Fréttablaðið - 14.12.2019, Page 113
SIX 2318
White
19.995 kr.
SIX 2189
Black Crazy
19.995 kr.
SIX 2298
Black
18.995 kr.
SIX 2318
Black
19.995 kr.
SIX 2139
Black
18.995 kr.
SIX 2330
Black
19.995 kr.
SIX 2189
Black
19.995 kr.
SIX 1981A
Brown
16.995 kr.
… var dramatísk innkoma
magnaðasta illmennis kvik-
myndasögunnar er ógleymanleg
öllum sem sátu í myrkum bíósal
þegar „allir – jafnt keisaraliðar sem
uppreisnarmenn – þögnuðu, þegar
hávaxinn, skikkjuklæddur maður
birtist…“ Svarthöfði var mættur!
Djúpur andardrátturinn, enn
dýpri röddin og gríman!
… var smyglarinn og
geimkúrekinn Hans Óli
mesti töffarinn og aldrei jafn
ofursvalur en þegar hann alveg
hiklaust grillaði aumingja Greedo
áður en hann gat svo mikið sem
dregið vopn sitt úr slíðrum. Auð-
vitað skaut Hans Óli fyrst!
… opinberuðu Lilja Ósk
prinsessa og Hans Óli,
skipstjóri Fálkans,
ást sína með fallegustu ástar-
játningu kvikmyndasögunnar.
Rétt áður en heitmaðurinn er
bundinn í kolefnisklakabönd segir
hún: „Ég elska þig,“ og Harrison
Ford óhlýðnast George Lucas með
því að segja ekki „ég elska þig líka“,
heldur svarar að hætti Hans Óla:
„Ég veit.“
… var af öllum tilkomu-
miklum geislasverðabar-
dögum Stjörnustríðs
einvígi feðganna og Geim-
genglanna Loga og Anakins, sem
þá hafði ekki enn kastað brynju
Svarthöfða, það magnaðasta.
Þarna skella þeir saman geisla-
brandarnir rauður og grænn í
uppgjöri föður og sonar þar sem
hvorki meira né minna en sál þess
fyrrnefnda er í húfi ásamt framtíð
vetrarbrautarinnar.
Fyrir löngu síðan í fjarlægri vetrarbraut …
… var Boba Fett
ofmetnasti gaurinn frá Alviðru til
Urða og þótt víðar væri leitað með
viðkomu á Hoth. Herklæði Manda-
lorínanna eru svo töff að maður
þarf ekki annað en klæðast þeim til
þess að virka svalur og þegar vel er
að gáð er Boba Fett ekkert annað en
umbúðirnar utan um kempu sem
fellur fyrir blindum vígamanni og
afrekar það eitt að þora að standa
uppi í hárinu á Svarthöfða þegar
hann er í óvenju góðu skapi.
… var Darth Maul
allra skúrka vanmetnastur og
vannýttastur. Fáránlega svalur
með flottasta geislamoppu-
skaft sem sést hafði fékk þessi
fyrsti lærisveinn keisarans illa
ekki að sýna hvað í honum
bjó og var snarlega sendur úr
sögunni í tvennu lagi.
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 73L A U G A R D A G U R 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9