Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 26
MÉR FINNST ÞETTA AUÐ-
VITAÐ ALVEG MAGNAÐ
AFREK HJÁ HONUM. AÐ
HONUM HAFI TEKIST AÐ
ÚTSKRIFAST ÚR MENNTA-
SKÓLA MEÐ ÁGÆTISEIN-
KUNN ÞRÁTT FYRIR AÐ
HAFA EKKI BYRJAÐ Í
SKÓLA FYRR EN TÍU ÁRA
GAMALL.
Keli t jáir sig með aðstoð stafaspjalds frá Austin í Texas. K a n n sk i s vol ít ið óvenjulegt að taka viðtal með þessum
hætti. En kannski ekki. Lífið getur
verið óvenjulegt og f lókið fyrir
fólk með einhverfu í heimi þeirra
normatífu.
„Ég er oftast mjög rólegur,“ svarar
Keli spurður að því hvernig hann
myndi lýsa sjálfum sér.
Móðir hans Margrét Dagmar
Ericsdóttir er á Íslandi að kynna
nýútgefna bók sína um baráttu sína
fyrir velferð sonar síns og er komin
til fundar við blaðamann á kaffihúsi
í miðborginni. „Keli blómstrar, það
er margt hægt að gera fyrir hann
í Bandaríkjunum en það er ekki
ókeypis. Ég ákvað að gefa út bókina
til að afla fjár,“ segir Margrét og segir
bókina, Vængjaþyt vonarinnar,
einnig munu koma út á ensku. „Og
erlendi umboðsaðilinn vill koma
bókinni til stærstu kvikmynda
veranna, en við sjáum til,“ segir hún.
Keli er 22 ára gamall. Hann var
ekki greindur með einhverfu fyrr en
hann var orðinn þriggja og hálfs árs.
Framleiðsla heimildarmyndar
Friðriks Þórs Friðrikssonar um
Kela, Sólskinsdrengurinn, hafði
varanleg áhrif á líf fjölskyldunnar.
Svarti kassinn
„Það var þá sem Keli fékk rödd.
Hann lærði að tjá sig og allt var
breytt. Við gerð myndarinnar
kynntumst við stað í Austin í Texas
þar sem boðið var upp á þjálfun
í tjáskiptum. Keli hafði fengið þá
greiningu hér heima á Íslandi sjö
Heimur Kela
Fjölskyldunni var sagt að hann myndi
aldrei geta tjáð sig og það væri best fyrir
hann að dvelja á stofnun. Þorkell Skúli Þor-
steinsson, alltaf kallaður Keli, var álitinn
vera með mikla þroskaskerðingu sjö ára
gamall. Hann er orðinn 22 ára og útskrif-
aður úr menntaskóla með ágætiseinkunnir.
„Stundum hamingju en stundum þakklæti,“ segir Keli um þær tilfinningar sem tónlist vekur með honum og segir Mozart það tónskáld sem er í uppáhaldi hjá honum.
„Skóli án aðgreiningar á Íslandi er í skötulíki,“ segir Margrét.
ára gamall að hann væri með djúpa
þroskaskerðingu, það besta sem við
gætum gert fyrir hann í framtíðinni
væri að vista hann á stofnun. Ég hef
skilning á því í dag hvernig hann
var metinn. Sérfræðingar hér heima
stóðu bara frammi fyrir svörtum
lokuðum kassa og reyndu að giska
á hvaða innihald hann hefði að
geyma því hann talaði ekki.
I am real
En það kom sem sagt í ljós að Keli
var miklu greindari en nokkurn
hefði grunað. Fyrstu tjáskipti hans
voru með hjálp stafaspjalds og
fyrsta setningin sem hann skrifaði
var: I am real. Þetta var ákall hans til
okkar um að fá viðurkenningu og að
vera einn af okkur. Þetta var himna
sending fyrir okkur foreldrana en
líka afskaplega sárt. Því við höfðum
lesið fyrir hann einfaldar barna
sögur og hann horfði á Stubbana!
Barnið okkar var búið að bíða í ára
tug eftir því að geta talað við okkur.
Mæður eiga að hafa svo gott inn
sæi, ég álasaði mér fyrir að hafa
ekki fundið þetta. En það var búið
að segja við okkur að hann hefði
þroska á við tveggja ára barn og við
því búin að gefa okkur forsendurn
ar. Nú gátum við byrjað að kynnast
Kela. Og það var ekki bara það sem
hann vildi fá sem skipti máli, líka
það sem hann vill ekki. Við héldum
að við værum að gera vel við hann
með því að fara með hann á McDon
ald’s eins og við vissum að eldri
bræðrum hans líkaði. En hann staf
aði: I like sushi, I like the taste and
look, I don’t want to be pushy, but
it’s better than McDonalds’ cook.
Það var dásamlegt ferli, ljúfsárt
samt að kynnast barninu okkar.
Við komumst að því að hann veit
nákvæmlega hvað hann vill. Hann
vill vinna við það að búa til tónlist
og sögur. Hann elskar að lesa heims
bókmenntir, í uppáhaldi hjá honum
er Huckleberry Finn eftir Mark
Twain sem er hans uppáhalds
rithöfundur. Þá er J.R.R. Tolkien í
miklu uppáhaldi. Keli er ákveðinn,
líður vel í eigin skinni og er með
mikið jafnaðargeð, kannski vegna
þess að hann þurfti svo lengi að vera
inni í sér, eins og fangi í eigin líkama
á meðan við hin í fjölskyldunni töl
uðum um hann en ekki við hann.“
Mozart í uppáhaldi
„Klassíska tónlist og popptónlist,“
svarar Keli um það hvaða tón
list honum finnst gott að hlusta á.
Hann segir tónlist vekja með sér
hamingjutilfinningu og jafnvel ein
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN