Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1984, Side 26

Hugur og hönd - 01.06.1984, Side 26
1. mynd. Altarisklœði frá Draflastöðum íFnjóskadal. Fráfyrrihluta, líklega öðrumfjórðungi, 16. aldar. Refilsaumur. Ullarbandoglíngarn íhör- léreft. Stœrð 109 X 117 cm. Þjms. 3924. Ljósmynd: Anna Fjóla Gísladóttir. fjórar íslenskar útsaumsgerðir Refilsaumur Athyglisverðasta íslenska saumgerðin er tvímælalaust refilsaumur, útsaumur eftir frjálsum áteiknuðum munstrum, sem þekktastur er af altarisklæðum frá síðmið- öldum. Saumur þessi þekkist þó einnig víðar, til dæmis er hinn frægi Bayeux-refill í Frakklandi frá seinni hluta 11. aldar unninn með þessum hætti og úr hliðstæðu efni. Alls hafa varðveist fjórtán útsaumsverk unnin að mestu með refilsaumi. Af þeim eru tíu altarisklæði, en hin altar- isbrún, hökulkross, andlitsmynd og veggtjald, eða öllu heldur leifar af veggtjaldi, efalítið svonefndum refli, nú í fjórum pörtum. Fimm altarisklæðanna og tveir stærri hlutar refilsins eru í söfnum erlendis, en hin refilsaumsverkin eru í Þjóðminjasafni íslands. Klæði þessi verða ekki tímasett svo óyggjandi sé nema eitt, hökulkrossinn, sem ber ártalið 1677, en ætla má að þau spanni tímabilið frá seinni hluta 14. 26 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.