Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1984, Qupperneq 9

Hugur og hönd - 01.06.1984, Qupperneq 9
hekluð barnakápa á 6-7 ára Efni: Vi kg plötulopi (bleikur frá Gefjun) 300 gr eingirni (hvítt frá Gefjun) Vi m straufrítt efni, 8 stk. hnappar, 4 smellur. 1 þr. lopi og 1 þr. eingirni undið saman. Heklunál: Nr. 6. Mynstur: Sjá teikningu bls. 7. Bolur: Kápan er öll hekluð í einu lagi. Byrj að er á hægra framstykki og endað á vinstra framstykki. Fitjaðar upp 78 loftlykkjur. Byrjað í þriðju loftlykkju og gerðir 76 stuðlar. Lóðréttar línur eiga að vera í bolnum og pilsinu (mynd b) en öfugt inni í föllunum (mynd a). Fall. 4 lóðréttar línur eiga að myndast áður en fallið byrjar. Byrjað er á fall- inu neðst og heklað upp að berustykki 51 stuðul, snúið við og heklað niður eftir. Þegar 4 lóðréttar línur hafa myndast á röngunni er heklað upp fallið og pils og berustykki tengt saman. Smágat myndast ofan við hvert fall, en þeim skal lokað síðar. Efri hluti kápunnar er heklaður eftir teikningu. Víddin í pilsið kemur vegna hinna 15 falla í pilsinu, 4 á hvoru framstykki og7ábaki (sjáteikningu). Ermar: Heklað eftir teikningu. Fitj- aðar upp 44 loftlykkjur. Á miðri ermi á að vera fall, sem lokast við öxl (gert eins og á bolnum). Líning: Ermin saumuð saman, en 2 cm skildir eftir, þeir falla inn í handveg. Ermin er nú tekin saman við úlnlið. Heklaðar eru loftlykkjur í aðra hvora rönd, en á miðri ermi, þar sem fallið lokast er farið í lykkjuna sitt hvoru megin við það. Síðan eru heklaðir 4 hringir af stuðlum. Ermin saumuð í kápuna. Fóður: Ef efri hluti kápunnar á að vera fóðraður er best að gera það áður en kanturinn er heklaður við. Efnið er sniðið með góðu saumfari 2-3 cm, heilt í hliðum, saumur á öxlum. Réttan á efninu lögð á réttu kápunnar, þrætt vel og síðan saumað í saumavél að framan og kringum hálsmál. Snúið við. Lagt niður við í höndum að neðan og kringum handveg. Kantur: Heklað er upp hægra fram- stykki um hálsmál og niður vinstra framstykki. Heklaðar eru 4 umferðir. Til þess að hornin við hálsinn myndist fallega eru gerðir 3 stuðlar í bláhornin í öllum umferðunum. Frágangur: Saumaðar á stórar smellur undir barminn á efri hlutanum og hneppt með 4 hnöppum. 4 hnappar festast ofan á smellurnar. Adda og Inga

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.