Hugur og hönd - 01.06.1984, Page 15
misstór, 3-6 nemendur búa saman. í herbergjunum eru
rúmstæði með dýnum, borð og fataskápur, búnaður í lág-
marki, enda ekki ætlast til að herbergin séu annað en svefn-
staður.
Fljótlega hitta nýkomnu stúlkurnar nemendur eldri
deildar. Þær búa í tveimur herbergjum á efsta lofti skólans,
Þingeyrum og Þykkvabæ, og hafa verið í skólanum síðan
um miðjan september. Þær eru heimavanar og hafa efni á
að vera dálítið drjúgar með sig, en góð kynni takast fljótt.
Skólinn er settur fyrsta vetrardag. Það er hátíðleg athöfn.
Nemendur og annað heimilisfólk klæðist sparifötum og
safnast saman í skólastofunni. Forstöðukonan setur skól-
ann með ræðu og kynnir nemendum skólareglur, skipar
umsjónarmenn á herbergjum og í skólastofu, einnig
„hringjara“. Að síðustu er sunginn sálmur. Á eftir er sam-
eiginleg kaffidrykkja í Höllinni. Nú er vetrarstarfið hafið og
allt fellur í fastar skorður.
Skólabjallan í anddyrinu hringir kl. hálf átta hvern virkan
dag, þá er mál að vakna. Kl. 8 eru allir mættir í Höllinni og
vinnudagur hefst með því að sunginn er morgunsálmur.
Næsta klukkutímann er yngri deild að ræsta skólann, eldri
deild í bóklegum tíma, en kl. 9 koma allir í borðstofu og
snæða morgunverð, hafragraut, mjólk, slátur og lýsi. Hið
síðast talda nýtur ekki almennra vinsælda þó flestir láti sig
hafa það að gleypa skammtinn! Að morgunverði loknum
fer yngri deild í skólastofu og situr í þremur bóklegum
tímum fyrir hádegi. Þaðan heyrist oft hressilegur söngur því
frú Blöndal byrjar ævinlega fyrstu kennslustund að morgni
með því að láta syngja ættjarðarljóð. Hún er með af-
brigðum lagviss, hefur góða söngrödd og fær alla til að vera
með. Eldri deild skiptir sér, sumar fara til náms og starfa í
eldhúsi, en aðrar til „baðstofu“, þar sem vefstólarnir bíða
vinnufúsra handa. Eftir hádegisverð, sem eldri deild fram-
reiðir undir leiðsögn matreiðslukennarans, skiptist hópur-
inn þannig í stórum dráttum að eldri deild fer ýmist í bók-
lega tíma, handavinnu eða vefnað, hluti yngri deildar fer í
vefnað, en hinar í saumaskap og hannyrðir. Sú kennsla fer
fram í Höllinni, því ekki er sérstök stofa fyrir þær náms-
greinar. Nú er unnið af kappi til kl. 4, þá er kaffitími og úti-
vist í eina klukkustund. Áhersla er lögð á að nemendur ræki
útivistartímann og láti ekki veður aftra sér. „Gangið hratt
og komið blóðinu á hreyfingu!“ er frú Blöndal vön að segja.
Eftir útivist heldur vinnudagur áfram til kl. 7 en þá er
kvöldverður. í tímanum milli 6 og 7 heldur frú Blöndal oft
fyrirlestur fyrir báðar deildir. Kl. 8 fara nemendur beggja
deilda til skólastofu, lesa námsgreinar og búa sig undir
næsta dag. Þrjú kvöld vikunnar er þessi undirbúningstími í
styttra lagi, því þá hefst kvöldvaka kl. hálf níu. Logar þá
eldur á arni í Höllinni. Nemendur og kennarar sitja við
handavinnu, en forstöðukona eða einhver kennari les
upphátt. Lesnar eru valdar bókmenntir. Nemendur kynn-
ast hér - margir í fyrsta sinn, ritverkum Halldórs Laxness,
Gunnars Gunnarssonar og fleiri íslenskra öndvegishöf-
unda, einnig þýðingum á verkum erlendra stórskálda. Það
er vel hlustað, og líka vel unnið. Hér er gamla íslenska
kvöldvakan tekin fram yfir það sem útvarpið býður upp á,
enda heyrist útvarp fremur illa á Austurlandi á þessum
tíma. Á miðvikudagskvöldum er kaffi og kökur í vökulok.
Kl. 10 er sunginn sálmur og síðan gengið til náða. Allt á að
vera orðið hljótt og slökkt á herbergjum kl. 11.
Hér er vinnuvikan 6 dagar og hvergi slakað á. Á sunnu-
dagsmorgnum skal mætt til morgunverðar kl. 9. Þá er á
borðum, kakó, brauð, álegg og glóðvolgar bollur beint úr
ofninum. Kl. 11 er hlustað á útvarpsmessu, en eftir það er
dagurinn frjáls. Þó skulu allir mæta við máltíðir. Á sunnu-
dagskvöldum sér til þess kjörin nefnd um einhver skemmti-
atriði, stundum safnast allir saman í Höllinni og frú Blöndal
segir frá einhverju sem á daga hefur drifið í ferðalögum eða
námi, erlendis eða heima. Hún er framúrskarandi vel máli
farin, gæðir frásögnina lífi og heldur athygli áheyrenda. í
lokin er alltaf borið fram eitthvert góðgæti sem matreiðslu-
nemar hafa spreytt sig á að búa til.
Hér hefur verið stiklað á stóru um daglega hætti. Þó allt
sé yfir höfuð í föstum skorðum er lífið alls ekki tilbreyting-
arlaust. Hjá ungu og glöðu fólki er alltaf eitthvað að gerast.
Hér skapast kynni, sem oft þróast í ævilanga vináttu. Verk-
efnin eru margvísleg og vinnudagurinn langur. Það eru
stundum þreyttar stúlkur, sem ganga upp stigann kl. 10 á
kvöldin. Þegar þvottur er þveginn fara þvottakonur -
venjulega tvær - á fætur kl. 4, kveikja undir þvottapotti og
hita vatn. Síðan er þvegið á bretti, soðið og skolað. Vél-
menningin hefur enn ekki haldið innreið sína. Kannski þess
vegna verða þessir dagar, þó erfiðir væru, eftirminnilegir og
góðir í minningunni. Einu sinni í mánuði er vegleg afmælis-
veisla til heiðurs þeim sem hafa átt afmæli í mánuðinum.
Oft er farið í langar gönguferðir út í skóg, þar eru sumir
staðir heimsóttir ár eftir ár, t. d. Hólatjörn, en þangað rata
aðeins fáir útvaldir! Skautafólk rennir sér á Kliftjörn í úti-
vistinni, og stundum er Lagarfljót á haldi og heillar. Á laug-
ardagskvöldum er oft dansað í skólastofunni þó herrana
vanti, en 1. des. og 14. mars eru ævinlega samkomur opnar
þeim sem koma vilja. Þær eru reglulegt tilhlökkunarefni.
Venjulega flytur frú Blöndal ræðu, en stúlkur annast önnur
skemmtiatriði s. s. upplestur, söng, leikþætti o. fl. Síðan er
dansað í skólastofunni af miklu fjöri. Fjórða hvert ár er
þorrablót Vallamanna haldið í skólanum og venjulega er
kennurum og nemendum boðið þegar þau eru haldin ann-
ars staðar.
Eins og fyrr er drepið á hafði Húsmæðraskólinn á Hall-
ormsstað þá sérstöðu meðal annarra kvennaskóla á íslandi,
að vera tveggj a vetra skóli. Af því leiddi að hægt var að ætla
bóknámi mun meiri tíma en ella hefði orðið. Bóklegar
námsgreinar á því tímabili er hér hefur verið sagt frá voru:
íslenska, (málfræði, setningafræði, íslenskar bókmenntir,
HUGUR OG HÖND
15