Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 3

Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 3
Ritnefnd: Gerður Hjörleifsdóttir Solveig Búadóttir Sigríður Halldórsdóttir Vigdís Pálsdóttir Afgreiðslustaðir: íslenzkur heimilisiðnaður Hafnarstræti 3, Laufásvegi 2, Reykjavík Myndir: Gísli Gestsson Utlit: Hafsteinn Guðmundsson Prentmót: Páll Finnbogason Setning og prentun: Prentsmiðjan Edda hf. R T HEIMILISIÐNAÐARFÉLAGS í S L A N D Heimilisiðnaðarfélag íslands er að stofni til gamalt félag. í stofn- lögum þess frá 1913 segir m. a: „Það er tilgangur félagsins að auka og efla þjóðlegan heimilisiðnað á íslandi, stuðla að vöndun hans og fegurð, og vekja áhuga manna á því að framleiða nytsama hluti“. Félagið hefur á ýmsan hátt reynt að vinna að stefnuskrá sinni, svo sem með sýningum, námskeiðum, útgáfu íslenzkra mynzturblaða, útvegun á vefjargarni o. fl. Margir hafa lagt þar hönd að verki og margt hefur áunnizt á liðnum árum. Þjóðleg menningarverðmæti okkar eru margvísleg. Ein grein þeirra er heimilisiðnaðurinn. Tóvinna var almennt stunduð á hverju heimili, enda öll klæði heimagerð og vaðmál og smáband út- flutningsvara þjóðarinnar. Fallegur vefnaður frá fyrri tíð í böndum, dúkum og dreglum ber vitni um hagar hendur og listfengi. Amboð og ílát voru smíðuð og gjarnan prýdd útskurði, en tréskurður hefur verið veigamikill þáttur í íslenzkri alþýðulist. En timarnir breytast. Iðnaðurinn hefur færst af heimilunum í verksmiðjur. En jafn- framt breytingu á iðnaðarháttum þjóðarinnar breytist vinnutími fólksins. Með fjölgun tómstunda skiptir miklu að þeim sé vel varið, og ætti heimilisiðnaðurinn á ný að eiga þar hlutverki að gegna. Á undanförnum árum hefur komið í ljós þörf á aukinni leiðbeingar- starfsemi af hendi félagsins. Til að bæta úr þeirri þörf, hefur verið ráðist í útgáfu þessa smárits. Það er ætlað til kynningar á gömlum og nýjum fróðleik, sem að heimilisiðnaði lýtur og er ný leið af félagsins hálfu til að vinna að stefnu- skrá sinni. Það er ósk okkar og von, að allir þeir, sem þessum málum unna, leggi okkur lið. Greinar um ýmsa þætti heimilisiðnaðarins, fróðleikskorn, sérstakar óskir og ábendingar um efnisval, mun þakk- samlega þegið. Blaðið kemur út einu sinni á ári. Félagsmenn fá það ókeypis, en það verður einnig selt í lausasölu. Veggdregill saumaður af Helgu Þórarinsdóttur. Efni: íslenzkur ullarjafi. Saumað með íslenzku eingirni í sauðalitum. Mynztrið er byggt á fyrirmynd af Þjóðminjasafni.

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.