Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1984, Qupperneq 23

Hugur og hönd - 01.06.1984, Qupperneq 23
sjötíu ára tiglateppi Teppið er saumað árið 1911 og var þá höfundur þess um áttrætt. Var það Amalia Thorsteinsson, f. Löve, dönsk að ætt og uppruna. Hún var gift ís- lenskum kaupmanni, Þorsteini Thor- steinsson, en hann fórst með kaup- skipi árið 1888. - Amalia bjó til mikið af dúkum og teppum sem hún seldi. Saumaði hún gjarnan eftir pöntun. í dúkana og teppin notaði hún silki- efni, raunar afganga og afklippur sem féllu til í slifsissaumastofu sem mágur hennar, Lund, rak í Danmörku. Tigl- ana klippti hún út úr gömlum spilum sem hún fékk hjá tengdasyni sínum Nicolai Bjarnason kaupmanni, en síð- ustu árin var hún búsett hjá honum og dóttur sinni Önnu í Suðurgötu 5. Nic- olai var mikill spilamaður og voru spilin keypt inn í heilum kössum til heimilisins. Þegar búið var að klippa tiglana var silkið saumað utan um þá, þeim raðað saman í mynstur, sem þó var stundum búið að draga upp á blað áður, tigl- arnir voru síðan saumaðir saman, spilin tekin innan úr og vatt eða ullar- lagður látinn í staðinn. Loks var teppið fóðrað. Allt var þetta gert í höndunum. Dúkarnir voru búnir til á sama hátt en þeir voru ekki vatteraðir. í veggteppinu eru 459 púðar en í dúknum 108 stk. Teppið og dúkurinn er nú í eigu Ásu Atladóttur en hún er dótturdóttir heimildarmanns okkar, Gunnars Bjarnason, sem var dóttursonur Am- aliu Thorsteinsson. Hann er nú bú- settur í Mosfellssveit, 83 j a ára gamall. A. Bj. HUGUR OG HÖND 23

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.