Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 47
Að líða vel í eigin skinni og vera sáttur við sjálfan sig er eftirsóknarvert en við
eigum kannski misauðvelt eða
-erfitt með að komast á þann stað.
Þegar við viljum bæta heilsufar
og vellíðan almennt er gott að
huga vel að nokkrum grundvall-
aratriðum sem geta skipt sköpum
varðandi árangursríkt framhald.
Jafnvægi á líkama og sál
Það skiptir öllu máli að andleg
líðan sé góð en þegar við erum
ekki í góðu jafnvægi getur verið
erfitt að koma mataræðinu í gott
horf og svo öfugt. Við verðum að
fara yfir nokkra þætti sem skipta
okkur öll miklu máli og finna hvar
þarf að laga hlutina til að vera í
jafnvægi en þetta eru atriði eins
og:
n Sambönd (hjónaband,
fjölskylda og vinir)
n Atvinna – erum við sátt?
n Fjármál / fjármálaáhyggjur
n Hreyfing
n Andleg líðan
Samhliða skoðum við svo
mataræðið og fyrstu skrefin þar
snúast alltaf um það að taka út
óæskilega næringu eins og sykur,
unna matvöru og þau matvæli sem
valda vanlíðan ásamt því að koma
reglu á máltíðir.
Meltingin er grunnurinn
Nýjustu rannsóknir staðfesta
alltaf betur og betur hversu mikil-
vægt það er að hafa meltingar-
færin í lagi og hvaða áhrif þarma-
f lóran hefur bæði á líkamlega og
andlega líðan. Að auki spilar hún
stórt hlutverk í að viðhalda öf lugu
ónæmiskerfi. Við þurfum að geta
brotið fæðuna vel niður til að
næringarefnin frásogist en til þess
að það gerist þarf þarmaf lóran að
vera í jafnvægi.
Meltingarfærin eru því það
fyrsta sem við þurfum að huga að
til að geta nærst vel því um leið
og upptakan er góð og við skilum
frá okkur eðlilegum hægðum
kemst betra jafnvægi á og höfum
við stigið stórt skref í átt að heil-
brigðara lífi. Það má líkja þessu
við að við séum að byggja hús og
við byrjum á grunninum.
Því traustari og vel gerðari sem
grunnurinn er, þeim mun auð-
veldara verður að byggja ofan á
þannig að allt haldi vel.
Núna er tíminn til að njóta
Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem best er að skipta niður í mörg lítil verkefni.
Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og mjólkursýrugerla verður það árangursríkara.
Til að koma sér af stað á morgnana getur hentað vel að gera sér góðan grænan drykk fullan af næringarefnum.
Grænn og vænn
1 lúka blönduð græn blöð, spín-
at eða grænkál
½-1 banani (má vera frosinn)
1 bolli frosið mangó eða t.d.
ananas
1-2 cm engifer
Smá sítrónusafi
1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu-
eða haframjólk
Ýmislegt má svo nota til að
„poppa drykkinn aðeins upp“
en það getur verið smá kanill,
turmerik, 1 msk. hörfræ eða
chiafræ, smá epladjús eða tvær
döðlur til að sæta aðeins. Berja-
drykkir eru líka góðir og um að
gera að finna hvað hentar.“
Góður og grænn á morgnana
Til að koma sér af stað á morgnana
getur hentað vel að gera sér góðan
grænan drykk fullan af næringar-
efnum og trefjum sem er gott fyrir
meltinguna. Vel samsettir drykkir
hafa líka jákvæð áhrif á blóð-
sykurinn og hjálpa í baráttunni
við sykurpúkann. Það þarf ekki
að vera flókið að skella í góðan
drykk og tekur varla meira en 2-3
mínútur.
Þreyta eftir máltíðir
Ensím eru nauðsynleg í öllum
efnaskiptum í líkamanum en í
hráu fæði eru ensím sem verða
óvirk við eldun. Þegar við borðum
eldaðan og unninn mat notar
líkaminn orkuna að finna og
flytja ensím til meltingarvegarins
en hver hefur ekki fundið fyrir
þreytu eftir stórar máltíðir. Með
hækkandi aldri gerist það líka að
framleiðsla ensíma í líkamanum
minnkar en ensímaskortur getur
lýst sér í eftirfarandi hátt:
n Brjóstsviði
n Vindverkir
n Uppþemba
n Kviðverkir og ógleði
n Bólur
n Nefrennsli
n Krampar í þörmum
n Ófullnægt hungur
n Exem
n Höfuðverkur
n Skapsveiflur
n Liðverkir
n Húðkláði
n Húðroði
n Svefnleysi
Það er alltaf mikilvægt að borða
„lifandi fæðu“ eins og grænmeti og
ávexti með elduðum mat og fjöl-
margir hafa einnig fundið lausn í
að taka inn meltingarensím til að
auðvelda líkamanum verkið og
nýta fæðuna betur. Þetta er einnig
grundvallaratriði í átt að heil-
brigðari lífsstíl. Meltingarensímin
frá Enzymedica eru tekin inn með
mat og hafa losað fólk við ótrúleg-
ustu óþægindi. Aðferð við vinnslu
á ensímunum kallast Thera-Blend
og er það einkaleyfisvarin aðferð
sem gerir þeim kleift að vinna á
mismunandi pH-gildum í líkam-
anum og gerir þau mun öflugri en
önnur meltingarensím.
Öflugasta viðbótin
Fyrir utan bæði D-vítamín og
ómega-3 fitusýrur, sem er okkur
lífsnauðsynlegt, mælum við
með að taka inn öfluga mjólkur-
sýrugerla. Það er stöðugt álag á
meltingu okkar og atriði eins og
streita, lyf, áfengi, sykur og koffín
geta valdið því að þarma flóran er
ekki í góðu jafnvægi.
Bio Kult mjólkursýrugerl-
arnir eru mjög öflugir og til að efla
ónæmiskerfið enn frekar núna
þegar kvef og pestir herja á okkur
getur Bio Kult Candéa hjálpað
mikið til. Auk sjö gerlastofna inni-
heldur Candéa hvítlauk, sem er
þekktur fyrir bakteríudrepandi
eiginleika og er því öflugur fyrir
ónæmiskerfið, og GSE (Grapefruit
Seed Extract) sem inniheldur
öflug efnasambönd sem talin eru
vinna gegn fjölmörgum bakteríu-
tegundum, veirum og sveppum.
Ávísun á betri líðan
Byrjum árið vel og gerum smá
aðgerðaplan. Tökum út sykurinn
með hjálp græna drykkjarins til
að byrja með og hugum svo að
mataræðinu ásamt því að fara
almennt yfir líðan okkar í leik
og starfi. Vel valin bætiefni geta
styrkt og auðveldað ferlið.
Hér eru svo nokkrar reglur sem
hægt er að hafa til hliðsjónar:
n Borðum mat sem við eigum
auðvelt með að melta
n Borðum reglulega og ekki eftir
kvöldmat
n Drekkum áfengi í hófi
n Neytum sykurs í hófi
n Sleppum unnum matvælum
n Munum að drekka vatn á milli
mála
n Tryggjum góðan svefn
n Forðumst streitu
n Ræktum líkama og sál
Sölustaðir: Flest apótek, heilsu-
búðir og heilsuhillur verslana.
Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru
mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða
Hair Volume – fyrir líflegra hár
Aldrei haft jafn þykkt hár.
– Edda Dungal
Falleg gjöf sem gleður
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9