Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 112
YLIR.IS
Ýlir – Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur það að markmiði
að styðja ungt tónlistarfólk og veita því tækifæri til að koma fram
í Hörpu. Sjóðurinn styður við verkefni af ólíkum toga og vill þannig
ýta undir fjölbreytt tónlistarlíf í húsinu.
AUGLÝSIR EFTIR
UMSÓKNUM
FREKARI UPPLÝSINGAR Á YLIR.IS
Þótt George Lucas hafi í árdaga talið hæfilegt að rekja hádramatíska sögu Anakins Geim-gengils, lýsa risi hans, harmþrungnu falli og
afdrifum niðja hans í níu kvik-
mynda bálki óraði sennilega engan,
allra síst hann sjálfan, fyrir því að
42 árum eftir að hann lagði heiminn
að fótum sér með Star Wars yrði
hringnum lokað með Star Wars: The
Rise of Skywalker.
„Ég hef lengi beðið eftir þér,
Obi-van Kenobi,“ sagði Svarthöfði
drungalegri, hátíðlegri röddu.
„Loksins ber fundum okkar saman
aftur. Hringnum hefur verið lokað.“
Kenobi fann á sér, að ánægju gætti
bak við andstyggilega grímuna.“
Þessi orðaskipti áttu sér stað, í
íslenskri þýðingu Hersteins Páls-
sonar frá 1978, þegar þeir mættust
á ný, Anakin Skywalker þá orðinn
Svarthöfði, og Obi Wan Kenobi,
um miðbik fyrstu og þá hugsanlega
einu Stjörnustríðsmyndarinnar.
Þrátt fyrir að vera hinn útvaldi
Hringurinn lokast eftir níu umferðir
Þvert ofan í belginginn í Svarthöfða lokaði hann engum hring í Star Wars. Það er ekki fyrr en 42 árum síðar að
J.J. Abrams lokar hringnum, sem George Lucas opnaði, með frumsýningu The Rise of Skywalker í næstu viku.
Gamlar og nýjar hetjur hafa barist sundraðar í síðustu tveimur köflum en þjappa sér loksins saman í alvöru Star Wars-anda í síðasta kaflanum.
Ben Solo er í
króníksu frekju-
kasti sem Kylo
Ren og þarf
að svara fyrir
ýmis illvirki en
tilraunir hans
til að líkjast
afa Svarthöfða
draga dilk á eftir
sér.
Lando hefur ekki sést síðan í Return of the Jedi. Komi hann fagnandi!
með hinn æðsta Mátt ólgandi í
olíumenguðu blóðinu reyndist
Anakin nú ekki sannspár fremur
en endranær. Hringurinn varð
spírall þegar hann breytti gamla
lærimeistaranum sínum í hrúgu af
óhreinu taui. Star Wars sló í gegn
og sagan hélt áfram að hringa sig og
hverfast á víxl, í fortíð, samtíð og
framtíð um hann og soninn, Loga
Geimgengil.
Máttug tvíburasystir gaf sig fram
einhvers staðar á leiðinni, fann ást-
ina í ólíklegasta manni og eignaðist
son sem umturnaðist á gelgjunni í
tættari vandræðagemling en afa
Anakin sem varð aftur góður áður
en hann lést eftir að hafa drepið
vonda keisarann sem nú virðist
upp r isinn, samk væmt eig in
áætlun, og er tilbúinn til þess að
láta sverfa til stáls og rauðra geisla
í langþráðum níunda kaf lanum
sem auk rómversku tölunnar IX er
titlaður Upprisa Geimgenglanna,
þannig að allt getur gerst og vonin
sem kviknaði í fjórða hluta 1977
lifir enn.
Þessi von sem var í upphafi bund-
in við Loga sem deildi henni síðan
með Lilju systur sinni hefur mögu-
lega aldrei verið sterkari en í loka-
þríleiknum í hinni svakalega flinku
Rey sem hefur svo náttúruleg tök á
Mættinum að leita þarf allt aftur til
1999 þegar barnungur Anakin sýndi
snilldartakta í I. kafla, The Phantom
Menace, sem hlýtur að teljast mestu
vonbrigði sögunnar.
Ringluð? Þið verðið það ekki eftir
að hafa horft á næsta og síðasta
hluta geimsápunnar Stjörnustríð.
Í það minnsta ekki ef marka má
leikstjórann J.J. Abrams sem hefur
lofað að hnýta alla laus aenda og
loka hringnum í eitt skipti fyrir öll.
Mátturinn er með ykkur. Alltaf.
toti@frettabladid.is
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R72 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ