Fréttablaðið - 14.12.2019, Qupperneq 88
Elskuleg móðir mín og tengdamóðir,
Sigurlína Hólmfríður
Ingimarsdóttir
Lindasíðu 2, Akureyri,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð
12. desember.
Útförin fer fram í kyrrþey að hennar ósk.
Birgir Hólm Þórhallsson Unnur Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Okkar kæri bróðir,
mágur, frændi og vinur,
Birgir Guðmundsson
Hörðalandi 8,
Reykjavík,
lést þann 7. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 20. desember kl. 13.00.
Bergdís Ottósdóttir
Einar Guðmundsson Guðrún Árnadóttir
Margrét Einarsdóttir Valur Fannar Gíslason
Helga Jóna Benediktsdóttir Guðmundur B. Helgason
Margrét Benediktsdóttir
Benedikt, Jóhannes, Hjalti, Einar Fannar, Erla Dórothea,
Eva Guðrún og Emil Birgir
Jóhann Eyfells
myndlistarmaður,
lést á hjúkrunarheimili í
Fredericksburg, Texas, þann
3. desember síðastliðinn.
Ingólfur Eyfells og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sólveig Þórhildur Helgadóttir
frá Hvaleyri í Hafnarfirði,
áður til heimilis að Arnarhrauni 9
í Hafnarfirði,
lést laugardaginn 7. desember á
Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 20. desember klukkan 13.00.
Rögnvaldur G. Einarsson Elísabet Jónasdóttir
Sonja Rut Rögnvaldsdóttir Borja Alcober
Einar Bragi Rögnvaldsson Hrafnhildur Sigurðardóttir
Sólveig Lilja Rögnvaldsdóttir Ari Ólafsson
Úlfur Ari Einarsson
Ástkær eiginmaður minn og bróðir,
Kristófer Sigurðsson
lést á Landspítalanum Fossvogi
mánudaginn 11. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Anna Petersen
Guðbergur Sigurðsson
Innilegar þakkir fyrir fyrir auðsýnda
samúð við andlát og útför okkar
ástkæra föður, afa og langafa,
Ólafs Th Ólafssonar
myndlistarmanns og kennara,
áður til heimilis á Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Áss
í Hveragerði fyrir góða umönnun.
Elín Vigdís Ólafsdóttir
Hrund Ólafsdóttir
Bragi Ólafsson
Sigrún Sól Ólafsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu
vegna andláts og útfarar okkar
elskulega, eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Ólafs Helgasonar
Borgarnesi.
Sigríður Karlsdóttir
Gunnfríður Ingi Rúnar
Elfar Már Erla Katrín
Styrmir Már Bessý
Berglind Ólöf
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi Seljan
fyrrv. alþingismaður,
Kleppsvegi 14,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
þriðjudaginn 10. desember.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn
20. desember kl. 13.00.
Jóhanna Þóroddsdóttir
Helga Björk Helgadóttir
Þóroddur Helgason Hildur Magnúsdóttir
Jóhann Sæberg Helgason Ingunn K. Indriðadóttir
Magnús Hilmar Helgason Sólveig Baldursdóttir
Anna Árdís Helgadóttir Indriði Indriðason
barnabörn og barnabarnabörn.
Dorothé Kirch tekur á móti mér er ég kem upp á stigaskörina í Nýlista-safninu á Grandagarði. Hún er þar safnstjóri. Á sýningunni sem þar er
núna eru listaverk af ólíkum toga og öll
til sölu. Það eru skúlptúrar, ljósmyndir,
þrykk, teikningar, málverk, eiginlega
allt milli himins og jarðar. „Hér eiga
listamenn á öllum aldri verk, sumir eru
nýútskrifaðir, aðrir eru meðal stofnenda
safnsins,“ segir Dorothé.
Athyglina fangar strax ljós- og hljóð-
verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur.
Íslensk skáld og listamenn lesa þar ljóð
og texta og neongræna ljósið er síbreyti-
legt eftir raddstyrk lesaranna. „Við erum
í fyrsta skipti með það sem við köllum
ljósabasar hér í desember. Nýlistasafnið
er félag og sjálfseignarstofnun og þó við
fáum góða styrki frá ríki og borg þá þurf-
um við samt að fjármagna starfsemina
að miklu leyti sjálf,“ útskýrir Dorothé.
Hún segir listamenn eða fulltrúa þeirra
eiga safnið sem hafi farið ýmsar leiðir í
fjáröflun.
„Fyrir nokkrum árum héldum við
uppboð en nú ákváðum við að hafa
nokkurs konar jólabasarsstemningu.
Margir fulltrúar Nýló tóku vel í það og
komu með verk á sýninguna. Það sem
við á skrifstofunni lögðum til var í raun
sú hugmynd að á þessum myrkasta tíma
ársins væri gaman ef fólk ætti verk sem
tengdust ljósi á einn eða annan hátt og
kæmi með þau til að lýsa aðeins upp
skammdegið. Hér eru nokkur listaverk
sem búin eru til með neonljósum eða
lömpum og líka ljósmyndir. Að öðru
leyti er óhætt að segja að sýningin
endurspegli víðasta skilning hugtaksins
ljósaverk því list er ljós í myrkrinu.“
Dorothé segir tilganginn með ljósa-
basarnum í raun tvenns konar, bæði
þann að reyna að safna peningum með
listinni – fyrir listina og listáhugamenn-
ina – og líka þann að hafa sýningu í
þessum mánuði. „Árið byrjar alltaf með
stóru partíi hér fyrsta laugardaginn í
janúar og vegna þess hefur desember
alltaf verið mánuður sem við getum ekki
verið með stóra sýningu. Nýló á nefni-
lega afmæli í byrjun ársins og partíið er
opið öllum. Það kostar smá inn en það er
líka mikið stuð!“ gun@frettabladid.is
List er ljós í myrkrinu
Ljósabasar er haldinn í fyrsta skipti í Nýlistasafninu á Grandagarði nú í desember.
Hann felst í sölusýningu verka sem eigendur safnsins leggja fram því til eflingar.
„Það sem við á skrifstofunni lögðum til var í raun sú hugmynd að á þessum myrkasta tíma ársins væri gaman ef fólk ætti verk
sem tengdust ljósi á einn eða annan hátt og kæmi með þau til að lýsa upp skammdegið,“ segir Dorothé. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hér eru nokkur listaverk sem
búin eru til með neonljósum
eða lömpum og líka ljósmyndir.
Að öðru leyti er óhætt að segja
að sýningin endurspegli víðasta
skilning hugtaksins ljósaverk.
Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?“spyrja þeir félagar og tónlistarmenn
Davíð Þór Jónsson píanisti
og Tómas Guðni Eggertsson
organisti. Þeir ætla að leika
aðventu-og sálmaforleiki
eftir Bach í Langholtskirkju á
mánudagskvöld, 16. desemb-
er á kyrrðarstund sem hefst
klukkan 20. Um er að ræða
rólega en um leið spennandi
kvöldstund, þar sem Davíð
Þór Jónsson, píanisti, spinn-
ur frjálst á f lygil Langholts-
kirkju yfir sálmforleikina
sem Tómas Guðni Eggertsson,
organisti, leikur á orgelið.
Dag sk r á u nd i r sömu
yfirskrift var f lutt af sömu
spilurum við góðar undir-
tektir fyrir áratug, bæði í
Langholtskirkju og í Reyk-
holtskirkju, ásamt lestri jóla-
tengdra ljóða, en nú verður
kastljósinu beint að tónlist-
inni einvörðungu.
Óvenjulegt er að píanóleik
og orgelleik sé stefnt saman
á þennan hátt, en segja má
að þarna mætist gamall tími
og nýr í leik og sköpun – með
djúpri virðingu fyrir meist-
ara Bach.
Miðasala er við inngang-
inn, miða –gun
Djúp virðing fyrir Bach
Í Langholtskirkju mætist gamall tími og nýr í leik og sköpun.
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð