Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 82
LEIKVANGURINN
Það er þekkt í Bandaríkj-unum að íþróttamenn sem ná að komast að í stærstu deildum heims reyni að deila auði sínum með fjölskyldu
sinni og þeir sem endast í íþrótt-
unum reyna að deila með þeim
sem minna mega sín. Þegar kemur
að NFL-deildinni er J.J. Watt í sér-
f lokki. Varnartröllið sem leikur
fyrir Houston Texans tilkynnti á
dögunum hvenær næsti góðgerðar-
leikur J.J. Watt í mjúkbolta (e. soft
ball), fer fram þar sem allur ágóði
rennur til gagnfræðaskóla sem eiga
í vandræðum með að fjármagna
starfsemi íþróttaliða. Til þessa hafa
samtök J.J. eða Justin James eins og
hann heitir réttu nafni, safnað rúm-
lega fimm milljónum dollara og má
búast við að sú upphæð fari nálægt
sjö milljónum dala í ár, 850 millj-
ónum íslenskra króna.
Kemur úr ruðningsfjölskyldu
Justin James Watt er elstur þriggja
bræðra og þótti á sínum yngri árum
efnilegur í íshokkíi en seinna fór
hann að einbeita sér að ruðningi.
Með því fetaði hann í fótspor föður
síns sem lék ruðning í háskóla. Eftir
stutt stopp í Central Michigan skól-
anum skipti Watt yfir til Wisconsin
þar sem hann var gerður að varnar-
manni (e. defensive end) eftir að
hafa áður bæði leikið sem varnar-
maður og útherji en í varnarlínu
Wisconsin sló Watt í gegn.
Það leiddi til þess að Texans valdi
Watt með 11. valrétt í nýliðavalinu
árið 2011. Ákvörðun Texans vakti
ekki mikla lukku hjá aðdáendum
liðsins sem bauluðu þegar tilkynnt
var að Texans hefði valið Watt.
Óhætt er að segja að hann hafi
staðist allar væntingar og rúmlega
það. Watt hefur þrisvar verið valinn
varnarmaður ársins af fjölmiðla-
mönnum sem fjalla um NFL-deild-
ina og varð fyrsti leikmaðurinn til
að hljóta öll atkvæðin árið 2014. Þá
hefur Watt fimm sinnum verið val-
inn í úrvalsliðið ásamt því að lenda
í öðru sæti í kjöri fjölmiðlamanna á
besta leikmanni deildarinnar árið
2014. Sama ár völdu leikmenn NFL-
deildarinnar Watt besta leikmann
deildarinnar.
Síðustu ár hafa reynst Watt erf-
iðari og hefur hann aðeins náð að
leika alla sextán leikina einu sinni
á síðustu fjórum árum. Fyrir vikið
hefur sviðsljósið færst frá Watt sem
átti þó frábært tímabil í fyrra. Á
sama tíma og bræður hans eru að
hasla sér völl í deildinni. Miðju-
bróðirinn Derek er að gera góða
hluti með liði Los Angeles Char-
gers en T.J. Watt, yngsti bróðirinn,
hefur komið eins og stormsveipur
inn í vörn Pittsburgh Steelers og
Ógurlegasti varnarmaður NFL-deildarinnar
heldur áfram að gefa af sér til samfélagsins.
J.J. Watt fór fyrir söfnun sem átti stóran hlut
í að endurbyggja Houston eftir fellibylinn
Harvey og er núna að safna peningum fyrir
íþróttalið gagnfræðaskóla í Bandaríkjunum.
Varnartröll
með hjarta
úr gulli
J.J. WATT ÞÓTTI EFNILEG-
UR Í KÚLUVARPI Á SÍNUM
TÍMA OG BÆTTI 13 ÁRA
SKÓLAMET PABBA SÍNS.
gjörbreytt varnarleik liðsins undan-
farin tvö ár.
Andlit uppbyggingar í Houston
Watts verður minnst bæði fyrir
afrek hans innan vallar sem utan en
hans stærsta afrek er eflaust þegar
honum tókst að safna 41,6 millj-
ónum bandarískra dollara sem fóru
í enduruppbyggingu Houston eftir
að fellibylurinn Harvey gekk þar
yfir. Rúmlega hundrað manns lét-
ust vegna Harvey og flóðanna sem
fylgdu storminum. Þurfti að bjarga
13.000 manns og voru um 30.000
manns á f lótta vegna stormsins.
Almannavarnadeildir í Texas töldu
að um 185.000 heimili hefðu orðið
fyrir skemmdum og um þúsund
heimili voru ónýt.
Watt var fljótur að láta til sín taka
og tilkynnti á Twitter-síðu sinni að
hann hefði ákveðið að stofna söfn-
unarreikning á hópfjármögnunar-
síðu þar sem hann lagði sjálfur til
hundrað þúsund dollara með það
að markmiði að safna tvö hundruð
þúsund dollurum. Með því fór snjó-
boltinn að rúlla og áttu alls 150.000
manns eftir að leggja málefninu lið
á næstu vikum sem varð til þess að
alls söfnuðust 41,6 milljónir dollara,
rúmlega fimm milljarðar íslenskra
króna.
Fyrr á þessu ári þegar tvö ár voru
liðin frá því að stormurinn Harvey
skall á Houston tilkynnti Watt að
alls hefði tekist að laga eða endur-
reisa 1.183 heimili og 971 barna-
heimili. Þá hafi peningurinn borgað
239 milljón máltíðir handa þeim
sem urðu fyrir barðinu á Harvey
ásamt því að niðurgreiða heilbrigð-
isþjónustu fyrir 8.900 manns og
lyfjakostnað fyrir 337.000 manns.
Watt er hvergi hættur og er núna
að skipuleggja hinn sjöunda árlega
mjúkboltaleik til styrktar íþrótta-
liðum sem eiga við fjárhagsvand-
ræði að stríða. Til þessa hafa J.J.
Watt samtökin styrkt rúmlega 500
skóla með 5,2 milljónum dala og
hefur hann safnað rúmlega milljón
dollurum undanfarin ár með styrkj-
um og miðasölu. Met var sett árið
2017 þegar 1,7 milljónir söfnuðust,
met sem gæti verið bætt í ár.
Kristinn Páll Teitsson
kristinnpall@frettabladid.is
Til þessa hafa J.J. Watt samtökin styrkt rúmlega 500 skóla með 5,2
milljónum dala. Hann er hvergi nærri hættur að láta gott af sér leiða.
Watt tókst að safna 41,6 milljónum Bandaríkjadollara sem fóru í endur-
uppbyggingu í Houston eftir að fellibylurinn Harvey gekk þar yfir.
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð