Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 48
Ég á margar minn-
ingar tengdar
bókalestri, sem stafar
kannski helst af því að
pabbi var alltaf með
einhverja stæla þegar
hann var að lesa.
Börnin fjögur, Dagur Ari 19 ára, Styrkár Flóki 10 ára, Bríet Magnea 9 ára og Hólmfríður
Helga 7 ára, hafa mikinn áhuga
á bókum og lestri enda hefð að
þau fái bók í jólagjöf . Hann lítur á
lesturinn sem samverustund en er
einnig sannfærður um að það að
lesa fyrir börn skili sér í auknum
áhuga og færni í lestri.
Hvenær lest þú fyrir börnin þín?
Við lesum fyrst og fremst
saman á kvöldin. Eldri börnin eru
reyndar hætt að vilja vera með og
lesa sjálf. Þau hafa líka sinn smekk
og ekki auðvelt að finna bók sem
allir vilja lesa.
Einhverjar uppáhaldsbækur hjá
þeim?
Litlu börnin lesa öll töluvert af
Andrési Önd. Hann er lesinn hvern
einasta dag. Styrkár hefur undan-
farið lesið bækur Phillips Pullman
en áður plægði hann sig í gegnum
allar Harry Potter bækurnar. Ég er
frekar feginn því að hann vill lesa
þær einn, ég var ekki hrifinn þegar
ég þurfti að lesa þetta fyrir eldri
strákinn. Stelpurnar hafa ekki jafn
skýra stefnu í sínum lestri.
Lestu fyrir þau öll í einu eða ertu
með bók í gangi fyrir hvert um sig?
Þau eru hvert með sína bókina.
Það er orðið frekar langt síðan þau
gátu sammælst um kvöldlestur-
inn. Þó að aldursmunurinn sé ekki
svo mikill þá fór furðufljótt að
bera á meiningarmun í bókavali.
Hvað eruð þið að lesa núna?
Yngsta barnið hefur verið mjög
hrifið af Allir eru með rass. Sú bók
hefur verið töluvert til skoðunar
upp á síðkastið.
Var mikið lesið fyrir þig sem
barn?
Já, það er alveg óhætt að segja
það. Ég á margar minningar
tengdar bókalestri, sem stafar
kannski helst af því að pabbi var
alltaf með einhverja stæla þegar
Jólastemning lyftir andanum
Snorri Stefánsson lögmaður hefur alltaf lesið mikið fyrir börnin þeirra Lífar Magneudóttur
borgarfulltrúa enda mikill bókamaður sjálfur. Hann lítur á lesturinn sem samverustund þeirra.
Sögustund í stofunni við jólatréð. Snorri Stefánsson lögmaður með tveimur börnum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er sko vel hægt að detta niður í skemmtilegar bækur fyrir jólin eða taka upp einhverjar gamlar og góðar.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
hann var að lesa. Breytti til að
mynda oft nöfnum við mismiklar
vinsældir. Maður erfir svo alla
stælana en þeir hafa ekki truflað
mín börn af einhverjum ástæðum.
Þau hafa sennilega meira lang-
lundargeð.
Einhverjar uppáhaldsbækur sem
þú manst eftir?
Kalli og Kata voru lengi í uppá-
haldi þegar ég var yngri og svo
Einar Áskell. Ég man enn þá að það
má ekki leika sér með sögina!
Lestu uppáhaldsbækurnar þínar
fyrir börnin þín?
Bæði Kalli og Kata og Einar
Áskell hafa verið lesin fyrir börnin.
Reyndar eigum við mun stærra
safn af þessum ritröðum en fyrir-
fundust á mínu æskuheimili.
Hvaða máli skiptir að lesa fyrir
börn?
Ég hef almennt litið á þetta
sem samverustund og tilraun til
þess að koma börnunum í ró fyrir
svefninn en ég er líka sannfærður
um að þetta skili sér í auknum
áhuga og færni í lestri.
Lesið þið Jólin koma fyrir jólin
eða einhverjar aðrar jólabækur?
Það hafa engar jólabækur orðið
að föstum lið hjá okkur. Á mínu
æskuheimili var alltaf lesin bókin
Jólasveinarnir á Korvafjalli og
önnur um jólasveinana sem ég
man nú ekki hvað heitir í svipinn.
Hvað annað gerið þið á aðvent-
unni?
Ég er mjög innstilltur á að njóta
á aðventunni. Þess vegna hef ég
alltaf tilbúnar smákökurnar fyrir
fyrsta sunnudag í aðventu. Mér
finnst mjög jólalegt að drekka
kakó og borða smákökur. Við
erum svo farin að skreyta frekar
snemma til að hafa meiri ljós í
skammdeginu. Það lyftir soldið
andanum að teygja jólastemm-
inguna út desember.
Eru börnin búin að óska sér ein-
hverra bóka í jólagjöf?
Já, þau hafa öll útbúið sér-
staka óskalista sem meðal annars
tilgreina þær bækur sem þau
vilja helst. Allt mjög ítarlegt og
nákvæmt.
Heldurðu að þau fái þær?
Ég yrði mjög hissa ef þau fengju
engar bækur en það má kannski
ekki ljóstra neinu upp að svo
stöddu.
Langar þig í einhverja bók í jóla-
gjöf?
Ég hef verið mjög duglegur við
að fylgjast með bókaútgáfunni
fyrir þessi jól og hef farið í nokkur
útgáfuhóf þannig að ég er sæmi-
lega birgur af nýjustu bókunum nú
þegar. Það eru þó enn einhverjar
sem ég hef ekki komist í.
Heldurðu að þú fáir hana?
Ég yrði mjög hissa ef ég fengi
enga bók. Blessunarlega fæ ég
reyndar fáar gjafir, ég kann betur
við að vera á hinum endanum.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
SMART FÖT, FYRIR SMART KONUR
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
FLOTT JÓLAFÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R