Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 50
Verslunin hefur fengið nýja sendingu af ofboðslega fal-legum sparifatnaði í öllum
stærðum. „Við skvísurnar erum í
miklu jólaskapi þessa dagana. Í dag
lengist opnunartíminn hjá okkur
og verður opið til klukkan 22 alla
daga fram að jólum,“ segir Sigrún
Waage, verslunarstjóri ZikZak í
Kringlunni. „Við erum spenntar
að taka á móti öllum í öngþveitinu
þessa dagana og bjóða okkar
framúrskarandi þjónustu við val
á jóladressi eða að aðstoða við
jólagjafainnkaupin. Þetta er okkur
svo eðlilegt að aðstoða konur við
að finna það sem hentar þeim fyrir
hátíðirnar. Konur hafa mismun-
andi þarfir og smekk fyrir fatnaði
og því er alltaf gaman þegar við
náum í sameiningu að finna rétta
dressið fyrir þær.“
Nú er verslunin komin í spari-
búninginn og úrvalið af sparifatn-
aði er hreint út sagt stórglæsilegt
en sjón er sögu ríkari. „Við sjáum
að vínrauður, rauður, dökkblár
og silfur eru vinsælustu litirnir í
ár,“ segir Sigrún. „Velúrkjólarnir
okkar eru ofboðslega vinsælir. Við
erum með nokkur snið í þeim,
meðal annars A-sniðs kjól. A-sniðs
kjólarnir eru vinsælastir en allir
kjólarnir eru alveg einstaklega
hátíðlegir og fallegir.“ Sigrún segir
einnig orðið vinsælt að vera í kósí
sparibuxum þar sem hægt er að
leika sér mikið með efri partinn. Til
dæmis að nota við þær sparitopp,
blússu, skyrtu, peysu og fleira.
Vikulega fram að jólum verða
nýjar vörur í ZikZak. Því ætti alltaf
að vera hægt að finna eitthvað
nýtt og ferskt þar í hvert sinn sem
komið er í búðina. Á heimasíðu
verslunarinnar, zikzakverslun.is,
er einnig hægt að skoða allt það
fallega úrval sem þar er í boði og
versla hvar og hvenær sem er. „Við
hvetjum fólk til að vera tímanlega
að panta, svo hægt sé að skila og
skipta fyrir jól,“ segir Sigrún.
„Það sem er vinsælast í jóla-
pakkann eru fyrst og fremst gjafa-
bréfin okkar ásamt vinsælu Jessicu
úlpunum okkar,“ segir Sigrún. „Sillu
buxurnar okkar eru einnig vinsælar
í jólapakkann svo er bara svo margt
fallegt hjá okkur núna. Við hvetjum
því alla til að koma og fá aðstoð við
að finna eitthvað fallegt fyrir sína
nánustu.“
Nú á dögunum hittist starfsfólk
ZikZak og skemmti sér konunglega
við föndurgerð. „Við föndruðum
allar okkar eigin jólakrans. Við
föndruðum einn auka því okkur
langar að gleðja einn góðan við-
skiptavin og gefa honum krans. Til
þess að eiga möguleika á að vinna
jólakrans ZikZak er hægt að taka
þátt á Facebook síðu verslunarinn-
ar undir nafninu Tískuhús ZikZak,“
segir Sigrún að lokum.
Stórglæsilegt úrval af sparifatnaði
Nú fer að líða að jólum og áður en við vitum af er jólahátíðin gengin í garð og tími til að njóta
með okkar nánustu. Það er sannkölluð jólastemning í ZikZak og skartar verslunin sínu fegursta.
Sigrún Waage segir velúrkjólana ofboðslega vinsæla. Þeir fást í mörgum sniðum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er vinsælt
að vera í kósí
sparibuxum og
blússu við.
Í ZikZak er úrval af sparitoppum í fallegum litum.
Þægileg og
sparileg blússa
við teygjanlegar
sparibuxur sem
eru góðar fyrir
jólaboðin.
Það er hægt að leika sér með alls
kyns toppa við sparibuxur.
Starfsfólk ZikZak bjó til nokkra jólakransa. Einn hepp-
inn vinur ZikZak á Facebook getur unnið þennan krans.
A-sniðs kjólarnir
eru vinsælastir en
allir kjólarnir eru alveg
einstaklega hátíðlegir og
fallegir
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R