Fréttablaðið - 06.03.2020, Page 23
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
hvar@frettabladid.is
6. MARS 2019
Hvað? Tíminn er eins og vatnið
Hvenær? 17.00-19.00
Hvar? Kaffi Laugalækur
Listakonan Gunnhildur Þórðar-
dóttir opnar sýningu.
Hvað? Inn í skóginn – Frumsýning
Hvenær? 20.00
Hvar? Hof, Akureyri
Leikfélag Menntaskólans á Akur-
eyri setur upp Sondheim-verkið
Inn í skóginn. Þar eru teknar fyrir
þekktar persónur úr Grimmsævin-
týrum og siðferði sagnanna sett í
samband við daglegt líf okkar.
Hvað? Fyrirlestur
Hvenær? 20.00
Hvar? Lífspekifélagið, Ingólfsstræti
Gísli Sigurðsson prófessor fjallar
um keltnesk áhrif við landnám.
Opið öllum áhugasömum.
Hvað? Kristjana Stefáns á Múlanum
Hvenær? 20.00
Hvar? Björtuloft, Hörpu
Kristjana Stefáns mun, ásamt tríói
sínu, flytja uppáhaldslög og valda
djassstandarda í eigin útsetn-
ingum. Miðaverð er 3.000 krónur,
1.500 krónur fyrir nemendur og
eldri borgara.
Hvað? Tango praktika og milonga
Hvenær? 21.00 – 24.00
Hvar? Kramhúsið
Argentínskur tangó dunar. Dj er
Þórður og gestgjafi Guðbjörg. Allir
velkomnir. Aðgangur 1.000 krónur.
Frítt er á praktiku og fyrir 30 ára og
yngri.
Hvað? Fullorðins fjölbragðasýning
Hvenær? 21.00
Hvar? Gamla kaupfélagið, Akranesi
Búkalú, sýning Margrétar Erlu
Maack og fleiri skemmtikrafta,
fer um lönd og lendar. Er bönnuð
innan 20 ára og hentar ekki þeim
sem hræðast undur mannslíkam-
ans, heldur fólki sem tekur lífinu
létt en fíflagangi grafalvarlega.
Hvað? Hin „fimm“ trúarbrögð
(wujiao) í Kína á öndverðri 20. öld
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Veröld, hús Vigdísar, 2. hæð
Fyrirlestur á vegum Konfúsíusar-
stofnunarinnar Norðurljósa.
Hvað? Innflutningspartí
Hvenær? 18.00
Hvar? Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi
Ásthildur Magnúsdóttir, vefari
og æðardúnsbóndi, verður með
vinnustofudvöl næstu tvo mánuði.
Hvað? Unfiled
Hvenær?18.00
Hvar? Ásmundarsal
Atli Bollason og Guðmundur Úlf-
arsson sýna skjáskot úr tilrauna-
stofu sinni.
Gísli Sigurðsson prófessor flytur
fræðsluerindi hjá Lífspekifélaginu.
Ráðstefna um barna- og ungl-ingabókmenntir verður í Borgarbókasafninu – Menn-
ingarhúsi Gerðubergi, á morgun,
laugardaginn 7. mars, klukkan
10.30 til 13.00. Þar verður fjallað
um birtingarmyndir loftslags-
brey tinga og annar ra er f iðra
viðfangsefna samtímans í bók-
menntum fyrir ungmenni. Einnig
verður rýnt nánar í hvaða bækur
standa börnum og unglingum til
boða, hvaða hlutverki barna- og
ungmennabækur gegna í breyttum
heimi og hvernig miðla má efni,
bæði í leik og í starfi, til ungra les-
enda.
Ráðstefnan er opin öllu áhuga-
fólki um íslenskar barna- og ungl-
ingabókmenntir. Þórey Lilja Benja-
mínsdóttir Wheat grunnskólanemi
ávarpar gesti. Hildur Knútsdóttir
talar um hvernig sé að skrifa um
samfélagsmál í ungmennabókum,
Guðrún Lára Pétursdóttir f lytur
erindi um birtingarmyndir sam-
félagsvandamála í bar nabók-
menntum, Sævar Helgi Bragason
talar um mikilvægi fræðibóka
og Hjalti Halldórsson og Dögg
Lára Sigurgeirsdóttir kynna nýjar
kennsluaðferðir. Fundarstjórn er í
höndum Bergrúnar Írisar Sævars-
dóttur. – kb
Loftslagsbreytingar í bókmenntum fyrir ungmenni
Hildur Knútsdóttir rithöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fyrir börn frá 3 ára og uppúr!
– S.J. Fréttablaðið
– DV
„Lífið er yndisleg sýning !“
– S.B.H. Morgunblaðið
„Það er allt fallegt við þessa sýningu.
Allar stjörnurnar í húsinu !“
– G.S.E. Djöflaeyjan
Sýningin sem hefur farið sigurför
um heiminn snýr aftur í Tjarnarbíó!
Barnasýning ársins 2015 !
Miðasala á tix.is og í Tjarnarbíó
Í uppsetningu Leikhússins 10 fingur sem sló í gegn með leikritið Skrímslið litla systir mín
Leikarar : Sólveig Guðmundsdóttir & Sveinn Ólafur Gunnarsson Listrænir stjórnendur : Charlotte Bøving & Helga Arnalds
LÍFIÐ KVEÐUR!
Allra síðasta sýning !
LAU . 14 . mar kl . 13 00
Sérstök
styrktarsýning!
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F Ö S T U D A G U R 6 . M A R S 2 0 2 0