Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 86
Ástkæra móðir okkar, dóttir,
tengdamóðir, amma og systir,
Jóna Júlía Jónsdóttir
fædd 14. júní 1974 í Reykjavík,
lést mánudaginn 11. nóvember 2019.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk
barna hennar.
Arnar Freyr Elíasson
Katrín Perla Elíasdóttir
Hafsteinn Ingi Elíasson
Birgir Örn Elíasson
Jón Birgir Ragnarson
tengdabörn, barnabarn og systkini.
Faðir okkar, afi og langafi,
Helgi Sigurjónsson
Miðstræti 6,
Bolungarvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
þann 19. nóvember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna. Sérstakar þakkir sendum við til
heilbrigðisstarfsfólks og vina sem önnuðust hann
í veikindunum.
Gyða Árný Helgadóttir
Halla Unnur Helgadóttir
Ingibergur Helgason
Elín Urður Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
og aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Gyða Hjaltalín Jónsdóttir
hjúkrunarheimilinu Eir,
lést aðfaranótt 1. desember.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 16. desember klukkan 13.
Kristín Ólafsdóttir Magnús Halldórsson
Jón Hjaltalín Ólafsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og
samúð vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru
Sigurlaugar Svanhildar
Zophoníasdóttur
Kópavogsbraut 1a.
Anna Soffía Gunnarsdóttir Ólafur Kvaran
Guðný Gunnarsdóttir Friðþjófur K. Eyjólfsson
Guðrún Gunnarsdóttir Valþór Hlöðversson
Emilía María Gunnarsdóttir Eyjólfur Guðmundsson
Hákon Gunnarsson
Björn Gunnarsson Elísabet Kvaran
barnabörn og barnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Gyða Stefánsdóttir
sérkennari,
Þinghólsbraut 53, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
sunnudaginn 24. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
19. desember nk. klukkan 13.00.
Helgi Sigurðsson Ingunn Vilhjálmsdóttir
Júlía Sigurðardóttir
Elín Friðbertsdóttir
Dóra Guðrún Þorvarðardóttir
Guðrún Sigurðardóttir Andrés Júlíus Ólafsson
Margrét María Sigurðardóttir Halldór Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Gamlar jólaseríur, heklaðar dúllur, stórisar, postu-línsbrot og trjábútar er meðal þess sem gengur í endurnýjun lífdaga á sýningunni Endurunnið
jólaskraut í húsakynnum Handverks og
hönnunar á Eiðistorgi. Þar er Fjóla Guð-
mundsdóttir starfsmaður.
„Við setjum stundum upp sýningar í
þessu rými. Höfum yfirleitt óskað eftir
einhverjum ákveðnum hlutum á þær.
Bleikt var, til dæmis, skilyrðið sem við
settum fyrir októbersýninguna, þá
vorum við eingöngu með bleika muni.
Núna báðum við um jólaskraut úr
efnum sem hefðu gegnt öðru hlutverki
áður, þannig að um endurnýtingu væri
að ræða. Það voru þó nokkrar tillögur
sem komu inn, níu þeirra voru valdar
frá sjö sýnendum og hér kennir ýmissa
grasa. Þetta er allt til sölu nema tvennt
sem er í einkaeigu,“ upplýsir hún.
Við skoðum hvern hlut af gaum-
gæfni, þar er bæði um hugvit og vandað
handbragð að ræða. Gamalt útsaums-
verk verður að skermum á jólaseríu,
sniðaarkir sem fylgdu tískublöðum eru
orðnar að bréf bátum í sama hlutverki.
Útklippt og stífað skraut til að hengja
upp í glugga er gert úr gömlum stórisum
sem voru á hverju heimili.
Nú erum við komnar út að glugga,
þar hanga nokkrir jólahringir. Heklaðar
dúllur sem búið er að bródera í, meðal
annars fræhnúta og festa á litlar kúlur í
einum kransinum eru augnayndi. Niður
úr öðrum hanga langar, mislitar perur.
„Margir sem hafa komið hingað kannast
við búbbluseríur sem voru allsráðandi
upp úr 1960, í þeim voru þessar perur
með vökva inni í sem búbblaði þegar
kveikt var á þeim. Fólk tekur andköf
þegar það sér þær. Ein konan sagði. „O,
það var til svona í næsta húsi, mikið
öfundaði ég fólkið þar!“
Á veggjum eru líka listaverk, eitt er til
dæmis úr matarprjónum og grillpinnum
og útsaumuð jólakort fá framhaldslíf á
hjörtum gerðum úr dúkum og damaski.
Sýningin er opin á virkum dögum en
ekki um helgar. gun@frettabladid.is
Jólaskraut úr efnum sem
þjónuðu öðru hlutverki
Á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi er Handverk og hönnun til húsa. Þar er nú látlaus en at-
hyglisverð jólasýning á skrauti sem gert er úr endurnýttu efni. Það er í takt við áherslur
nútímans þar sem reynt er að draga úr sóun, umhverfisins og framtíðarinnar vegna.
„Hér kennir ýmissa grasa,“ segir Fjóla, starfsmaður hjá Handverki og hönnun um sýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ ANTON BRINK
Verk eftir Sigurborgu Stefánsdóttur,
unnið úr matarprjónum og grillpinnum.
Auður Bergsteins á þessar undurfögru
útsaumuðu og hekluðu jólakúlur.
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT