Hugur og hönd - 01.06.1974, Side 11

Hugur og hönd - 01.06.1974, Side 11
Sprökuvettlingar voru notaðir þeg- ar rennt var fyrir spröku (lúðu). Þeir voru frábrugðnir venjulegum sjóvettl- ingum að því leyti, að klukkan var alsett röndum, og voru þar í venju- lega þrír litir, sem ekki komu annars staðar fram í vettlingnum. Venjulegir sjóvettlingar voru ýmist tví- eða þrí- litir. Fitin var alltaf með öðrum lit en klukka, grip og úrtökur, en stund- um var klukkan með sérstökum lit og vettlingurinn þá þrílitur. Allir sjó- vettlingar voru tvíþumla og þumlar með sama lit og gripin. Klukka hét frá fit að þumlum, grip frá þumlum að úrtökum (totu). Sprökuvettlingar og venjulegir sjó- vettlingar þóttu mismunandi fiskisæl- ir, og kom þar til greina mismunandi litasamsetning. Það var algengt að góðir sjóvettl- ingar væru endurnýjaðir, og var þá fit og klukka notað áfram, en grip og úrtökur prjónað að nýju. Sjóvettling- ar þófnuðu mjög bæði af ár og færi, og var það kallað að þeir lilypu í dróma. Slíkir voru kallaðir dregnir vettlingar, og er þeir voru orðnir of þröngir sem sjóvettlingar, voru þeir notaðir á landi í vetrarkuldum og sem hrífu- og kláruvettlingar. (Heimildarm.; Daníel bóndi og form. Eggertsson á Hval- látrum og kona hans Anna Jónsdóttir). Hér kemur lýsing á sprökuvettling- unum: Fit: 1 lykkja brugðin, 2 sléttar, lit- ur sauðsvart, lengd 6 sm. Klukka: talið frá fit, 2 umf. grænt, 2 umf. hvítt, 2 umf. ljósbrúnt, 6 umf. sauðsvart, 2 umf. rauðgult, 2 umf. hvítt, 2 umf. blátt, 5 umf. sauðsvart, 2 umf. hvítt, að þumlum. Brugðnar 4 lykkjur á klukku, ein í stað með jöfnu millibili. Lengd klukku 9 sm. Þumlar, grip og úrtökur hvítt. — Lengd frá klukku á totuenda 19 sm. Meira kann ég ekki af sprökuvettl- ingurn að segja. Egill Ólafsson Iínjóti. HUGUR OG HÖND 11

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.