis er skylt að halda sérstakar skrár um með von um að fylgst verði betur með þeim á heilbrigðisstofnunum og heilsugæslum. (Ólafur Þór Gunnarsson, Vinstri grænum.) Lágmarksframfærsla öryrkja og aldraðra Tillaga til þingsályktunar um að félags- og barnamálaráðherra verði falið að leggja fram frumvarp sem tryggi 300 þúsund króna lágmarksframfærslu á mánuði fyrir þá sem hafa fullan örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri og ellilífeyri, skatta- og skerðingarlaust. (Inga Sæland, Flokki fólksins.) Hækkun starfslokaaldurs Lagt til að embættis- mönnum og öðrum ríkisstarfsmönnum verði gert kleift að starfa hjá ríkinu til 73 ára aldurs kjósi þeir það en þeim ber að láta af störfum við sjötugt sam- kvæmt gildandi lögum. (Þorsteinn Sæmundsson, Miðflokknum.) Eftirlit með starfsemi lögreglu Tillaga um sérstaka stofnun sem hafi eftirlit með starfsemi lögreglu. Stofnunin verði eftirlitsstofnun Alþingis og óháð framkvæmdavaldinu. Hún fái vald til að hefja at- hugun mála að eigin frumkvæði, rannsaka ætluð brot lögreglu í starfi, rannsaka tilkynningar um einelti og kynferðislega áreitni og fleira. (Helgi Hrafn Gunnars- son, Pírötum.) Gæðastýring í sauðfjárrækt Ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt verði endurskoðuð, þannig að landnýtingarþáttur hennar samræmist lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Byggt verði á ráðgjöf Landgræðslunnar um ný viðmiðunarmörk fyrir ástand heimalanda, upprekstrarheimalanda og beitilanda á afrétti. Greiðslur verði ekki inntar af hendi til þeirra framleiðenda sem liggur fyrir að nái ekki núgildandi viðmiðum. (Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn.) Rannsóknir á þunglyndi Tillaga til þingsályktunar um skipun nefndar til að rannsaka og meta umfang þunglyndis eldri borgara og kanna tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna eldri borgara. Kannað verði hvaða leiðir séu best til þess fallnar að koma í veg fyrir þunglyndi meðal eldri borgara. (Ágúst Ólafur Ágústs- son, Samfylkingunni.) Fræðsla um vefjagigt Tillaga um að heilbrigðisráð- herra verði falið að beita sér fyrir fræðslu til almenn- ings um vefjagigt og láta fara fram endurskoðun á skipan sérhæfðrar endurhæfingarþjónustu með það að markmiði að styrkja greiningarferlið og bjóða upp á heildræna meðferð byggða á niðurstöðum gagnreyndra rannsókna. (Halla Signý Kristjánsdóttir, Framsóknarflokki.) Óháð úttekt á Landeyjahöfn Tillaga um að sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra láti hefja óháða úttekt á Landeyjahöfn í samræmi við samgöngu- áætlun fyrir árin 2019–2033 og fimm ára samgöngu- áætlun fyrir árin 2019–2023 og að henni verði lokið eigi síðar en 31. mars 2020. (Páll Magnússon, Sjálf- stæðisflokki.) Málið hefur þegar verið samþykkt. er búist við að frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok. Mælt verður fyrir hinu umdeilda fjölmiðlafrumvarpi menntamála- ráðherra á mánudag og því vísað til nefndar. Gert er ráð fyrir að umsagnarbeiðnir um málið verði sendar út áður en þing fer í jólafrí og málið fái svo hefðbundna þinglega meðferð eftir áramót. Stjórnarfrumvörp eru ávallt í forgangi á dagskrá þingsins en við þinglok er alla jafna samið um að tiltekinn fjöldi þingmannamála fái afgreiðslu í þinginu. Samið hefur verið um að eitt þingmannamál frá hverjum þingflokki fái lokaaf- greiðslu í þinginu fyrir jól. Í þessu samkomulagi fellst þó ekki að umrædd mál nái fram að ganga og getur þeim lokið með samþykkt, synjun eða eftir atvikum gæti þeim verið vísað til ríkisstjórnarinnar til ákveðinnar meðferðar. Þá hefur verið samið um að formenn þing- flokka fundi strax eftir áramót og ræði meðferð annarra þingmanna- mála með það að markmiði að fleiri þingmannamál fái afgreiðslu á Alþingi. adalheidur@frettabladid.is ✿ Þingmannamál sem fá afgreiðslu fyrir jól SAMFÉLAG „Lykilatriðið er að ég ofhugsaði þetta ekki heldur fékk ég hugmynd og framkvæmdi hana,“ segir Anna Steinsen, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Hún gefur í dag út bókina Ofur- hetjur í einn dag og rennur allur ágóði af sölu bókarinnar til UN Women á Íslandi. „Ég hef unnið við það í mörg ár að styrkja sjálfsmynd og sjálfs- traust hjá börnum. Mig langaði að blanda því saman að gefa út bók og í leiðinni valdefla stúlkur og í raun öll börn,“ segir hún. Bókin fjallar um stúlku sem flytur til Íslands sem flóttamaður ásamt fjölskyldu sinni. „Hún er að byrja í nýjum skóla og langar að eignast vinkonu, sem hún og gerir. Við sögu koma ofurhetjur, sam- kennd, vinátta og gleði,“ segir Anna. „UN Women eru að gera svo mik- ilvæga og spennandi hluti og geta haft áhrif um allan heim. Þess vegna ákvað ég að velja það málefni. Svo brenn ég líka fyrir jafnrétti í heim- inum og þykir mikilvægt að vald- efla konur, mæður og börn,“ segir Anna. Nánar er fjallað um Önnu og bókina á frettabladid.is. – bdj Ágóðinn til UN Women Mig langaði að blanda því saman að gefa út bók og í leiðinni valdefla stúlkur og í raun öll börn. Anna Steinsen, tómstunda- og félagsmála- fræðingur DÓMSMÁL Vigfús Ólafssson var dæmdur í Landsrétti í gær til fjór- tán ára fangelsisvistar fyrir að hafa orðið tveimur að bana með því að kveikja í íbúðarhúsi á Selfossi 31. október í fyrra. Vigfús hafði í Héraðsdómi Suður- lands í júlí síðastliðnum verið fund- inn sekur um brennu og mann- dráp af gáleysi sem var varakrafa í ákæru ríkissaksóknara. Var hann þá dæmdur til fimm ára fangelsis- vistar. Landsréttur telur hins vegar sannað að um manndráp af ásetn- ingi hafi verið að ræða og þyngir refsingu Vigfúsar samkvæmt því. „Þegar ákærði kveikti eldinn vissi hann að á efri hæðinni voru þau tvö sem létust í eldsvoðanum. Hann vissi líka að mikill eldsmatur var í húsinu og gat honum ekki dulist að svo gæti farið að þau, sem uppi voru, kæmust ekki undan ef kvikn- aði í húsinu og líklegt væri að þau gætu beðið bana, eins og reyndin varð. Þrátt fyrir þessa vitneskju um þessar aðstæður kveikti hann eld sem leiddi til þess að tvær mann- eskjur létust,“ segir í dómi Lands- réttar. Þá var Vigfús dæmdur til að greiða aðstandendum yfir 15 millj- ónir króna í bætur. – gar Dómur þyngdur í fjórtán ár Vigfús Ólafsson leiddur fyrir dómara. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.