Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1984, Page 27

Hugur og hönd - 01.06.1984, Page 27
aldar hið elsta og fram að því ári. Að reflinum og andlits- myndinni frátöldum, eru refilsaumsklæðin með helgimynd- um, og eru á þremur raunar raktir atburðir úr ævum helgra manna. Á sýningu Heimilisiðnaðarfélags íslands í Tromsö í Nor- egi sumarið 1980, þar sem áhersla var lögð á að kynna ref- ilsaum og augnsaum, var ljósmynd í eðlilegri stærð og litum af refilsaumuðu altarisklæði frá Draflastöðum í Fnjóskadal (1. mynd), en klæðið er varðveitt í Þjóðminjasafni íslands. Klæðið ma tímasetja til 2. fjórðungs 16. aldar, meðal annars vegna þess að trérista prentuð í París 1519 í bænabók sem notuð var hér á landi, mun hafa verið höfð sem fyrirmynd, beint eða óbeint, að miðmynd klæðisins: Maríu mey með Jesúbarnið í hásæti milli tveggja engla. Vera kann að klæðið hafi verið unnið af eða undir hand- leiðslu Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns biskups Ara- sonar, og að tilefnið hafi verið vígsla Jóns biskups á nýrri kirkjubyggingu á Draflastöðum 1538. Á klæðinu eru að öðru leyti myndir ýmissa dýrlinga. Það er úr hvítleitu hör- lérefti, allt þakið útsaumi. Fletir, stórir og smáir, eru saum- aðir með refilsaumi, en útlínur að mestu með steypilykkju. Útsaumsgarnið er að langmestu leyti íslenskt ullarband, og má greina af því níu liti, en auk þess hefur língarn, hvítt og á stöku stað blátt, verið notað. í refilsaumsverkum eru aðalútlínur ávallt saumaðar fyrst, ýmist með varplegg, lögðum þræði, blómstursaums- spori eða steypilykkju (8. mynd 1-4). Refilsaumurinn sjálfur, sem fyllir út fleti munstursins eða grunnsins, eða, sem oftast er, bæði munsturs og grunns, er þannig unninn að saumuð eru undirspor, oft úr grófgerðu garni (8. mynd 5). Síðan eru löng yfirspor, venjulega úr fíngerðara garni, saumuð þvert yfir undirsporin með nokkru millibili og þau saumuð niður, oftast eftir hvert spor, með litlum, mis- þéttum þversporum (8. mynd 6). í lokin eru saumaðar aukaútlínur eða útlínur til frekari áherslu, þar sem um þær er að ræða. Stærsta refilsaumaða altarisklæðið sem varðveist hefur var fyrir altari dómkirkjunnar á Hólum í Hjaltadal þar til það var sent Þjóðminjasafni íslands árið 1897 (2. mynd). Eins og fram kemur í latneskri áletrun efst á klæðinu eru á því myndir af íslensku dýrlingunum þremur úr kaþólskum sið, Hólabiskupunum Guðmundi góða Arasyni og Jóni helga Ögmundssyni, og Skálholtsbiskupi Þorláki helga Þór- hallssyni, og enn fremur af tveimur englum er sveifla reyk- elsiskerum. Klæðið er úr hvítleitu hörlérefti og saumað í það með svipuðu ullarbandi og língarni í líkum litum og í klæðið frá Draflastöðum. Auk þess hefur gyllt málmgarn verið notað í áhersluútlínur. Eru þær lagðar, en aðrar út- línur eru saumaðar með varplegg. Altarisklæðið frá Hólum mun, eins og Draflastaðaklæðið, vera frá öðrum fjórðungi 16. aldar og trúlega frá sama stað, jafnvel frá sömu hendi. Andlitsmyndin sem fyrr var nefnd og vera mun frá um 1650, er af Þorláki Skúlasyni Hólabiskupi, og eiga Elín dóttir hans og ensk kennslukona hennar að hafa saumað hana (sjá mynd á bls. 7 í Hugur og hönd 1972). Hún er unnin með ullarbandi og svolitlu af silkigarni og málmgarni í hvítt hörléreft með refilsaumi að verulegu leyti, þótt aðrar saumgerðir hafi verið hafðar með. Má heita að andlitsmynd þessi sé einsdæmi í gömlum íslenskum útsaumi, en ytra, einkum á Bretlandseyjum, tíðkaðist þó nokkuð að sauma mannamyndir á 17. öld. Eins og fyrr er getið er yngsta hefðbundna refilsaums- verkið, sem varðveist hefur, hökulkross merktur ártalinu 1677. Eftir það og fram á fyrri hluta 20. aldarinnar er ekki að sjá að saumgerð þessi hafi verið notuð hér á landi. Á ár- unum 1920 til 1930 eða þar um bil var saumgerðin tekin upp að nýju, en þó í nokkuð breyttri mynd. Munstrin sem þá voru notuð voru með böndum og brugðningum og undir- þræðir refilsaumsins látnir fylgja brugðningunum eftir. Þá hafði einnig gamla heiti saumgerðarinnar glatast, eða öllu heldur færst yfir á aðra saumgerð, en saumnum verið gefið nýtt nafn, forníslenskur saumur. Síðan kom upprunalega merking orðsins refilsaumur í ljós og birtist á prenti 1941. Útsaumsverk með forníslenskum saumi af ofannefndri gerð munu flest vera frá árunum 1930 til 1940 að því er næst verður komist. Glitsaumur Rúmtjöld, eða rekkjureflar eins og þeir eru nú oftast nefndir, unnir með þræddum saumi í hvítt hörléreft. ein- kenna mjög íslenskar hannyrðir eftir siðaskiptin, nánar til tekið frá 17. og 18. öld (3. mynd). í Þjóðminjasafni íslands eru varðveittir þrettán slíkir reflar og hlutar af tveimur, en vitað er um sex í söfnum erlendis. Sautján reflanna, ásamt einu altarisklæði frá líkum tíma, eru aðallega með þeirri gerð saumsins sem nú er nefnd glitsaumur, en henni bregður einnig fyrir sem aukaspori á tveimur altarisklæðum frá síðmiðöldum. Þess má geta að til er önnur-og sennilega eldri - gerð af þræddum saumi, sem einnig var nefndur glit- saumur, en þó stundum skakkaglit til aðgreiningar. Verða henni ekki gerð skil hér. Glitsaumur- er unninn eftir reitamunstrum meðal annars þannig að fyrir hvern munsturreit eru þrædd fjögur sam- hliða spor fram og aftur yfir fjóra þræði í grunnefninu (8. mynd 7). Hann er þó einnig saumaður með þrennu móti öðru, þannig að þrædd eru fjögur spor yfir þrjá þræði, þrjú spor yfir fjóra þræði og þrjú spor yfir þrjá þræði fyrir hvern munsturreit. Getur lögun munsturreitanna því orðið talsvert mismunandi, en hún fer að sjálfsögðu einnig eftir því hvort grunnefnið er jafnþráða eða misþráða. Ávallt er einn þráður efnisins hafður milli sporaraða og einn þráður milli spora í hverjum reit. Glitsaumuðu rekkjureflarnir eru um 50 til 85 cm á breidd og 3,5 til 4 m að lengd. Eru munstrin á þeim oftast nær raðir HUGUR OG HÖND 27

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.