Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 20

Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 20
Breskir ríkisborg- arar sem búið hafa hér á Íslandi fram að 31. janúar geta því haldið áfram að búa, starfa og læra hér á landi. Michael Nevin, sendiherra Bret- lands Hofsá og Sunnudalsá er enn ein perlan í bókaflokknum um laxveiðiár á Íslandi. Í þessari bók er í fyrsta sinn fjallað um Hofsá og Sunnudalsá, og veiðisvæðunum lýst á einstaklega skemmtilegan og aðgengilegan hátt. „Hofsá í Vopnafirði er ein þekktasta laxveiðiá landsins og hliðará hennar Sunnudalsá er einnig góð laxveiðiá og eru þær oft nefndar í sömu andrá. Hofsá á sér óvenjulega sögu sem laxveiðiá, en á sjötta áratug síðustu aldar hófu breskir veiðimenn að venja komur sínar í Hofsárdal og bundust þeir ánni og sveitinni sterkum böndum.“ HOFSÁ OG SUNNUDALSÁ Vatnagörðum 14 • 104 Reykjavík Sími 563 6000 • www.litrof.is ÓSKABÓK VEIÐIMANNSINS! EINNIG TIL Á ENSKU Boris Johnson forsætisráðherra var ákafur þegar hann ávarpaði blaðamenn í gær. NORDICPHOTOS/GETTY BRETLAND Íhaldsflokkurinn vann stórsigur í bresku þingkosning- unum sem fram fóru á fimmtu- daginn. Bætti f lokkurinn við sig 47 þingmönnum og er nú með hreinan meirihluta á þingi. Boris Johnson forsætisráðherra fór á fund Elísabetar Bretadrottningar í gær þar sem hann fékk umboð til að mynda ríkisstjórn sem mun að öllu óbreyttu sitja næstu fimm árin. Verkamannaf lokkurinn galt afhroð og tapaði 53 þingmönnum. Er þetta versta útkoma f lokksins frá því fyrir síðari heimsstyrjöld. Flokkurinn tapaði sætum sem áður voru talin örugg og féll „rauði múr- inn“ svokallaði í kosningunum. Eru nú háværar raddir innan flokksins um að Jeremy Corbyn gefi eftir leið- togasæti sitt. Skoski þjóðarf lokkurinn bætti við sig 13 þingmönnum og gefur það til kynna að krafan um aðra atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands verði háværari en verið hefur. Frjálslyndir demókratar töpuðu einu þingsæti, var það sæti Jo Swin- son, leiðtoga flokksins, sem kemur til með að segja af sér. Tapaði hún í kjördæminu með 149 atkvæðum. Viktor Orri Valgarðsson, stjórn- málafræðikennari við Durham- háskóla í Bretlandi, hefur fylgst vel með kosningunum. Hann átti ekki von á jafn afgerandi niðurstöðu. „Ég hef samúð með þeim sem kusu Íhaldsf lokkinn með trega sem voru einfaldlega langþreyttir á þriggja ára pattstöðu í Brexit og hafa meiri trú á því að Boris klári málið en Corbyn,“ segir Viktor Orri. „Áhyggjur af Brexit vógu þyngra fyrir marga kjósendur en sú stað- reynd að Boris er sjúklegur lygari, hvernig hann hefur gengið út á ystu nöf í hagræðingu sannleikans í kosningabaráttunni. Þessi niður- staða talar sínu máli um stöðu lýð- ræðis í Bretlandi. Það voru f leiri þættir sem spiluðu inn í, þar á meðal kjósendur sem vildu ekki teygja sig eins langt til vinstri og Verkamannaflokkurinn vildi.“ Viktor telur niðurstöðurnar sýna fram á veikleika einmenningskjör- dæma. Þegar hlutfallið sé talið saman hafi f lokkar sem vilji Bret- land áfram í Evrópusambandinu, Verkamannaf lokkurinn þar með talinn, fengið meirihluta atkvæða. Til dæmis hafi Frjálslyndir demó- kratar fengið 11,5 prósent atkvæða en vegna kosningakerfisins fái þeir aðeins 1,7 prósent þingsæta. „Þetta kosningakerfi er ekki bara ótrúlega lélegt við að yfirfæra atkvæði yfir á þingsæti heldur þýðir það einnig að þeir sem fylgja ekki Íhaldsf lokknum, Verkamanna- flokknum og Frjálslyndum demó- krötum höfðu enga leið til að láta skoðun sína í ljós.“ Johnson sagði á blaðamanna- fundi fyrir utan Downingstræti í gær að hann myndi ekki bregðast þeim kjósendum sem yfirgáfu Verkamannaflokkinn fyrir hann. „Bretland á skilið hlé frá karpi, hlé frá pólitík og varanlegt hlé frá umræðunni um Brexit,“ sagði Johnson. „Ég hvet alla til að ljúka umræðunni og láta sárin gróa.“ arib@frettabladid.is Stórsigur Johnsons í þingkosningunum Íhaldsflokkur Boris Johnson vann stórsigur í bresku þingkosningunum. Segist Johnson vilja veita þjóð sinni varanlegt hlé frá um- ræðunni um úrsögnina úr ESB. Íslenskur stjórnmálafræðingur segir niðurstöðuna undirstrika galla í kosningakerfinu hjá Bretum. Ég hef samúð með þeim sem kusu Íhaldsflokkinn með trega sem voru einfaldlega lang- þreyttir á þriggja ára patt- stöðu í Brexit og hafa meiri trú á því að Boris klári málið en Corbyn. Viktor Orri Val- garðsson, stjórn- málafræðingur UTANRÍKISMÁL Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi, var ögn þreyttur eftir kosninganóttina þegar Fréttablaðið náði af honum tali. Stíft var fylgst með enda mikið í húfi fyrir Bretland og Breta á Íslandi. Ekki voru þó neinar kosningar haldnar í sendiráðinu sjálfu því að þeir 2.000 til 3.000 Bretar sem hér eru staddir kusu með póstkosningu. Segir hann óljóst hvort mikil spenna hafi verið fyrir kosning- unum hjá Bretum hér. „Bretar á Íslandi eru margir mjög vel aðlagaðir íslensku samfélagi. Þeir eiga sitt líf og sína vini hér og reiða sig ekki mjög mikið á sendiráðið,“ segir hann. Boris Johnson forsætisráðherra hefur lýst því yfir að Bretland muni yf irgefa Evrópusambandið 31. janúar næstkomandi. Michael segir að þegar sé til staðar samkomulag á milli Bretlands og Íslands um rétt- indi ríkisborgara. „Það sem mun gerast er að við förum í svokallað útfærslutímabil í eitt ár og þá verður engin breyting á stöðu þeirra,“ segir hann. „Breskir ríkisborgarar sem búið hafa hér á Íslandi fram að 31. janúar geta því haldið áfram að búa, starfa og læra hér á landi. Það sama gildir fyrir Íslendinga í Bretlandi.“ Þegar farið verður að ræða fram- tíðarskipulag við Evrópusambandið og EES-ríkin mun framhaldið koma í ljós. En samkomulagið um þá sem bjuggu hér til 31. janúar gildir áfram. Aðspurður um hvort útgangan muni styrkja eða veikja samband Íslands og Bretlands telur Michael að það muni styrkjast. „Við sjáum það nú þegar vera að styrkjast, meðal annars með fundum á milli ráð- herra. Það er mikilvægt fyrir Bret- land að halda góðum samskiptum við nágrannaríki, til dæmis Ísland sem einnig er utan Evrópusam- bandsins.“ – khg Sambandið við Bretland styrkist eftir útgönguna Forsætisráðherrar Íslands og Bretlands 4. desember. NORDICPHOTOS/AFP 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.