Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 12
www.gjofsemgefur.is PIPA R\TBW A • SÍA • 133567 undir tré á Íslandi GEFÐU jólapakka Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óbirtu handriti að skáldverki fyrir börn eða unglinga, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Verðlaununum verður úthlutað í annað sinn í apríl 2020. Verðlaun að upphæð 1 milljón króna verða veitt fyrir eitt handrit. Þriggja manna dómnefnd metur verkin og eru meðlimir hennar tilnefndir af menningar-, íþrótta – og tómstundaráði, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundasambandi Íslands. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert innsent handrit fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka má fella verðlaunaafhendinguna niður það árið. Þremur eintökum af handriti skal skila undir dulnefni, en nafn og símanúmer höfundar fylgi með í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi 9. janúar. Utanáskrift: Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur b.t. Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík Í apríl 2018 samþykkti borgarráð að frá 2019 verði Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur veitt árlega að vori fyrir handrit að nýrri barna eða ungmennabók. Bergrún Íris Sævarsdóttir hlaut verðlaunin árið 2019 fyrir handritið að bókinni Kennarinn sem hvarf. Stjórn RÚV vísaði ábyrgð á ráðuneytið sem hafnar ábyrgð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STJÓRNSÝSLA Mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið hafnar því að hafa haft samráð við Ríkisút- varpið ohf. um að bíða með að stofna dótturfélag þangað til úttekt Ríkisendurskoðunar lægi fyrir. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem kom út í nóvember síðastliðn- um, er því sérstaklega beint til RÚV að fara að lögum með því að stofna dótturfélög utan um aðra starf- semi en fjölmiðlun í almannaþágu. Lögin voru samþykkt árið 2013 og tóku gildi í byrjun árs 2018. Kári Jónasson, formaður stjórnar RÚV, sagði við Fréttablaðið í kjölfar útgáfu skýrslunnar að óvissa hefði ríkt um stofnun dótturfélaga vegna virðisaukaskattsmála. Skúli Eggert Þórðarson ríkis- endurskoðandi sagði hins vegar að aldrei hefði verið nein óvissa. „Frá ársbyrjun 2018 hefur það verið alveg skýr lagaskylda að stofna dótturfélag,“ sagði Skúli Eggert. Kemur það einnig fram í umsögnum ráðuneytisins við skýrsluna að lögin séu ekki val- kvæð en beiðni RÚV um endur- skoðun laganna sé til skoðunar. Í kjölfar orða Skúla Eggerts sendi stjórn RÚV frá sér tilkynningu þar sem sagt var að unnið hefði verið í fullu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Er þá vísað í bréf ráðuneytisins frá októ- ber 2018. Í því samráði hefði verið ákveðið að bíða með að framfylgja lögunum og því hefði stjórnin ekk- ert aðhafst. Í bréfinu sem Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri og Jón Vilberg Guðjónsson skrifstofustjóri sendu útvarpsstjóra í október í fyrra er ekki að finna ráðleggingu um að bíða með að stofna dótturfélag. Þess í stað er óskað eftir áliti RÚV um hvort líta megi á móður- og dótturfélag sem „skattalega sam- stæðu“ til að útskattur dóttur- félagsins reiknist móðurfélaginu til góða. Var þá RÚV tjáð að ráðuneytið myndi leita álits Ríkisendurskoð- unar á hvort aðskilnaður í bók- haldi samrýmdist Evróputilskip- unum, að þeirri athugun lokinni yrði farið yfir þær niðurstöður með útvarpsstjóra og stjórn RÚV. Fréttablaðið sendi mennta- og menningarmálaráðuneytinu fyrir- spurn í síðari hluta nóvember þar sem óskað var eftir skýringum á því hvort ráðuneytið hefði ráðlagt RÚV að bíða með að fara að lögum. Svar ráðuneytisins barst þremur vikum síðar. Þar er því hafnað að slíkar ráðleggingar hafi verið settar fram. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er málið viðkvæmt innan veggja ráðuneytisins vegna em- bættismanna sem hafa mikinn vilja til að ganga erinda RÚV. Í svarinu, sem undirritað er af Kristrúnu Heiðu Hauksdóttur upplýsingafulltrúa, er reifaður til- gangur laganna og frestun gildis- töku þeirra í tvígang. Hófust form- legar, og óformlegar, viðræður milli RÚV og ráðuneytisins árið 2015 um ákvæðið. Vekur athygli að ein rökin fyrir því að stofna ekki dótturfélag voru ákvæði í þjónustusamningi við ráðuneytið frá árinu 2016 þar sem kveðið er á um að starfsemi RÚV verði með sama hætti og áður, þrátt fyrir að gert hafi verið ráð fyrir því í lögum að RÚV yrði að stofna dótturfélag á tímabilinu. Kemur einnig fram að stjórn RÚV hafi sóst eftir því að lögunum yrði breytt eða þau felld niður. Við því var ekki orðið og hefur ráðu- neytið hvatt stjórn RÚV til að grípa til ráðstafana um stofnun dóttur- félaga, ferli sem mun vera hafið, og fara að fyrirmælum Ríkisendur- skoðunar um breytingar á bók- haldi. arib@frettabladid.is Hafna samráði um lögbrot Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafnar því að hafa haft samráð við RÚV um að bíða með að fylgja lögum um stofnun dótturfélaga. Stjórn RÚV varpaði ábyrgð á málinu á ráðuneytið í yfirlýsingu. Íslendingar eyða stórum hluta ráð- stöfunarfjár í mat. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NEY TENDUR Samkvæmt nýjum tölum frá Eurostat, tölfræði- stofnun Evrópusambandsins, eyða Íslendingar 12,6 prósentum af ráð- stöfunartekjum sínum í matvæli og óáfenga drykki. Er þetta nánast sama hlutfall og meðaltal af öllu Evrópusambandssvæðinu en með því hæsta í vesturhlutanum. Rúmenar eyða hlutfallslega mestu í matvæli, tæpum 28 pró- sentum, og þar á eftir koma Serbía, Svartfjallaland, Eystrasaltsríkin og fleiri ríki austan gamla járntjalds. Minnstu eyða Bretar í matvæli, tæpum 8 prósentum, en þar á eftir koma ríki á borð við Þýskaland, Holland og Írland. Af vestrænum ríkjum eru aðeins Frakkland, Ítalía og Portúgal fyrir ofan Ísland en Sví- þjóð hefur sama hlutfall. – khg Verjum nærri 13 prósentum í mat á Íslandi Bretar eyða minnstu í matvæli, tæpum 8 prósentum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er málið viðkvæmt innan veggja ráðuneytisins vegna emb- ættismanna sem hafa mikinn vilja til að ganga erinda RÚV. 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.