Hugur og hönd - 01.06.1984, Blaðsíða 7
heklaður jakki á 4-5 ára
Efni: 300 gr. plötulopi (ljósblár frá
Gefjun) 200 gr. eingirni (hvítt frá
Gefjun).
Yi m straufrítt efni, 6 smellur (stórar),
6 tölur.
1 þr. lopi og 1 þr. eingirni undið
saman.
Heklunál: Nr. 6.
Mynstur: Lóðréttir og láréttir „relief“
stuðlar.
Mynd a: Ef heklað er frá réttu fram
fyrir og um stuðul,
Mynd b: Ef heklað er frá röngu aftur
fyrir og um stuðul, myndast á annarri
hlið lárétt lína en á hinni lóðrétt lína.
Bolur: Best er að teikna upp sniðið í
réttri stærð og hekla eftir því. Jakkinn
er allur heklaður í einu lagi. Byrjað er
á hægra framstykki og endað á vinstra
framstykki. Fitjaðar eru upp 37 loft-
lykkjur. 1. umf stuðlar en síðan er
byrjað á mynstri (mynd b).
Ermar: Heklaðar eftir sniði. Fitjaðar
eru upp 33 loftlykkjur. Ermin saumuð
saman, en 2 cm skildir eftir, þeir falla
inn í handveg.
Líning: Ermin er nú tekin saman við
úlnlið. Heklaðar eru loftlykkjur í aðra
hvora rönd. Síðan 4 hringir af
stuðlum.
Fóður: Ef fóðra á jakkann er best að
gera það áður en ermar eru settar í.
Efnið er lagt á, rétta á móti réttu, og
þrætt vel. Saumað með fram köntum í
saumavél, allan hringinn, en skilið
eftir op að neðan til þess að snúa jakk-
anum við. Klippið fóður til og snúið.
Passið að fara vel en gætilega út í horn
svo að ekki kipri.
Frágangur: Ermar saumaðar í.
Hálsmál og kantur að neðan. Loft-
lykkjur heklaðar í hverja rönd, síðan
4—5 umf stuðlar. Að lokum má styrkja
kanta að framan með einni umf af
föstum lykkjum (fm).
Saumið smellur og tölur á jakkann.
Adda og Inga
HUGUR OG HÖND
7