Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 50

Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 50
Verslunin hefur fengið nýja sendingu af ofboðslega fal-legum sparifatnaði í öllum stærðum. „Við skvísurnar erum í miklu jólaskapi þessa dagana. Í dag lengist opnunartíminn hjá okkur og verður opið til klukkan 22 alla daga fram að jólum,“ segir Sigrún Waage, verslunarstjóri ZikZak í Kringlunni. „Við erum spenntar að taka á móti öllum í öngþveitinu þessa dagana og bjóða okkar framúrskarandi þjónustu við val á jóladressi eða að aðstoða við jólagjafainnkaupin. Þetta er okkur svo eðlilegt að aðstoða konur við að finna það sem hentar þeim fyrir hátíðirnar. Konur hafa mismun- andi þarfir og smekk fyrir fatnaði og því er alltaf gaman þegar við náum í sameiningu að finna rétta dressið fyrir þær.“ Nú er verslunin komin í spari- búninginn og úrvalið af sparifatn- aði er hreint út sagt stórglæsilegt en sjón er sögu ríkari. „Við sjáum að vínrauður, rauður, dökkblár og silfur eru vinsælustu litirnir í ár,“ segir Sigrún. „Velúrkjólarnir okkar eru ofboðslega vinsælir. Við erum með nokkur snið í þeim, meðal annars A-sniðs kjól. A-sniðs kjólarnir eru vinsælastir en allir kjólarnir eru alveg einstaklega hátíðlegir og fallegir.“ Sigrún segir einnig orðið vinsælt að vera í kósí sparibuxum þar sem hægt er að leika sér mikið með efri partinn. Til dæmis að nota við þær sparitopp, blússu, skyrtu, peysu og fleira. Vikulega fram að jólum verða nýjar vörur í ZikZak. Því ætti alltaf að vera hægt að finna eitthvað nýtt og ferskt þar í hvert sinn sem komið er í búðina. Á heimasíðu verslunarinnar, zikzakverslun.is, er einnig hægt að skoða allt það fallega úrval sem þar er í boði og versla hvar og hvenær sem er. „Við hvetjum fólk til að vera tímanlega að panta, svo hægt sé að skila og skipta fyrir jól,“ segir Sigrún. „Það sem er vinsælast í jóla- pakkann eru fyrst og fremst gjafa- bréfin okkar ásamt vinsælu Jessicu úlpunum okkar,“ segir Sigrún. „Sillu buxurnar okkar eru einnig vinsælar í jólapakkann svo er bara svo margt fallegt hjá okkur núna. Við hvetjum því alla til að koma og fá aðstoð við að finna eitthvað fallegt fyrir sína nánustu.“ Nú á dögunum hittist starfsfólk ZikZak og skemmti sér konunglega við föndurgerð. „Við föndruðum allar okkar eigin jólakrans. Við föndruðum einn auka því okkur langar að gleðja einn góðan við- skiptavin og gefa honum krans. Til þess að eiga möguleika á að vinna jólakrans ZikZak er hægt að taka þátt á Facebook síðu verslunarinn- ar undir nafninu Tískuhús ZikZak,“ segir Sigrún að lokum. Stórglæsilegt úrval af sparifatnaði Nú fer að líða að jólum og áður en við vitum af er jólahátíðin gengin í garð og tími til að njóta með okkar nánustu. Það er sannkölluð jólastemning í ZikZak og skartar verslunin sínu fegursta. Sigrún Waage segir velúrkjólana ofboðslega vinsæla. Þeir fást í mörgum sniðum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það er vinsælt að vera í kósí sparibuxum og blússu við. Í ZikZak er úrval af sparitoppum í fallegum litum. Þægileg og sparileg blússa við teygjanlegar sparibuxur sem eru góðar fyrir jólaboðin. Það er hægt að leika sér með alls kyns toppa við sparibuxur. Starfsfólk ZikZak bjó til nokkra jólakransa. Einn hepp- inn vinur ZikZak á Facebook getur unnið þennan krans. A-sniðs kjólarnir eru vinsælastir en allir kjólarnir eru alveg einstaklega hátíðlegir og fallegir 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.