Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Árna
Helgasonar
BAKÞANKAR
Atburðarásin síðustu vikur hefur verið hröð, jafnvel biblíuleg á köflum. Jarð-
hræringar á Suðurnesjum, verkföll
og yfirfullar ruslatunnur, snjóflóð,
aftakaveður og krónískar veður-
viðvaranir sem glymja um allt eins
og óþekktur hlutur á pokasvæði.
Svo á að flytja til landsins fimm
kyrkislöngur. Að ógleymdum auð-
vitað kórónavírusnum sem hefur
gert það að verkum að hugtök á
borð við samkomubann og raf-
rænar fermingar eru núna rædd hjá
stjórnvöldum.
Þessi ótíð hefur áhrif á hvernig
maður nálgast lífið og til marks
um breyttan hugsunarhátt þá á
ekkert af áramótaheitunum sem
ég setti mér við lengur.
Ég ætlaði að draga úr neyslu á
unnum kjötvörum. Þetta mark-
mið á ekki við lengur. Í dag hugsa
ég þvert á móti hlýlega til unninna
kjötvara og hversu geymsluþolnar
þær eru, fullar af rotvarnarefnum
og að mestu lausar við öll lífræn
einkenni þannig að þær endast
misserum saman. Græni djúsinn
er ekkert sérstaklega girnilegur á
þriðju viku í neðanjarðarbyrginu.
Ég ætlaði líka að vera besta
útgáfan af sjálfum sér. Miðað við
þróun mála er mjög ásættanlegt að
einhvers konar útgáfa af sjálfum
mér verði til staðar þegar árið er
á enda. Áhyggjur af því að lenda
í kulnun og síþreytu hafa breyst
í áhyggjur af því hvort það sé til
nóg efni á Netf lix ef ég þarf að fara
í sóttkví.
Að einu leyti hef ég þó náð settu
markmiði. Ég ætlaði að vera dug-
legur að f lokka og hef nú þegar
af hent svo mikið rusl í Sorpu að ég
trúi ekki öðru en fjárhagur fyrir-
tækisins fari að hressast.
Þótt staðan sé alvarleg vonar
maður að þetta muni fara vel. En
það er stundum hollt að rifja upp
hvað tíðarandinn getur breyst
hratt.
Ótíð
GÓU
PIPAR EGG
25 G
169
KR/STK
6760 KR/KG
laugardalsvelli · opið kl. 10-21 öll kvöld
Ljúfar
lestrarstundir
Vantar þig
bók á
náttborðið?
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
magnifique
york
ligne
classico magnifique
york
ligne
classico
magnifique
york
ligne
lassico magnifique
york
ligne
classi o
5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni óvið
jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast að þér og
þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu heilsurúm,
heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal heilsu
dýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með
góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðma-
svæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað
hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum
svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með tvískiptu
gorma kerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og
andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem eru
mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi fætur
og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er nú á kynningarverði í Betra Baki auk þess að
nótt á Reykjavik Nordica ásamt morgunverði fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa fylgir
kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi – tilboðið gildir til 14. mars.
Kynningarverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica, ásamt
morgunverði og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa,
fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
TILBOÐIÐ GILDIR TIL 14. MARS.
Verðmæti: 36.000 kr.
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR