Fréttablaðið - 06.03.2020, Side 2
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Þeir komu bara
fram við mig eins
og ég væri eitthvað ruglaður.
Þorvaldur Jón Ottósson
Veður
Víða norðan 5-13 í dag. Léttskýjað
S- og V-lands, en dálítil él á NA-
landi og áfram kalt. Austlægari
annað kvöld og þykknar upp á
S-landi. Frost 1 til 10 stig.
SJÁ SÍÐU 18
Unnið á sorpfjallinu
Starfsmenn sorphirðu Reykjavíkur að störfum á Melhaga í Vesturbænum í gær. Ef ling samþykkti beiðni Reykjavíkurborgar um undanþágu frá
verkfalli og stefnt er á að taka stóran hluta miðbæjarins í dag. Íbúar eru beðnir að gæta að aðgengi svo sorphirða geti farið fram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
OPIÐLAUGARDAG
10-15
HUMARSÚPA
STÓR HUMAR
SAMFÉLAG Hælisleitendum verður
boðið upp á fríar knattspyrnu æfingar
hjá Þrótti út árið en samningur þess
efnis hefur verið undirritaður. Um er
að ræða samstarfsverkefni Þróttar
og Hælisleitendateymis Þjónustu-
miðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar
og Hlíða.
Að undanförnu hafa um 15-20 hæl-
isleitendur mætt á æfingar og fá þeir
útvegaðan æfingafatnað auk þess sem
boðið er upp á léttan hádegisverð. Þá
verður reynt að virkja hælisleitend-
urna til frekari félagslegrar þátttöku.
Ótthar Edvardsson, framkvæmda-
stjóri Þróttar, segir þetta hafa gengið
mjög vel og að bæði félagið og hælis-
leitendurnir séu ánægðir. „Við Þrótt-
arar erum stoltir af því að taka þátt í
þessu samfélagsverkefni,“ segir Ótt-
har.
Samningurinn sem gildir fyrir
umsækjendur um alþjóðlega vernd
sem eru í þjónustu Reykjavíkurborgar
verður tekinn til endurskoðunar í árs-
lok. – sar
Hælisleitendur
æfa hjá Þrótti
Samningurinn var handsalaður í
takt við fyrirmæli vegna COVID-19.
SAMFÉLAG Þorvaldur Jón Ottósson
var að slaka á í gufubaði Suður-
bæjarlaugar í Hafnarfirði síðast-
liðið mánudagskvöld þegar ósköpin
dundu yfir.
„Ég hef sótt þessa sundlaug reglu-
lega í tvö ár og við vorum þarna
tveir inni í gufubaðinu,“ segir Þor-
valdur. Þá vildi ekki betur til en svo
að ofn gufubaðsins hrundi skyndi-
lega á gólfið.
„Þetta er lítið rými með f lísum
og þetta var ekkert eðlilegur hávaði
sem myndaðist þarna innandyra.
Þetta var eins og sprenging og það
þekki ég vel enda unnið sem jarð-
vegsverktaki og komið fyrir ófáum
sprengihleðslum í gegnum tíðina,“
segir Þorvaldur og bætir við að ofn-
inn sé líklega á annað hundrað kíló.
Þorvaldur segist hafa komist í
mikla geðshræringu. „Við vorum
í raun stálheppnir að slasa okkur
ekki enn verr því að ef við hefðum
setið á öðrum stað í klefanum þá
hefði ofninn farið ofan á okkur. Það
var lán í óláni,“ segir hann.
Þá kveðst Þorvaldur verulega
ósáttur við viðbrögð starfsfólks
sem lokað hafi gufubaðinu í hvelli
og gert lítið úr atvikinu. Hann hafi
hringt í lögregluna í kjölfarið og þar
hafi hann fengið kaldar viðtökur.
„Þeir komu bara fram við mig
eins og ég væri eitthvað ruglaður.
Það var mjög dapurlegt að fá þær
viðtökur,“ segir hann.
Þorvaldur kveðst sárkvalinn.
„Ég er með stöðugan són fyrir eyr-
anu og hausverk. Ég bíð eftir niður-
stöðu læknis um hvort skaðinn sé
varanlegur,“ segir Þorvaldur sem
hyggst kanna rétt sinn ef svo er.
Segja má að slysið í gufubaðinu
hafi kórónað slæman dag hjá Þor-
valdi. Fyrr um daginn hafði hann
komið að bílnum sínum við Hafnar-
fjarðarbryggju stórskemmdum.
„Ég er með bát þar í slipp og hafði
geymt jeppann minn þarna í nokkr-
ar vikur. Síðan kem ég að honum
þar sem hann er á kafi í snjó og tvær
rúður mölbrotnar,“ segir Þorvaldur
sem telur blasa við að einhver sem
sér um snjómokstur hafnarinnar
hafi ekki verið starfi sínu vaxinn.
„Þetta var talsvert áfall. Ég kallaði
til aðila til að gera tjónaskýrslu fyrir
mig og það tók drjúgan tíma. Svo
fór ég beint í laugina til að slaka á,“
segir Þorvaldur. Sú ferð endaði með
ósköpum eins og fyrr segir.
Aðalsteinn Hrafnkelsson, for-
stöðumaður Suðurbæjarlaugar,
kvaðst ekki hafa heyrt af slysi á fólki
í óhappinu í gufubaðinu.
„Það er afar leitt að heyra að ein-
hver telji sig hafa orðið fyrir skaða
þegar þetta óhapp átti sér stað. Við
viljum endilega heyra í viðkomandi
og reyna að leysa úr málinu,“ segir
Aðalsteinn.
Gufubaðið var lokað vegna
óhappsins í nokkra daga en er nú
opið að nýju. bjornth@frettabladid.is
Með skaddaða heyrn
eftir óhapp í gufubaði
Karl á áttræðisaldri segist hafa verið með són fyrir eyra eftir að ofn í gufubaði
sundlaugar í Hafnarfirði skall niður með gríðarlegum hvelli. Hann var í gufu-
baðinu til að róa taugarnar eftir að hafa komið að bíl sínum stórskemmdum.
Þorvaldur Jón Ottósson átti sérlega slæman mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KJARAMÁL Samninganefndir Ef l-
ingar og Reykjavíkurborgar slitu
fundi í gærkvöldi og hefst annar
sáttafundur klukkan tíu í dag.
Félagsdómur úrskurðaði í gær
að samúðarverkfallið sem Ef ling
boðaði til hjá sjálfstætt starfandi
leik- og grunnskólum væri ólög-
mætt. Samtök atvinnulífsins kærðu
verkfallsboðunina en verkfallið
átti að hefjast á mánudag. Krafa SA
byggði á því að sam úðar verk fall
ætti ekki að hafa á hrif á kjör þeirra
starfs manna sem tækju þátt í því,
sem yrði raunin í þessu til felli. – atv
Áfram rætt við
Eflingu í dag
Dagur borgarstjóri var á fundarstað
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð