Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 47

Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 47
Að líða vel í eigin skinni og vera sáttur við sjálfan sig er eftirsóknarvert en við eigum kannski misauðvelt eða -erfitt með að komast á þann stað. Þegar við viljum bæta heilsufar og vellíðan almennt er gott að huga vel að nokkrum grundvall- aratriðum sem geta skipt sköpum varðandi árangursríkt framhald. Jafnvægi á líkama og sál Það skiptir öllu máli að andleg líðan sé góð en þegar við erum ekki í góðu jafnvægi getur verið erfitt að koma mataræðinu í gott horf og svo öfugt. Við verðum að fara yfir nokkra þætti sem skipta okkur öll miklu máli og finna hvar þarf að laga hlutina til að vera í jafnvægi en þetta eru atriði eins og: n Sambönd (hjónaband, fjölskylda og vinir) n Atvinna – erum við sátt? n Fjármál / fjármálaáhyggjur n Hreyfing n Andleg líðan Samhliða skoðum við svo mataræðið og fyrstu skrefin þar snúast alltaf um það að taka út óæskilega næringu eins og sykur, unna matvöru og þau matvæli sem valda vanlíðan ásamt því að koma reglu á máltíðir. Meltingin er grunnurinn Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur og betur hversu mikil- vægt það er að hafa meltingar- færin í lagi og hvaða áhrif þarma- f lóran hefur bæði á líkamlega og andlega líðan. Að auki spilar hún stórt hlutverk í að viðhalda öf lugu ónæmiskerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næringarefnin frásogist en til þess að það gerist þarf þarmaf lóran að vera í jafnvægi. Meltingarfærin eru því það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel því um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum kemst betra jafnvægi á og höfum við stigið stórt skref í átt að heil- brigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunninum. Því traustari og vel gerðari sem grunnurinn er, þeim mun auð- veldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Núna er tíminn til að njóta Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem best er að skipta niður í mörg lítil verkefni. Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og mjólkursýrugerla verður það árangursríkara. Til að koma sér af stað á morgnana getur hentað vel að gera sér góðan grænan drykk fullan af næringarefnum. Grænn og vænn 1 lúka blönduð græn blöð, spín- at eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk Ýmislegt má svo nota til að „poppa drykkinn aðeins upp“ en það getur verið smá kanill, turmerik, 1 msk. hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða tvær döðlur til að sæta aðeins. Berja- drykkir eru líka góðir og um að gera að finna hvað hentar.“ Góður og grænn á morgnana Til að koma sér af stað á morgnana getur hentað vel að gera sér góðan grænan drykk fullan af næringar- efnum og trefjum sem er gott fyrir meltinguna. Vel samsettir drykkir hafa líka jákvæð áhrif á blóð- sykurinn og hjálpa í baráttunni við sykurpúkann. Það þarf ekki að vera flókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2-3 mínútur. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efnaskiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna að finna og flytja ensím til meltingarvegarins en hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir. Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímaskortur getur lýst sér í eftirfarandi hátt: n Brjóstsviði n Vindverkir n Uppþemba n Kviðverkir og ógleði n Bólur n Nefrennsli n Krampar í þörmum n Ófullnægt hungur n Exem n Höfuðverkur n Skapsveiflur n Liðverkir n Húðkláði n Húðroði n Svefnleysi Það er alltaf mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat og fjöl- margir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auðvelda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er einnig grundvallaratriði í átt að heil- brigðari lífsstíl. Meltingarensímin frá Enzymedica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrúleg- ustu óþægindi. Aðferð við vinnslu á ensímunum kallast Thera-Blend og er það einkaleyfisvarin aðferð sem gerir þeim kleift að vinna á mismunandi pH-gildum í líkam- anum og gerir þau mun öflugri en önnur meltingarensím. Öflugasta viðbótin Fyrir utan bæði D-vítamín og ómega-3 fitusýrur, sem er okkur lífsnauðsynlegt, mælum við með að taka inn öfluga mjólkur- sýrugerla. Það er stöðugt álag á meltingu okkar og atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffín geta valdið því að þarma flóran er ekki í góðu jafnvægi. Bio Kult mjólkursýrugerl- arnir eru mjög öflugir og til að efla ónæmiskerfið enn frekar núna þegar kvef og pestir herja á okkur getur Bio Kult Candéa hjálpað mikið til. Auk sjö gerlastofna inni- heldur Candéa hvítlauk, sem er þekktur fyrir bakteríudrepandi eiginleika og er því öflugur fyrir ónæmiskerfið, og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem inniheldur öflug efnasambönd sem talin eru vinna gegn fjölmörgum bakteríu- tegundum, veirum og sveppum. Ávísun á betri líðan Byrjum árið vel og gerum smá aðgerðaplan. Tökum út sykurinn með hjálp græna drykkjarins til að byrja með og hugum svo að mataræðinu ásamt því að fara almennt yfir líðan okkar í leik og starfi. Vel valin bætiefni geta styrkt og auðveldað ferlið. Hér eru svo nokkrar reglur sem hægt er að hafa til hliðsjónar: n Borðum mat sem við eigum auðvelt með að melta n Borðum reglulega og ekki eftir kvöldmat n Drekkum áfengi í hófi n Neytum sykurs í hófi n Sleppum unnum matvælum n Munum að drekka vatn á milli mála n Tryggjum góðan svefn n Forðumst streitu n Ræktum líkama og sál Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra. Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Hair Volume – fyrir líflegra hár Aldrei haft jafn þykkt hár. – Edda Dungal Falleg gjöf sem gleður FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.