Fréttablaðið - 06.03.2020, Síða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FYRIR MIG PERSÓNU-
LEGA FINN ÉG HVAÐ
TÓNLISTARNÁMIÐ HEFUR
HJÁLPAÐ MÉR AÐ HALDA
EINBEITINGU, VERA SKIPULÖGÐ
OG ÖGUÐ Í VINNUBRÖGÐUM, EN
LÍKA VERA TILFINNINGALEGA
NÆM.
Sigrún Harðardóttir rekur Suzuk iskóla Sig r únar. Hún var ung þegar hún heillaðist af fiðlunni og beið spennt eftir að fá að æfa eftir að hafa fylgst
með systur sinni æfa sig.
„Systir mín, hún Eva Björg, lærði
á fiðlu. Hún er sjö árum eldri en
ég og hefur verið mikil fyrirmynd
í mínu lífi og góð vinkona síðan
ég man eftir mér. Ég fylgdist með
henni spila á fiðluna heima síðan ég
man eftir mér, fór með henni í fiðlu-
tíma og lék eftir það sem hún var að
gera. Ég fann mér til dæmis Legó-
girðingu og hárgreiðu og notaði það
sem fiðlu fyrst um sinn. Mér fannst
fiðlan bara alltaf svo heillandi og
ekki skemmdi fyrir að stóra systir
var alltaf að æfa sig,“ segir Sigrún.
Fiðlan í dúkkurúmið
Þegar hún var þriggja ára fékk
Sigrún svo að byrja í fiðlutímum
hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur,
Suzuki-fiðlukennara.
„Ég á ekki margar minningar
áður en ég byrjaði að læra, ein
þeirra er þegar ég var að ræða við
Sigríði Helgu um það hvort ég
mætti ekki fara að byrja í tímum.
Hún sagði mér að ég mætti byrja
seinna um haustið. Mamma segir
mér að þegar ég fékk loksins alvöru
fiðlu þá vildi ég búa um fiðluna í
dúkkurúminu, fannst af leitt að
hafa hana ofan í kassa. Svo hefur
fiðlan bara fylgt mér síðan,“ segir
hún og hlær.
Sigrún hélt svo tónlistarnáminu
áfram og fór í framhaldsnám við
Listaháskóla Íslands og til Berlínar.
„Ég lauk svo meistaraprófi í fiðlu-
leik frá University of Denver 2014
auk Suzuki-kennararéttinda. Ég
spila mikið í hljóðveri fyrir ýmsa
tónlistarmenn og svo hef ég verið
að spila á tónleikaferðalögum með
Ólafi Arnalds. Það hefur verið frá-
bær reynsla og dásamlegt að fá að
spila í svona mörgum stórkost-
legum tónleikasölum eins og í
Óperuhúsinu í Sydney og Elbphil-
harmonie í Hamborg,“ segir Sigrún.
Tónlistin sameinar
Hún segir margar rannsóknir hafa
sýnt fram á að tónlistarnám hafi
góð áhrif á heilann, almennan
þroska og styðji við annað nám, sér-
staklega tungumál og stærðfræði.
„Svo er tónlist svo dásamlega
falleg, hún er alheimstungumálið
okkar og við tengjum öll við tónlist
á einn eða annan hátt. Margir leita
í tónlist til að róa huga og taugar
eða auka einbeitingu, aðrir spila
hressandi tónlist til að koma sér í
framkvæmdagír. Tónlistin sam-
einar okkur öll og tónlistarnám
er aldrei af okkur tekið. Fyrir mig
persónulega finn ég hvað tónlistar-
námið hefur hjálpað mér að halda
einbeitingu, vera skipulögð og öguð
í vinnubrögðum, en líka vera til-
finningalega næm.“
Meðfram þessu hefur Sigrún
kennt á fiðlu í hinum ýmsu tón-
listarskólum síðastliðin tólf ár.
„Síðastliðið haust stofnaði ég
minn eigin skóla, Suzukiskóla Sig-
rúnar. Þar hef ég verið að kenna á
fiðlu nemendum frá þriggja ára
aldri, en er einnig með námskeið
fyrir alveg niður í þriggja mánaða
og foreldra þeirra. Það eru Bam-
baló-tónlistartímarnir,“ segir hún.
Ekki síður fyrir foreldra
Bambaló-tímarnir eru fyrir börn á
aldrinum þriggja mánaða til fimm
ára og foreldra þeirra.
„Þeim er skipt í aldurshópa, ung-
barnatímarnir eru aðeins rólegri,
eins árs börn til þriggja ára læra
f leiri lög og fá að spila á alls konar
hljóðfæri. Þriggja til f imm ára
hópurinn er síðan aðeins fjörugri.
Tímarnir eru byggðir meðal annars
á kennsluaðferðum Suzuki og ýmsu
sem ég hef sankað að mér í gegnum
tíðina úr leiklist, tónlist og kennslu.
Námið undirbýr börnin fyrir frek-
ara tónlistarnám, en þessir tímar
eru ekki síður hugsaðir fyrir for-
eldra til að læra eitthvað skemmti-
legt að gera heima með börnunum
sínum, leika og verja tíma saman.
Gera eitthvað sem er skemmtilegt
og uppbyggilegt og getur vonandi
komið í staðinn fyrir að grípa í
spjaldtölvu eða sjónvarp.“
Hún segist meðvituð um að dag-
skrá hjá fjölskyldum geti verið
breytileg milli vikna og oft erfitt
að skuldbinda sig í nokkrar vikur
á námskeið.
„Þess vegna ákvað ég að hafa
Bambaló-tímana opna, fólk getur
skráð sig í staka tíma og keypt
klippikort með afslætti sem gildir
í eitt ár. Tímarnir eru byggðir upp
svipað, það er mikið um endur-
tekningu. Börnum svo gaman að
endurtaka það sem þeim finnst
skemmtilegt. Sumir hafa komið oft
og eru öruggari en aðrir. En öll læra
þau af þessu, líka hvert af öðru,“
segir hún og brosir.
steingerdur@frettabladid.is
Tónlistartímar fyrir
ungbörn og fullorðna
Sigrún rekur Suzkiskóla Sigrúnar. Hún stendur fyrir Bambaló-tón-
listartímum fyrir börn niður í þriggja mánaða aldur. Hún segir tón-
listarnám stuðla að aukinni einbeitingu og tilfinningalegri næmni.
Sigrún með Brynhildi Sigurrós, frænku sinni og afburðanemanda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRTRYGGUR ARI
Sigrún mundar greiðuna á meðan
systir hennar Eva Björg spilar á fiðlu.
Lesa bara FBL
63%
FBL OG MBL
26%
Lesa bara MBL
11%
Með því að auglýsa í
Atvinnublaðinu nær þitt
fyrirtæki til 89% lesenda
dagblaða* á höfuð-
borgarsvæðinu.
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
VELDU GÆÐI!
Tilboð í mars.
2 fyrir 1 af
kleinuhringjum
allar helgar,
föstudaga til
sunnudaga.
6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð