Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 31
ÉG ER Í RAUN GRUNLAUS
UM HVAÐAN GRÍMAN
KEMUR OG HAFÐI EKKI
HUGMYND UM HVERNIG
HÚN ENDAÐI Í FÓRUM
PABBA. VIÐ VISSUM AÐ
ÞETTA VÆRI MUNCH, EN
ALLS EKKI HVERNIG PABBA
ÁSKOTNAÐIST GRÍMAN.
Ómissandi í jólabaksturinn!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
10
9
9
Það hafði líka engin áhrif á mig að
alast upp með heyrnarlausan föður.
Hann var þannig, þetta hindraði
hann svo lítið. Hann var það góður
í varalestri að við tókum varla eftir
því að hann væri heyrnarlaus. En
þessi dugnaður hans og elja, hann
var alveg gríðarleg fyrirmynd. Mér
fannst ég standa í skugga hans í
mörg ár, svo fattaði ég sem betur fer
fyrir rest að ég ætlaði bara að vera í
ljósinu hans. Hann var ljósið,“ segir
Fjölnir.
Bragi var afkastamikill og jafn-
vígur í mörgum ólíkum stefnum.
„Svo kennir hann líka í marga
áratugi við Myndlista- og handíða-
skólann, þar sem hann getur af sér
heilu kynslóðirnar af listamönnum.
Listin var hans líf og sál. Hann las
bara um myndlist og ferðaðist bara
til að skoða myndlist. Reglulega dró
hann líka línu í sandinn, hætti því
sem hann var að gera í myndlistinni
og byrjaði að gera eitthvað alveg
nýtt og masteraði það algjörlega.
Oft langt á undan öllum hinum.
Hann tengir listina oft við tón-
list. Þótt hann hafi ekki verið með
okkur í tónlistinni þá var mynd-
listin eins og tónlist fyrir honum.“
Helgríma Munch
Líkt og áður kom fram lögðu Fjölnir
og bræður hans blóð svita og tár í
það að bjarga vinnustofunni. Við-
leitnin sendi hann í ævintýri yfir
haf og land, þar sem ýmsir magn-
aðir hlutir komu upp á yfirborðið.
Bragi og Erlingur vinur hans
höfðu alltaf einstaklega miklar
mætur á norska listamanninum
Edward Munch og vissu að hann
væri einn áhrifamesti listamaður
allra tíma en hann lést árið 1912.
Við dauða hans er tekin afsteypa af
andliti hans.
„Það kann að virka vanhelg-
andi að það hafi verið tekin svona
afsteypa af andliti Munch, en þetta
var algengt á sínum tíma. Þetta var
gert fyrir ástvini, til að muna eftir
hinum látna,“ segi Fjölnir.
Hann segir Braga og Erling vita
manna best hvað Munch gaf kom-
andi kynslóðum listamanna, en
á þessum tíma var hann ekki jafn
stórt nafn og hann er í dag.
„Pabbi fékk líka Munch-styrk-
inn og við fjölskyldan bjuggum í
Munch-safninu um tíma.“
Erlingur var góður vinur mynd-
höggvarans Nils Aas. Nils vann
mikið af sínum verkum í galleríinu
hans Munch og ljósmyndarinn
Tom Sandberg bjó í íbúðinni hans
um hríð.
„Nils og Erlingur voru mikið
teymi. Mér finnst ótrúlegt að Erling-
ur skuli ekki vera stærri á Íslandi, en
hér er bara svo rosalega lítill mark-
aður. Það var ekki pláss fyrir svona
stóra gaura. Hann á þrjár Stradivar-
ius. Hvernig veit fólk ekki hver þetta
er?“ segir Fjölnir og hristir hausinn.
Fjölnir grunlaus
Fyrir tæpum tveimur árum sótti
blaðamaður Erling heim ásamt
Fjölni, á heimili hans í Ósló. Ekki
bara dró hann fram Stradivariusar-
fiðluna sem hann lánaði Alexand-
er Rybak, norska keppandanum í
Eurovision, heldur prýddu veggina
verk eftir stórmenni eins og Matisse,
Míró, Toulouse-Lautrec og Picasso.
Þarna þótti ekki tímabært að fjalla
um málið.
„Ég er í raun grunlaus um hvaðan
gríman kemur og hafði ekki hug-
mynd um hvernig hún endaði í
fórum pabba. Við vissum að þetta
væri Munch, en alls ekki hvernig
pabba áskotnaðist gríman. Við
bjuggum náttúrulega á safninu
um tíma, enda eru f lestar mínar
æskuminningar af galleríum eða
listasöfnunum. En ég spyr Erling
út í grímuna eftir að pabbi deyr, og
hann segir mér allt. Hversu mikið
leyndarmál þetta var, því geri ég
mér ekki grein fyrir. En ef laust
orðið stærra og stærra eftir því
sem Munch verður þekktari,“ segir
Fjölnir.
Safnið biður Nils Aas að taka
afsteypu af upprunalega verkinu,
helgrímu Munch.
„Það var vegna þess að uppruna-
lega gríman er farin að skemm-
ast. Nils veit að enginn er betur til
verksins fallinn að hjálpa honum
en Erlingur, en eins og ég sagði þá
voru þeir svakalega mikið teymi.
Erlingur lærði náttúrulega hjá Sig-
urjóni Ólafssyni afsteyputæknina.
Erlingur er líklegast okkar besti
afsteypusnillingur, fyrr og síðar.
Nils var að vinna í öðru og bað
Erling um að ganga í verkið. Samt
er hluti af mér sem hugsar að hann
hafi mögulega verið feiminn við að
gera þetta, smá smeykur. Þannig að
Erlingur fær verkefnið.“
Erlingur staðfastur
Erlingur gerði fyrst frumgerð, sem
hann átti svo sjálfur. Síðan gerir
hann aðra fyrir safnið.
„Þegar Nils Aas sér grímuna,
hvað hún var glæsileg og friðinn
sem lá yfir henni, þá biður hann
Erling um að gera eina fyrir sig. Þá
vill Tom Sandberg endilega fá eina
fyrir sig líka, en Erlingur tekur þá
ekki annað í mál en að gera eina
fyrir pabba, enda fáir sem áttuðu
sig jafn snemma á snilli Munch og
hann. Erlingur var staðfastur í því,
að ef einhver ætti skilið að fá eintak,
þá væri það Bragi Ásgeirsson. Og allt
í einu var pabbi kominn með grím-
una og gerir út henni þetta fallega
verk.“
Vinnustofa Braga verður opnuð
almenningi í dag milli 15.00-18.00,
en þar gefst gestum færi á að sjá
dauðagrímu Munch í verki Braga.
Vinnustofan er við Austurbrún 4 í
Reykjavík, á þrettándu hæð. Verka-
safn Braga við Sundabraut 3 er einn-
ig opið á sama tíma.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9