Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1977, Síða 45

Hugur og hönd - 01.06.1977, Síða 45
•/ » / • 1 STFERÐ 41. vriRvíoD qn. MITTISVIOD "71 STfEP.Ð 2)9. VFÍRVIOD 8T i MÍTTÍSVIDD b5. Um £KKI CF £>,q flauelín * t » « 0 ð 0 0 0 0 0 4 • 4 0 % T -V lc*r> ■n m lOima f « k <? rr~ ■+ •»—’ • "w * * <— - sfakkpeysa (peysufatapeysa) Efni: 1,35 m svart klæði, 1,40 m á breidd. Fóður: 1,35 m svart. Flauel: 0,45 cm á barma og framan á ermar. Millifóður eða fliselin undir barma. Krókapör, svört. Sterkur tvinni. Sniðin tekin upp á þunnan pappír og löguð ef með þarf. Best er að sníða fyrst úr lérefti, sauma það saman og máta vel, og gera breytingar ef þarf. Ekki má peysan vera of síð í mittið, því pilsið dregur hana niður. Þá er ýfirborð og fóður sniðið. Saumför: 2—3-cm á baksaumum og öxlum, 1 cm í hálsmál, handvegi, barma og neðan á bol. Á ermunum eru saumför 1,5 cm á innanhandarsaumum, 2 cm á olnbogasaumum, 1 cm ofan á erm- um og fr^man. Brjóstsaumur og saumför merkt og þrædd miðlína á baki. Röngur á yfirborði og fóðri lagðar saman á bolnum og þrætt vel. Þá má ganga frá börmum að framan. Barm- ana má hafa beina og krækja þá sam- an alla leið, eða skera úr þeim og er þá notað hvítt stífað blúndubrjóst. Þá er byrjað á að sauma undirlistana við barmana. Sniðnir eru 2 listar í sama formi og flauelið, og úr sama efni og yfirborðið, saumför 0,6 cm á hliðum en 1 cm í hálsmál og neðan, fliselin sniðið eins en án saumfara á hliðum. Það lagt á röngu listanna. Listarnir lagðir á barmana með réttur saman og saumað við, saumfar á fóðri klippist alveg burt, en hin þynnt eftir þörfum, listarnir brotnir inn á röngu og þrætt vel í brún. Innri brúnir list- anna þræddar yfir flíselínið og niður á bolinn. Þá er stungið í brúnir barm- anna, og síðan með jöfnu millibili eða um 0,5 cm þannig að síðasta stungan festi innri brún listanna niður. Með þessu bera barmarnir sig betur undir flauelið og gott hald fyrir krókapörin. Krókarnir festir á hægri brúnina en lykkjurnar á móti í vinstri brún á réttu, með 2 cm millibili. Flauelið sniðið þannig að það sé sem dekkst þegar litið er niður á barma og ermar, saumför tæpur 1 cm sem er brotinn innaf sitt hvoru megin, flauelið lagt á barmana og þrætt vel niður og látið hylja stungur á börmum. Síðan jaðrað niður í höndum beggja vegna með sterkum tvinna. Brjóstsaumarnir þræddir úr í gegn- um bæði borð. Tilbúinn stakkurinn þræddur við bakið, milli yfirborðs og fóðurs, þá má þræða bolinn saman. Á ermunum eru innrihandarsaumar á yfirborði og fóðri saumaðir sitt í hvoru lagi, stroknir sundur, réttur á ermum lagðar saman og saumar látnir standast á. Tungurnar framan á erm- unum þræddar saman og saumaðar. Þá eru röngurnar lagðar saman og þrætt vel í brún framan á ermum og yfirborð og fóður þrætt saman. Flau- elið sett framan á ermarnar og er það gert á sama hátt og á barma. Þá eru olnbogasaumar saumaðir í gegnum bæði borð. Yfirermin rykkt gegnum bæði borð (sjá teikn.) áður en ermar eru saum- aðar þarf að máta þær vel. Ermarnar þræddar í handveg og treyjan mátuð. Fari allt vel eru brjóstsaumar saum- aðir en ekki alveg niður, skildir eftir 3—4 cm ósaumaðir neðst, saumarnir klipptir upp þannig að saumarnir gefi sig sundur neðst eftir þörfum. Hliðar- og axlasaumar saumaðir og pressaðir út. Áður hefur stakkur verið saum- aður við bak. Öll saumför minnkuð og jöfnuð eftir vild, síðan saumuð með skáspori (zig-zag) í brún. Þá eru ermar þræddar í aftur, fari þær vel eru þær saumaðar í treyjuna á milli rykkingaspora, síðan eru saumaförin jöfnuð og saumuð saman með ská- spori. Rykkingarþræðir á réttu dregn- ir úr. Hálsmálið jafnað og bryddað með skábandi sem klippt er úr fóðr- inu. Einnig er treyjan brydduð að neð- an, brjóstsaumar látnir gapa eins og þarf, og bryddingin látin vera heil alla leið að hliðarsaum. Brotið inn af endum bryddinganna og þeir jaðraðir saman. Treyjan er krækt eða hneppt við pilsið undir stakknum. Sé hneppt, er gerður tvöfaldur listi jafn langur stakknum og um 4 cm á breidd. Saumaður við fóðrið í höndum, gerð 3—4 hnappagöt, eða settar lykkjur, eftir því hvað á við pilsið. Stakkur. Ræma 7,5 cm á breidd er klippt eftir þræði þvert á efnið og um 1,30 m löng, þó fer það eftir breidd bakstykkis. Brúnina sem geng- ur niður á pilsið, má skásauma, með mjög fínum tvinna, en sé notað klæði eða efni sem ekki raknar úr, er ekk- ert gert við kantinn. Þá er að búa sér til máta, 1 cm á breidd og 10 cm á lengd, örþunnan, t.d. úr hörðu plasti. Hvítur kalkipappir er settur á röngu ræmunnar, þannig að hægt sé að strika þvert yfir ræmuna með 1 cm millibili, alla leið (sjá mynd 1). Einnig er gott að merkja upp miðju ræmunnar eftir lengdinni, til að styðj- ast við, þegar þrætt er, síðan mældir 2,5 cm sitt hvoru megin miðlínunnar og mcrkt eftir endilöngu. Byrjað er að þræða 2—3 cm frá enda ræmunn- ar, endinn festur vel og hafður sterk- ur þráður, því hann þarf að halda stakknum saman (sjá mynd 2). Tek- ið er jafn djúpt undir þvermerking- arnar eftir löngu línunum. Við þetta þarf mikla nákvæmni, svo stakkur- inn verði jafn og sléttur, þegar búið er að draga hann þétt saman og ganga síðan vel frá endunum. Síðan saurnað á röngu með lykkjuspori yfir þar sem þrætt var og tekið í hvert fall. Hliðar stakksins faldaðar í höndum. Stakkurinn tilbúinn 0,5 cm á þykkt. Svanhvít Friðriksdóttir.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.