Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 74
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Hvort sem fólki líkar betur eða verr er kominn sá tími árs þar sem við þurfum
að fara að huga að því að pakka
inn gjöfum. Tímaritið OK! tók
nýlega viðtal við breskan sér-
fræðing í jólapökkum og hún gaf
nokkur góð ráð til að auðvelda
fólki verkin, hjálpa þeim að halda
gjöfunum leyndum, njóta þess að
pakka þeim inn og gera pakkana
sjálfa umhverfisvænni.
Jane Means hefur getið sér gott
orð sem sérfræðingur í að pakka
inn gjöfum og heldur sérstök nám-
skeið í því. Hún lumar því á alls
kyns góðum ráðum þegar kemur
að jólapakkagerð.
Fyrir erfið form
Sumar gjafir eru þannig að það
verður að búa vel um þær svo það
sé ekki augljóst hvað er í pakk-
anum. Það eru ýmsar sniðugar
leiðir til að villa um fyrir fólki. Það
er auðvitað hægt að setja hlutina í
einhvers konar box, en það er líka
hægt að setja bjöllu með í boxið
eða spreyja það með einhverri lykt
til að gera það erfiðara að átta sig á
innihaldinu.
Þegar góðan pakka gjöra skal
Jane Means er jólapakkasérfræðingur sem býr yfir alls konar sniðugum hugmyndum til að
hjálpa fólki að gera fallega pakka, halda innihaldinu leyndu og njóta þess að pakka inn.
Um hver jól þarf að sinna því að pakka inn gjöfum. En hver nennir því? Og hver hefur tíma? Hér eru ýmis góð ráð til að auðvelda ferlið. NORDICPHOTOS/GETTY
„Ef þetta er gjöf handa konu væri
til dæmis hægt að spreyja rakspíra
á boxið,“ segir Jane.
Hluti sem eru þannig í laginu að
það er erfitt að pakka þeim inn er
hægt að setja á disk. Það er hægt að
fá ódýra diska í búðum sem selja
notaðar vörur, eins og Góða hirð-
inum. Það er jafnvel líka hægt að
setja þá ofan í blómapott, svo það
sjáist alls ekki hvernig hluturinn
er í laginu. Þá getur líka verið gott
að setja til dæmis eitthvað mjúkt
með í pakkann, svo hluturinn
detti ekki bara úr pottinum og rífi
pakkann.
Fyrir hluti sem eru mjög erfiðir í
laginu mælir Jane með að nota eitt-
hvað sveigjanlegra en jólapappír,
eins og eldhúsrúllu eða sellófan.
Ef um mjög stóra gjöf er að ræða
mælir Jane með því að nota papp-
írsborðdúk, því þeir eru bæði mjög
stórir og til í bæði stórmörkuðum
og partíbúðum.
Að halda þeim leyndum
Mörg okkar eiga minningar um að
leita að jólagjöfunum sem mamma
og pabbi keyptu í von um að létta
á spennunni vegna yfirvofandi
gjafaflóðs. Jane lumar á ráðum
til að koma í veg fyrir að forvitnir
krakkar spilli fyrir sér gleðinni.
Í fyrsta lagi bendir hún á það
augljósa, að fela gjafirnar vel. En
auðvitað dugar það ekki endilega,
þannig að það getur til dæmis
verið sniðugt að litamerkja pakka
í stað þess að setja á þá merkimiða,
til að það sé ekki alveg augljóst
hver á hvað. Það er líka hægt að
merkja pakkana vitlaust, eins og
að merkja gjafirnar sem eru handa
börnunum með nöfnum ömmu
og afa. Þá verða þeir pakkar strax
minna spennandi.
Skipuleggja og njóta
Það getur tekið sinn tíma að
pakka inn gjöfunum. Margir gera
marga pakka og þar sem maður
gerir þetta bara einu sinni á ári
er erfitt að fullkomna tæknina.
Jane ráðleggur fólki að slappa af
og reyna að hafa gaman af þessu
ferli, annaðhvort með því að gera
það með öðrum og leyfa jólaand-
anum að taka af sér öll völd eða
bara taka þessu með stökustu
ró, fá sér aðeins í glas, setja góða
jólamynd í gang og dunda sér við
þetta. Þannig getur maður notið
jólastemningarinnar í stað þess að
gera þetta að kvöð.
En sumir hafa bara ekki tíma
til að dunda sér við að pakka inn
gjöfum og þurfa einfaldlega að
koma því í verk sem fyrst. Þá ráð-
leggur Jane fólki að skipuleggja
sig vel og passa að allt sem þarf sé
til taks, því margir lenda í því að
klára pappír, bönd eða merkimiða.
„Ein algeng mistök sem ég geri
er að pakka gjöfunum inn og setja
ekki merkimiða á þær. Svo man
ég ekki hverju ég hef pakkað inn,“
segir Jane. „Ég hef pakkað inn DVD
og svo gleymt alveg hvað það var
og fyrir hvern.“
Þannig að það er gott að byrja
á að búa til merkispjöld og hafa
þau tilbúin til að fara á pakkana
jafnóðum.
Umhverfisvænar aðferðir
Til að gera umhverfisvæna pakka
er sniðugt að endurnýta hráefni
og nota endurunninn jólagjafa-
pappír, segir Jane.
Jane segist hrifin af hlutum eins
og servíettum, brúnum pökkunar-
pappír og leifum af dúkum og
öðru slíku. Hún segir að allt þetta
sé hægt að nota til að pakka inn
í staðinn fyrir hefðbundinn jóla-
pappír.
Jane bendir líka á að það sé
gott að hafa alltaf rúllu af
brúnum pappír til taks ofan
í skúffu fyrir neyðartil-
vik. Ef jólapappírinn
klárast í miðju kafi
er hægt að búa til
f lotta pakka með
því að blanda
saman lituðum
pappír og brúnum.
HEILSA
Laugardaginn 28. desember mun sérblaðið Heilsa fylgja Fréttablaðinu.
Fjallað er um allt sem viðkemur bættri heilsu.
Í blaðinu verða áhugaverð viðtöl og fróðleiksmolar sem unnið er af blaðamönnum Fréttablaðsins.
Boðið er upp á auglýsingapláss í blaðinu af öllum stærðum og gerðum.
Einnig er hægt að fá kynningarumfjöllun sem unnin er af blaðamanni Fréttablaðsins.
Pantanir og skil á auglýsingum er til og með 27. desember.
Kynningarumfjallanir þarf að panta í síðasta lagi miðvikudaginn 18. desember.
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími 550 5654
jonivar@frettabladid.is
Arnar Magnússon
Sími 550 5652
arnarm@frettabladid.is
Atli Bergmann
Sími 550 5657
atlib@frettabladid.is
Ruth Bergsdóttir
Sími 694 4103
ruth@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R