Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 32

Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 32
Þó að Hek la sk a r t i hvítu og stirni á hana í skammdegissólinni þá er jörð auð á jafnsléttu þegar við Ernir ljós­myndari brunum upp Rangárvellina til fundar við Hörpu Rún Kristjánsdóttur. Hún á heima í Hólum og þar er sólarlaust, því sú gula hverfur yfir hádaginn bak við Bjólfellið á þessum tíma árs. En Harpa Rún tekur brosandi á móti okkur á hlaðinu, ásamt þremur hundum og í þeim fjórða heyrist að húsabaki. „Það er búið að básúna í öllum fjölmiðlum að ég sé sauðfjár­ bóndi, fólk heldur örugglega að ég sé eins og Heiða, segir hún hlæjandi. „Það er ekki þannig. Mamma og pabbi eru bændurnir en við systk­ inin búum hérna líka.“ Við byrjum á að rölta út í fjárhús sem eru steinsnar frá, þar eru lömb­ in, jórtrandi og værðarleg, en ærnar fá að vera úti fram á fengitíma, rétt fyrir jól. Útihúsin eru með hlöðn­ um veggjum. „Þessi hús eru byggð af ömmu og afa, Haraldi og Guð­ rúnu, þau hófu búskap hér 1943. Hólar voru nýbýli út úr Næfurholti, móðuramma mín var þaðan,“ upp­ lýsir Harpa Rún og bendir í átt að Næfurholti en hrauntunga skyggir á bæinn. Hlaðan er full af smáböggum. „Það var gott sumar og ekkert mál að fullþurka hey, líka miklu umhverf­ isvænna að sleppa plastinu,“ segir Harpa Rún en tekur fram að þau eigi líka rúllubagga, þeir séu einkum gefnir stórgripum. „Það er beitar­ húsabragur hjá okkur enn, fjárhúsin eru svolítið dreifð og ærnar eru í hópum. Breytingar á loftslagi valda því að það er hætt að vera sjnóþungt hér á Suðurlandi. Nokkrum dögum eftir að ég fæddist, árið 1990, kom ljósmóðir að skoða mig og hún kom á snjóbíl. Þá náði snjórinn upp á glugga hér og tröppur voru niður að bæjardyrum. Ég man líka auð­ vitað eftir snjó og ófærð en eftir að skólabíll fór að ganga er moksturinn heldur reglulegri.“ Lambgimbrarnar eru ótrúlega spakar miðað við að vera nýkomn­ ar á hús. Allar bústnar og margar mislitar. „Við erum að fjölga mis­ litu, því margt ullarvinnslufólk í kringum okkur sækist eftir þannig ull.“ Bendir á eina gimbrina. „Þessi morf lekkótta fékk hita sem ung­ lamb í vor og missti alla hvítu ullina um tíma en mórauða ullin hélt sér.“ Tókstu ekki mynd? spyr ég. „Nei, nei. Hver tekur myndir í maí?“ spyr hún á móti, hlæjandi. Vill að kindanöfn fái athygli Er ykkar fé af sérstökum stofni? „Það kemur upphaf lega úr Öræf­ unum við fjárskipti upp úr 1950, þegar allt hafði verið skorið hér niður vegna mæðiveiki,“ svarar Harpa Rún. Ég verð hálf kindarleg, segi samt ekkert fyrr en í ljós kemur að fyrsta ær móður hennar var af sömu torfu og ég því fjármarkið fylgdi með, blaðstýft framan hægra og lögg aftan vinstra. Þá get ég ekki þagað lengur – það mark er frá Hnappavöllum. „Já, Hnappa hét ein­ mitt þessi kind!,“ segir Harpa Rún. „Pabbi flutti svo hingað frá Vindási í Landsveit 1974 með sitt fé og það er búið að fá hrúta og sæða og svoleiðis þannig að allt er orðið blandað.“ Eitt af þeim verkum sem fram undan eru er að skíra lambgimbr­ arnar, að sögn Hörpu Rúnar. Skáld­ kona er nú ekki í vandræðum með að finna nöfn, segi ég. „Jú, jú, hún er það,“ svarar hún að bragði. „En við höfum alltaf skírt ærnar. Í sumum tilfellum notum við nafn kyn­ móðurinnar og skeytum öðrum nöfnum framan við. Pabbi var ein­ mitt að tala um í hádeginu að hann ætti orðið svo margar Krögur að hann væri að lenda í vandræðum, hann á Skógarkrögu og Birkikrögu og þar fram eftir götunum. Hann á líka bátakyn, Skonnortu, Snekkju, Þóftu, Ár og f leiri í þeim dúr og bróðir minn á Krúnukyn sem er Jólaklukkan inni í mér Við rætur eldfjallsins Heklu býr skáldið, bókmenntafræðingurinn og bóndinn Harpa Rún Kristjánsdóttir. Hún hlaut verð- laun sem kennd eru við Tómas Guðmunds- son í haust fyrir fyrstu ljóðabók sína, Eddu. „Ég er rosa mikið jóla- barn. Vil alltaf gera allt eins og áður, baka það sama, hafa sama skraut á sama stað og halda í hefðir,“ segir skáldið. FRÉTTABLAÐIÐ ERNIR út af kindinni sem hann fékk í tannfé. Helst þarf að láta nöfnin passa karakternum, við höfum oft átt Fjandafælu, hún þarf að líta út á sérstakan hátt. Eigum enga núna, en erum að bíða eftir að komi ný. Því nöfn erfast. Það er afleitt þegar kind drepst, eina bótin að það er hægt að nota nafnið.“ Hörpu Rún finnst að kindanöfn mættu fá meiri athygli í þjóðfélaginu. „Á degi sauð­ kindarinnar eru veitt verðlaun fyrir afurðahæstu ána og besta rækt­ unarbúið, mér finnst að það ætti að verðlauna besta nafnið. Ég væri til í að sitja í þeirri dómnefnd.“ Á leið okkar inn í bæ tökum við smá krók og heilsum upp á hrossin. Eitt er moldótt. „Þetta er Snerpa, hún er undan Kolbrá, jörpu mer­ inni hennar mömmu, og leirljósum ÞEGAR ÉG FÓR AÐ SKRIFA UM GAMLA KONU SEM VAR AÐ HÆTTA AÐ SKILJA HEIMINN ÞÁ FATTAÐI ÉG SAMHENGIÐ VIÐ BARNIÐ SEM VAR AÐ BYRJA AÐ SKILJA HEIMINN. ÞAÐ VARÐ KVEIKJAN. Framhald á síðu 30 Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.