Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1984, Side 28

Hugur og hönd - 01.06.1984, Side 28
3. mynd. Rúmtjald (rekkjurefill) gefið Pjóðminjasafni íslands 1864 af Björgu Guttormsdóttur frá Hofi, prestsekkju í Húsavík. Frá 18. öld. Áletr- unin, öll spegluð, er vers úr kvöldsálmi frá 17. öld. Glitsaumur. Ullarband í hörléreft. Stœrð 75 x 145 cm. Þjms. 161. Ljósmynd: Myndiðn. af kringlóttum eða marghyrndum reitum með ýmiss konar blómamyndum ásamt fuglum, biblíumyndum og myndum af mönnum og dýrum, en ofan og neðan við reitina eru ein- att leturbekkir með kvöldversum.Dæmi um uppdrátt með biblíumyndum er meðal annars að finna á hluta af refli frá 17. öld er síðast var hafður fyrir altarisklæði í bænhúsi að Gröf í Þorskafirði (4. mynd). Má þar sjá myndir af upprisu og uppstigningu Krists og komu heilags anda yfir postulana. Á einum myndrænasta rekkjureflinum, sem talinn er vera frá 18. öld og kominn úr búi Jóns sýslumanns Espólín, eru níu hringreitir með myndum bæði af mönnum og dýrum, meðal þeirra tveir hermenn eða veiðimenn á hestbaki. Með áletruninni undir öðrum þeirra, TIRPINN BISKUP, mun vera átt við einn af köppum Karlamagnúsar. Gamli krosssaumurinn Rúmábreiður með gamla krosssaumnum eða fléttusaumi eru einnig sérkennandi fyrir íslensk útsaumsverk eftir siðaskiptin, nánar til tekið frá 17. og fram á öndverða 19. öld. Þá var saumgerð þessi einnig notuð við gerð annarra klæða, kirkjulegra og veraldlegra, og finnst raunar þegar, þótt í litlum mæli sé, á fáeinum kirkjuklæðum frá síðmið- öldum. Fyrrum var saumur þessi eingöngu nefndur kross- saumur og fól heitið þá j afnframt í sér krosssaum sem við nú nefnum svo - sem raunar vart sést í íslenskum útsaumi eldri en frá 19. öld - en heitin gamli krosssaumur og fléttusaumur um saumgerðina munu fyrst hafa komið fram á fyrri hluta 20. aldar til aðgreiningar frá hinni. Gamli krosssaumurinn er unninn eftir reitamunstri. Er 2. mynd. Altarisklœði úr dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal. Fráfyrri hluta, líklega öðrum fjórðungi, 16. aldar. Refilsaumur. Ullarband og lín- og málmgarn í hörléreft. Stœrð 99 X 183 cm. Þjms. 4380 b. Ljósmynd: Gísli Gestsson. í|/ i ■ 'ÍC’ jÍiiiill&S lýsÉÉ-p*

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.