Hugur og hönd - 01.06.1974, Blaðsíða 13
umferðir fastar lykkjur í viðbót, og
endurtekin í þriðja sinn eftir aðrar
1G umferðir fastar lykkjur. Eftir síð-
ustu endurtekningu eru heklaðar 8
umferðir fastar lykkjur, og þá kemur
hitt axlabandið. Frá bolnum eru nú
heklaðar 70 loftlykkjur, og þá 3 um-
ferðir fastar lykkjur, og nú er gagn-
stætt því sem áður var í fyrra axla-
bandinu, að þá var tekin úr 1 lykkja
í hvcrri þessara umferða, þá er nú
aukin 1 lykkja í hverri þessara um-
ferða, þar sem bolur og axlaband mæt-
ast. Axlabandið er annars heklað á
sama hátt og það fyrra, og síðan 12
umferðir fastar lykkjur samsvarandi
og byrjunin (44 lykkjur). Þá er aðeins
eftir að gera 6 hnappagöt á hægri
boðang og 3 hnappagöt á endann á
sitt hvort axlabandið, og setja síðan
hnappa á að framan og á bakið á
bolnum til þess að hneppa axlabönd-
unum í, þar sem þeir fara best á til-
vonandi eiganda vestisins.
2 umferðir af föstum lykkjum eru
ca. 1 cm., og ef á að stækka eða
minnka vestið, er best að fækka eða
fjölga umferðum á miðju bakinu. —
Vestið á myndinni er 76 cm í mitti.
H.E.
HUGUR OG HÖND