Hugur og hönd - 01.06.1974, Blaðsíða 18
Hnýttur lampaskermur
Áklæði lampaskerma má vinna á
margvíslegan hátt, með útsaumi,
prjóni, „macramé“-hnýtinguin o. fl.
aðferðum.
Huga skal að því ljósmagni, sem
æskilegt þykir, að lampinn beri og
miða að því að Ijósið verði þægilegt.
Velja skal vinnuaðferð áklæðisins,
bæði hvað efnisgerð og þéttleika
snertir, ásamt litavali, er hæfir ljósi,
lampafæti og öðru heimilisskrauti.
Forðast skal dökka liti og grisjað
áklæði, en reyna að hylja peruna, svo
ljósið skeri ekki i augu. Heppilegt get-
ur því verið að þekja skermgrindina
með undirlagi iir góðu efni, er hentar
18
vel áðurnefndum þremur atriðum.
Byrjað er á að vefja efri og neðri
hring skermgrindarinnar með ská-
böndum samlitum skermgrindinni eða
áklæðinu. Nauðsynlegt er að vefja
þétt, svo vafningurinn gefi ekki eftir
eða renni til, þegar efnið er strekkt
á grindina.
Fóður á skermgrindur er mælt og
sniðið á þann hátt, að lengd þess verð-
ur ummál neðri hrings grindarinnar
og hæð, milli efri og neðri hringja.
Saumför á öllum hliðum eru höfð um
1 sm. Sé grindin keilulaga, er lengd
milli ummáls efri og neðri hrings deilt
jafnt niður í 4—6 hluta eða sama
fjölda og reitir milli lóðréttu tengivír-
anna. Brcidd hverrar sneiðingar er
síðan merkt greinilega og saumuð með
fremur þéttu spori í saumavél. Síðan
er við sauminn saumað með þéttum
víxlsaumi (zig-zag) eða vélin stillt fyr-
ir hnappagatasaum og klippt þétt við
saumröndina og straujað. Þá er fóðr-
inu smeygt yfir grindina, brotið inn
af efri brúninni um 4 mm. einu sinni
eða tvisvar eftir efnisþykkt og þétt-
leika og því fest með títuprjónum á
skábandsvafninga grindarinnar. —
Prjónarnir snúi hornrétt á grindina,
og eru saumar látnir standast á við
tengivíra þar sem hægt er. Farið er
að á sama hátt við neðri brún áklæðis-
ins, en þess gætt að strekkja nokkuð
um le'ð og efnið er fest niður með
prjónunum. Saumað er með smáum
sporum við vafninginn innanverðan,
ef hægt er, en vilji hann renna til, er
saumað við efri brún hans og sam-
svarandi við þá neðri.
Hnýtti skermurinn er unninn
úr bleiktu hörgarni 16/2 og eru
4 þræðir hafðir í hverja þráða-
finnskur hör, tvistur, ,,cottolin“ og
samstæðu við hnýtinguna. Áklæðið er
hnýtt í 6 stykkjum og er aukið út
með því að bæta við aukaþráðum
eftir þörfum í samræmi við breikkun
skermgrindarinnar, en venjulega næg-
ir að auka út einu sinni, um miðja
grindina, og láta þá frekar aukavídd
hafast örlítið við á efri hlrtanum.
Aukningin er látin falla í mynztrið,
án þess að jaðrarnir truflist. Að hnýt-
ingu lokinni, eru brúnir stykkjanna
mynztraðar saman og saumaðar með
varpspori, áklæðinu snreygt yfir
grindina, staðsett með nákvæmni,
tyllt niður með þræði og síðan saumað
fínlega við efri og neðri brúnir.
Áklæðið má einnig hnýta í einu eða
tvennu lagi. Einnig má festa þræðina
á efri hring skermgrindarinnar, hvort
sem hún er án eða með undirlagi, því
ef til vill má þræða í gegnum fóðrið.
Neðstu brún má ganga frá með
kögri eða hnýta tvær til þrjár loka-
umferðir með skutulsbragði, klippa
við brúnina, styrkja með aftursting
og festa síðan við neðri hringinn.
H.Á.
HUGUR OG HÖND