Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 44
búa sjálfir yfir. Það er ekki alslæmt en hitt verður að vera miklu meira með. Svo má benda á að mik- ill skortur er á kenn- urum sem hafa til þess menntun og þekk- ingu að kenna raun- greinar, sérstaklega n á t t ú r u v í s i n d i . Þ et t a er m i k i l l vandi og nauðsynlegt að fjölga kennurum sem eru með raun- greinabakgrunn og hafa getu til að kenna. Það þarf að bjóða upp á starfsþróunarnámskeið í þessum greinum og laða að fólk í kennaranám með þennan bakg r unn, mög u- lega með einhvers konar umbun því að staðan er af leit eins og hún blasir við núna. Nemendur beri virðingu Spurður um stóru myndina segir Jón Pétur hana varða allt samfélag- ið. „Það tekur íslenska kennara mun meiri tíma að fá ró í kennslustund- um en kennara til dæmis á Norður- löndunum. Það gefur augaleið að þarna fer mikill tími til spillis og er örugglega hluti af þessum niður- stöðum. Virðing fyrir kennurum og því starfi sem fer fram í skólum þarf að aukast og þar geta heimilin hjálpað til með því að tala jákvætt um nám og skóla. Ísland er fámennt og enskan sækir á úr öllum áttum og íslenskir nemendur eru ekki í eins miklu íslensku málumhverfi og fyrir aðeins nokkrum árum. Lestur og hlustun barna, fyrir utan skóla, á kjarngóðan íslenskan texta hefur minnkað, til dæmis dagblöð og fréttatíma, og þeir eru meira í enskumælandi umhverfi í gegnum leiki, samfélagsmiðla og aðrar efnis- veitur. Heimilin verða að taka þátt í þessu með skólunum. Þar verður fólk að gefa sér tíma til að tala saman um fréttir dagsins, lesa saman og velta fyrir sér hugtökum og orðasamböndum. Samveru- stundir við kvöldmatinn eða spil gætu verið góður vettvangur fyrir samtal þar sem nýr orðaforði lær- ist,“ segir Jón Pétur. „Samantekið þyrfti það að liggja skýrar fyrir hvaða orðaforða og hugtök nemendur ættu að hafa á valdi sínu, í námskrá, í hverri námsgrein við lok grunnskóla og gott námsefni ætti að vera til að styðja það nám. Skólar ættu að geta fengið endurgjöf á stöðuna eins oft og þeir kjósa með aðgangi að góðu námsmati til dæmis hjá Mennta- málastofnun í sem flestum náms- greinum. Fjölga þarf kennurum með raungreinabakgrunn, bæði með starfsþróun kennara og jafnvel jákvæðri mismunun hvað kennara- nám varðar. Allir skólar og heimili ættu að vera bandamenn hvað nám nemenda varðar og það viðhorf að allir skipti máli og allir geti lært og bætt sig ætti að vera ríkjandi.“ Íslenskan deyi ekki Jón Pétur telur nauðsynlegt að ytra mat og stuðningur yfirvalda þurfi að aukast og batna. Foreldrar og nemendur skilji illa námsmat aðal- námskrár. „Þetta þarf að laga. Við erum með samræmdan námstíma, tíu ár, samræmda námskrá og þá, hvers vegna ekki, gott og áreiðan- legt samræmt námsmat þar sem reynir á það sem skólar eiga að sinna samkvæmt námskrá? Sú gagnrýni hefur komið fram að þá verði bara kennt fyrir samræmt námsmat, þá segi ég að við höfum það mat þannig úr garði gert að það reyni á beitingu þekkingar líkt og PISA og viðurkennum að það mæli ekki allt það sem gert er í skólanum og tökum því sem slíku. En gott og vandað samræmt námsmat verður ekki vont bara af því það er sam- ræmt. Við Íslendingar verðum að gæta að okkur þannig að íslenska Framhald af síðu 38 upp lesskilning í allt að áratug. Það er ekki fyrr en í næsta eða þarnæsta PISA-prófi sem hægt er að dæma um hvort læsisátakið hafi skilað árangri,“ segir Eiríkur og segir athyglisvert að lesskilningurinn sé sér á báti í þessu. Útkoman í stærð- fræði og náttúrufræði sé svipuð og síðast eða aðeins skárri. Veikari staða íslenskunnar „Þetta vekur þá spurningu hvort útkoman í lesskilningsprófinu endurspegli fyrst og fremst veikari stöðu íslenskunnar í málsamfélaginu á síðustu árum en áður – sem ýmsar vísbendingar eru um. Það hefur margsinnis verið bent á það hvernig sam- félags- og tæknibreyt- ingar hafa þrengt a ð í s l e n s k u n n i undanfarinn ára- tug. Börn og ungl- ingar eru í miklu meiri tengslum en áður við enskan málheim og lesa minna á íslensku. Það getur leitt til þess að þau tileinki sér ekki ýmis orð og setningagerðir sem eru for- senda þess að skilja fjölbreytta texta til hlítar,“ segir Eiríkur og segir þróunina ekki eiga að koma á óvart en kalla á önnur viðbrögð en ef um væri að ræða tæknileg atriði varðandi læsi. „Áðurnefnt læsisátak er ugglaust gott og gilt en það er samt hætt við að það skili litlu ef ekki er um leið hugað að því að styrkja stöðu íslenskunnar í samfélaginu, ekki síst meðal barna og unglinga. Til þess þarf margvís- legar aðgerðir og það er mikilvægt að ráðast að rótum vandans, og fráleitt að varpa allri ábyrgðinni á skólakerfið eða kenna því um stöðuna. Máltækniátak er í gangi og ætti að bæta stöðuna að einhverju leyti, en það þarf líka að stórauka útgáfu á góðu lestrarefni fyrir börn og unglinga, framleiðslu á íslensku sjónvarps- og margmiðlunarefni, tölvuleikjagerð á íslensku, og fleira. Til að byggja upp traust málkerfi barna á máltökuskeiði skiptir öllu máli að tala sem mest við börnin, lesa fyrir þau og lesa með þeim, og láta þau lesa sjálf þegar þau hafa aldur til. En þetta dugar ekki til þegar kemur að því að þjálfa les- skilning, eins og hann er mældur til dæmis í PISA-prófinu. Verkefni foreldra og samfélags Til að öðlast góðan lesskilning þurfa börnin að læra annars konar orðaforða en fæst með venjulegum yndislestri og ná valdi á fjölbreytt- ari og f lóknari setningagerðum en notaðar eru í samtölum og afþrey- ingarefni. Þennan orðaforða og þessar setningagerðir þarf að kenna sérstaklega, með því að láta börn og unglinga lesa viðeigandi texta. Ef við viljum bæta lesskilning ungs fólks er forgangsverkefni að ef la rannsóknir á íslenskum orðaforða og setningagerð – setja fram rök- studd viðmið um það hvaða orða- forða og hvaða setningagerðir hver aldurshópur þarf að hafa á valdi sínu, og útbúa síðan viðeigandi kennsluefni fyrir hvern aldurshóp,“ segir Eiríkur og leggur áherslu á það að ábyrgð á úrbótum verði ekki lögð á skólakerfið eitt og sér. „Þetta er ekki síður verkefni for- eldra og annarra uppalenda, og samfélagsins í heild. Það er mjög mikilvægt að auka íslenskukennslu í skólum og endurskoða námsefni eins og mennta- og menningar- málaráðherra vill gera, en það dugir skammt ef grundvöllurinn, sem er lagður á máltökuskeiði á fyrstu árum barnsins, er of veikur. Samtal foreldra og barna, og lestur fyrir börn og með börnum, er frum- forsendan. Ef þessi grundvöllur er sterkur getur skólakerfið byggt ofan á hann og eflt lesskilning. En þá skiptir máli að kennslutíminn sé nýttur vel – ekki í ófrjóa grein- ingarvinnu eða vonlausa baráttu við langt gengnar málbreytingar, heldur í lestur hvers kyns texta, eflingu orðaforða og þjálfun í ritun og munnlegri tjáningu.“ deyi ekki út og að stéttaskipting aukist enn frekar þar sem sumir hafa í gegnum menntun, þar sem lítil trygging er fyrir að allir öðlist grunnþekkingu, auknar líkur á lífsgæðum. Við verðum, í gegnum skólana og heimilin, að tryggja það að allir hafi jöfn tækifæri til mennt- unar og að hafa það í huga að allir geta lært og allir skipta máli.“ Upphrópanir og dramatík hjálpa ekki Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Anna Kristín segir alla umræðu um skólamál af hinu góða og eiga ávallt að vera efst á baugi í sam- félagslegri umræðu. „Það er mikil- vægt að umræðan sé málefnaleg og á faglegum nótum. Upphrópanir og dramatík hjálpa ekki, þar sem gjarna er reynt að finna sökudólga eða settar fram einfaldar lausnir. Niðurstöður PISA benda ekki endilega til að það þurfi að ráðast í stórtækar breytingar á íslensku menntakerfi, en það þarf engu að síður að gera ákveðnar breytingar. Og þá er nauðsynlegt að horfa til f leiri rannsókna. Sátt þarf að vera um breytingar sem ættu að byggja á langtímamarkmiðum og beinast að mörgum þáttum, en þá fyrst og fremst því sem gerist í skólastof- unni, meðal annars kennsluháttum, námsefni, aðferðum í námsmati og þeim aðstæðum sem kennurum er búin, innan og utan skólans, til að sinna starfinu eins vel og þeir vilja,“ segir Anna Kristín og segir myndina stærri en oft sé látið í veðri vaka. „Foreldrar og fjölskyldur eru óumdeilanlega stærsti áhrifavaldur þegar kemur að námsárangri, upp- eldi og vellíðan barna. Börnin koma með ákveðið veganesti í skólann sem kennurum er ætlað að vinna úr og að sama skapi hefur það sem gerist í skólanum áhrif á það sem gerist heima. Því er mjög brýnt að heimili og skóli vinni vel saman og má segja að þar séu tækifæri til umbóta. En til að stækka myndina enn meira hafa margir samfélagslegir þættir áhrif bæði á fjölskyldur og skólann, þessi áhrif geta verið bæði hamlandi og hvetjandi. Hér er til dæmis átt við tómstundastarf, almennan stuðn- ing við fjölskyldur, áhuga yfirvalda á uppeldis- og menntamálum og faglega og fjárhagslega getu þeirra til að standa vel að þessum málum. Því þarf víðtæka samstöðu um gildi menntunar og skólastarfs og heil- tæka nálgun þar sem reynt er að ná ákveðinni samvirkni,“ segir Anna Kristín og bendir á að margt sé vel gert í íslensku skólastarfi. „Og þarf að gæta þess að spilla því ekki þegar aðgerðir til umbóta eru ákvarðaðar. En ef eingöngu er rýnt í niðurstöður PISA má álykta að helsti vandi íslenskra ungmenna birtist í því að draga ályktanir, túlka upplýsingar, greina, yfirfæra og rök- styðja. Hér er ekki bara átt við les- skilning heldur skilning almennt,“ bendir hún á og segir að í því tilliti hjálpi ekki eingöngu að lesa meira og lesa hraðar, þótt það sé líka mikilvægt. Efling vísindalegrar hugsunar „Það má líta á þetta sem áskorun um að efla vitsmunalega hæfni eða jafnvel vísindalega hugsun, sem er miklu dýpra heldur en tæknin við að lesa. Til að gera það þarf að hugsa bæði djúpt og vítt. Kennarar í öllum námsgreinum og á öllum aldursstigum ættu að beita kennsluháttum sem eru lík- legir til að styrkja vitsmunalega hæfni og þroska nemenda sinna. Námsefni og námsmat þarf að rýna til samræmis við þetta og end- urskoða inntak í kennaramenntun, starfsþróun kennara og öðru stuðn- ingskerfi skólanna. Foreldrar og reyndar samfélagið allt ætti að huga að hvers konar við- fangsefni börnin fást við í frítíma sínum, hvernig samræður þau eiga við fullorðna, hvaða myndefni þau horfa á og hvað fjölskyldan gerir saman. Þá þarf að huga að því hvaða viðfangsefni eru í boði í frístunda- starfi, hvernig aðgengi barna er að tónlistarnámi, bókum, leikhúsum og svo framvegis. Þetta hangir allt saman. Ef börnin skilja ekki náms- efnið hefur kennarinn tilhneigingu til að velja einfaldari texta eða við- fangsefni. Kennarar og stjórnendur eru lykilaðilar í að bæta skólastarf, þeir þekkja sinn nemendahóp best. Aðgerðir til umbóta ættu að miðast að því að næra og styrkja það starf sem fram fer í skólastofunni, en út frá mörgum sjónarhornum. Það er síðan samfélagslegt verkefni að hlúa að börnum og ungu fólki og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu.“ Anna Kristín segir að lengi hafi verið litið svo á að það ríki mikill jöfnuður á Íslandi þegar kemur að menntun barna. „Og vissulega má segja að það sé rétt út frá ákveðnu sjónarhorni. Það er til að mynda minni munur á milli skóla en birtist í mörgum öðrum löndum. En það eru engu að síður blikur á lofti. Það má segja að sá munur sem birtist á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðar gefi ekki til kynna jöfn tækifæri til náms,“ segir Anna Kristín, sem segir þó erfitt að segja til um ástæður þessa. „Þær eru margar og jafnvel ólíkar á milli hópa og á milli svæða. Nýleg- ar íslenskar rannsóknir, unnar undir handarjaðri Berglindar Rósar Magnúsdóttur, benda til að aukinn munur á árangri nemenda birtist á milli svæða innan höfuðborgar- svæðisins. Það má spyrja hvort þarna komi í ljós munur á milli þjóðfélagshópa fremur en land- svæða. Þetta þarf að rýna betur. Það má einnig benda á mikinn aðstöðu- mun skóla eftir staðsetningu þegar kemur að stuðningi og faglegri for- ystu. Þarna hefur dregið í sundur milli landsbyggðar og höfuðborgar- svæðis frá því að ábyrgð á rekstri grunnskólans var færð frá ríkinu til sveitarfélaga fyrir rúmum 20 árum. Stærri sveitarfélög hafa sum hver byggt upp öfluga stoðþjónustu við sína skóla og kennara á meðan önnur hafa ekki haft tök á því, með þeim af leiðingum að skólastjórn- endur og kennarar standa svolítið einir,“ segir Anna Kristín og segir að hvað sem öðru líði verði góður skóli ekki til vegna einstaklingsframtaks. „Heldur þess sem hópurinn gerir, hann verður til með samvirkum aðferðum kennara, stjórnenda, foreldra, yfirvalda og annarra sem koma að skólastarfinu.“ Börn í enskum málheimi Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emerítus við Háskóla Íslands Eiríkur segir umræðu um niður- stöðu í PISA í stíl við íslenska umræðuhefð á mörgum sviðum. „Það er auðvitað alvarlegt mál að útkoma íslenskra unglinga á les- skilningspróf i fari versnandi. Umræðan er hins vegar í stíl við íslenska umræðuhefð á mörgum sviðum. Hún gýs upp á þriggja ára fresti þegar niðurstöður prófsins birtast og þá vill fólk grípa til skyndilausna til að bæta ástandið. Það eru sett af stað átaksverkefni sem eiga að kippa þessu í lag á stutt- um tíma, og nú skilja margir ekkert í því að læsisátakið sem var sett af stað eftir síðasta PISA-próf skuli ekki skila sér í bættum árangri. En eins og forstjóri Menntamála- stofnunar og f leiri hafa bent á eru engar skyndilausnir til – það tekur tíma að snúa þróuninni við. Nem- endurnir sem taka PISA-prófið hafa verið að tileinka sér lestur og byggja 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.