Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1984, Síða 11

Hugur og hönd - 01.06.1984, Síða 11
unni. Karlmenn tóku prjónana með sér í gegningarnar og prjónuðu á göngunni milli útihúsa. Þegar fólk brá sér milli bæja tók það prjónana með sér til að nýta tímann og prjón- andi var það meðan það stóð við. Ef gest bar að garði til næturgistingar, var honum fengið verk að vinna, venjulega prjónar, því enginn kunni við sig iðjulaus. Prjónað var á kvöldvökunni, meðan húslestur var lesinn, og var j afnvel sá sem húslesíurinn las, prjónandi á meðan. Þannig voru flestar stundir notaðar til þess að prjóna, nema þegar Passíusálmarnir og guðspjallið var lesið, þær stundir héldu allir að sér höndum. Vinnufólkið þrælaði alla sína ævi fyrir aðra, en bar lítið sem ekkert úr býtum. Oft voru laun þess aðeins fæði og húsnæði. Þó fékk það borgað í nauðsynlegum ullarfatnaði. Margir höfðu eignast kind um vinnusama ævi eða nælt sér á einhvern hátt í ullarhnoðra. Á milli jóla og nýárs fengu hjúin að eiga vinnu sína og var sá tími oft notaður til að koma eigin ull í prjónles. Kom jafnvel fyrir að þetta prjónles var notað sem greiðsla inn á skemmtanir, svo sem hlutaveltur og leiksýn- ingar. Líf fólks, vinnufólks sem og annars var tilbreytingarlítið, því fátt var um skemmtanir. Því var stundum reynt að lífga upp á tilveruna, með því að gera tóvinnuna að skemmtun. Nú skipaði húsfreyja hjúum til verka. Hver vinnukona fjekk sinn kembara, stundum líka tvinnara. Hún sá honum aftur fyrir bandi eftir þörfum. Stundum vann parið með ástúð og hljóðri spekt; kemburnar silkigreið- ar, boðandi fríðleikskonu, bandið nóg og sljett, fögur fyrirmynd hjónabands. Hjá öðrum voru þær slitróttar og grettar, svo fussað var við konuefninu; komu þá hnökrar og bláþræðir á bandinu til svara, svo upp úr slitnaði. (í Eyjafirði fyrir 50-60 árum, 1925, bls. 81.) Margir leikir urðu til við tóvinnuna og skemmti fólk sér oft við þá. Þá var stundum „lagt saman band“ sem svo var kallað, en það var þannig að þeir sem tóku þátt í keppninni, og þeir gátu verið eins margir og verkast vildi, mældu svo eða svo marga faðma af bandi sem prj óna átti, og reyndu menn þá með sér hver fyrstur yrði til að ljúka við sitt af- mælda band og hvar í röðinni hver yrði, ef margir voru. Þótti þetta góð skemmtun og jók kapp og flýti. Þá var stundum „prjónað fyrir bæina“, sem kallað var. Var þá gengið á bæjarröðina. . . og náði sá bæ, sem lauk við prj ón, en vinningurinn var að ná í sem flesta bæi. Það var því fremur keppikefli unglinga að fá að prjóna, fremur en kemba eða spinna, tvinna eða þæfa, því að meira fjör og keppni gat verið við prjónana. (Snorri Sigfússon 1968, bls. 35-37.) HUGUR OG HÖND Börnin voru ekki undanskilin almennri vinnu. Á barn- mörgum heimilum voru þau dýrmætur vinnukraftur, og lærðu snemma að bera ábyrgð. Um leið og þau urðu rólfær voru þau sett við tóvinnuna. Fyrst þú ert komin á fjórða ár fara áttu að vinna. Það er að læra listir þrjár lesa, prjóna, spinna. (Gamall húsgangur) Vinnudagur þeirra var oft álíka langur og fullorðna fólks- ins og urðu þau að skila ákveðinni vinnu líkt og það. Þegar börnin voru orðin 8 ára urðu þau að skila vissu prjónles- magni eftir vikuna, venjulega tvennum sjóvettlingspörum, og síðan meiru eftir því sem þau eltust. Heimilin voru eini skólinn, og lærðu börnin, piltar jafnt sem stúlkur, vinnubrögðin af foreldrum sínum. í rökkrinu sátu mæðurnar með börnin og kenndu þeim að prjóna og spinna, og rauluðu með þeim vers og bænir. Þær vöndu börnin á vandvirkni við verkin. Þannig lærðist tóskapar- listin kynslóð fram af kynslóð. Börnin voru ekki gömul þegar þau lærðu að taka lykkjuna, eins og sést á hús- ganginum gamla hér að framan. Þessar löngu setur við prjónana hafa verið erfiðar fyrir svona ung börn. Hafa þau ekki átt ljúfar endurminningar frá fyrstu kynnum sínum af prjónunum. Frá Byggðasafni Vestmannaeyja. Prjónuð peningabudda með lás úr málmi. Hún á þessa sögu: Sumarið 1895 réru þeirsaman á litlu juli meðfæri Gísli Lárusson bóndi og gull- smiður í Stakkagerði og Gísli bóndi Eyjólfsson á Búastöðum. Dag einn stóðu þeir í örum fiski sunnan við Súlnaskersklakk. Einn þorskurinn œldi upp þessari buddu, er honum var bylt innfyrir borðstokkinn. Um og eftir aldamót sáust Englendingar hér oft með buddur afþessari gerð. Gefendur: Systkinin Eyjólfur og Lovísa, börn Gísla Eyjólfssonar.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.