Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 52
Ég hljóma kannski eins og Mr. Grinch sem vill ekki gefa gjafir, en þetta snýst ekki um það. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Ásgeir segir að fjölskylda mömmu hans, það er að segja hún og systkini hennar, hafi ákveðið í fyrra að minnka gjafir og gefa bara eina gjöf til hverrar fjölskyldu í staðinn fyrir að vera að gefa hverjum og einum. Í ár hafa Ásgeir, mamma hans og systkini ákveðið að lengja skrefið og gefa engar gjafir nema bara sín á milli. „Ég kom með þessa hugmynd til að minnka neysluhyggju. Í anda þess að ég er orðinn fróðari um hvert mannkynið stefnir hvað varðar kjötneyslu höfum við snarminnkað kjötneyslu og komist nær veganisma. Að minnka gjafir er svolítið hliðstæða þess,“ segir Ásgeir. Hann segir að hann hafi oft feng- ið gjafir frá fjarskyldum ættingjum sem hann þurfti ekki endilega á að halda. Það finnst honum sóun á peningum og efni í heiminum. Hann og systkini hans fóru að ræða þessi mál og veltu því fyrir sér hvers vegna þau væru að eyða peningum í gjöf til hvert annars. Af hverju ekki bara að sleppa því? „Ég hljóma kannski eins og Mr. Grinch sem vill ekki gefa gjafir, en þetta snýst ekki um það. Auðvitað má fólk gefa gjafir ef það vill og ef það er þörf á þeim. En þá er betra Betra að halda gjöfum í hófi Ásgeir Snær vill minnka neysluhyggju. Honum finnst sóun á efni og peningum að kaupa óþarfa. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fjölskylda Ásgeirs Snæs Magnús- sonar hefur tekið þá ákvörðun í ár að gefa engar jólagjafir né þiggja jólagjafir utan kjarnafjöl- skyldunnar. Ás- geir sem er 17 ára segist hafa fengið þessa hugmynd út frá umhverfis- sjónarmiðum. að halda þeim í hófi, og kannski gefa eina stóra gjöf frekar en margar litlar,“ segir Ásgeir. Gefa minningar Ásgeir segir að að hann og fjöl- skyldan hans séu líklega ekki þau fyrstu sem taka svipaða ákvörðun. „Maður hefur heyrt margt fólk tala um að þessar gjafir séu orðnar allt of miklar. Mamma kom með þá pælingu að gera eitthvað saman í staðinn fyrir að gefa gjafir. Fara saman í bústað eða keilu, út að borða eða eitthvað þannig. Nota peninginn sem annars hefði farið í gjafir í það. Þannig erum við í rauninni að gefa minningar og gefa ást.“ Þegar Ásgeir er spurður hvort hann haldi ekki að það verði svolítið skrítið á aðfangadag að opna enga pakka segir hann að það verði líklega sérstakt. „En það verður ekki alveg tómt undir trénu. Kannski verður ein bók á mann eða eitthvað þannig. En þetta var komið út í svo miklar öfgar. Það var pakkaflóð undir trénu. Við erum engin börn lengur, sú yngsta er að verða 14 ára og jóla- gjafirnar eru kannski mest fyrir börnin.“ Hann tekur fram að þau systk- inin hafi alls ekki verið þvinguð út í þetta heldur hafi þessi hugmynd komið frá þeim sjálfum. „Við gerum þetta samt bara mömmu megin. Tvö hálfsystkini mín pabba megin eru mjög ung og það væri leiðinlegt fyrir þau að hrifsa pakkana af þeim svo engin svona ákvörðun hefur verið tekin þeim megin.“ Ásgeir segir að lokum að breytingin verði ef til vill ekki svo mikil, enda hafi honum aldrei fundist pakkarnir vera aðalpartur- inn við jólin. „Ég hef náttúrulega ekki kynnst því sjálfur en ég veit að það er svaka erfitt fyrir marga fullorðna að fara í búðir og kaupa mikið af gjöfum og ég held að margir vildu losna við það. Aðal- atriðið er að fjölskyldan sé saman, jólamaturinn og fara í jólaboð. Við fáum bara meiri tíma til að ein- beita okkur að því.“ JÓLA-FÓLK Viltu þú auglýsa í mest lesna blaði landsins? Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins. Sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is Alla föstudaga fram að jólum verður Fólk Fréttablaðsins stútfullt af smákökum, kertaljósum, konfekti, mandarínum, jólamat, jólatísku, jólasögum og jólastemningu heima og að heiman. Vertu með í jólaskapi og komdu jólaskilaboðum þínum beint til lesenda. FERMINGARGJAFIR Fimmtudagi n 15. rs gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.