Hugur og hönd - 01.06.1974, Blaðsíða 41
og verður hann því ekki rakinn upp
á svo einfaldan hátt. Vinna verður
með nálþræði að takmarkaðri lengd í
einu og bæta við nýjum þræði, þegar
hann er á enda. Engin brigzli mega
vera á samskeytunum og helzt á að
spinna þráðarendana saman. Vattar-
saumur hefur svipaða áferð og hekl
en skortir teygjanlcik á við prjónles“.
Þar sem okkur þætti gaman ef tak-
ast mætti að endurvekja þessa gömlu
aðferð, birtum við hér mynd af mun-
um sem gerðir eru með nálbragði af
sömu gerð og vötturinn frá Arnheiðar-
stöðum. En til eru nokkur afbrigði af
þessari aðferð og er þetta einfaldasta
gerðin.
Saumað er frá vinstri til hægri.
Erfiðast er að byrja, en það má gera
t. d. svona: Gróf oddlaus nál er þrædd
HUGUB OG HÖND
með hespulopa. Hnýttur er hnútur á
endann og honum smeygt upp á þum-
alfingur vinstri handar. Þráðurinn
með nálinni liggi inn í greipina. Mynd
í. Þessi hnútur er notaður sem upp-
hafslykkja. Haldið er utanum hnút-
inn með vísi- og þumalfingri vinstri
handar. Nálinni er nú stungið yfir
fremra bandið undir aftara bandið (þ.
e. hnútinn sjálfan) og utanum það og
aftur undir fremra bandið og nálar-
endann. Mynd II. Um leið er lykkj-
unni sem var um þumalfingur smeygt
framaf, og henni haldið milli þumal-
og vísifingurs meðan nálin er dregin
í gegn. Myndar þá nálþráðurinn nýja
lykkju utanum þumalfingur og ræður
hann stærð lykkju, og þar með þéttu
saumsins. Eftir þetta er alltaf saum-
að á sama hátt: Yfir einn þráð á þum-
alfingri undir þann næsta, utanum
liann og aftur til baka undir þann
sem er á þumli og nálþráðinn. Það er
ranga sem upp snýr.
Þegar saumaðir eru vettlingar er
byrjað á totunni. Er þá farið svipað
að og við hekl. Saumaðar eru nokkrar
lykkjur sem svara til breiddar hand-
ar. Þá er snúið við og saumað áfram
meðfram hinni hliðinni. Mynd IV.
Saumað er upp í lykkju fyrri umferð-
ar, síðan eins og áður er lýst, og þann
ig áfram hring eftir hring. Þurfi að
auka í er saumað tvisvar í sömu
lykkju. Þurfi að taka úr eru saum-
að í tvær lykkjur í einu. Þeir vettling-
ar sem hér eru sýndir voru mátaðir
um leið og saumað var, og aukið í
samkvæmt því. Annars virðist sá
háttur hafa verið hafður á, að sauma
41
L