Hugur og hönd - 01.06.1984, Síða 48
barnakjóll
Stærð: 9-12 (18) mánaða.
Efni: RIKKE bómullargarn, (fáanlegt
hjá íslenskum heimilisiðnaði) 3 hn óbl
nr 17, 1 hn hvítt, 4 tölur eða hnappar.
55 (60) cm mjó sívöl teygja.
Prjónar: Bandprjónar nr. 3 Vi, 60 cm
hringprjónn nr. 3 Vi, heklunál nr. 2 Vi.
Þensla: 11 L og 20 pr garðaprjón - 5 x
5 cm. 12 L og 15 umf slétt prjón -5x5
cm.
Hnökrar: Prj í sömu L með hvítu, 1 sl,
brugðið um pr, 1 sl, br um pr, 1 sl (5 L
alls), snúið við og prj til baka með
hvítu 5 L sl, snúið við, færið 4 hvítu L
yfir á hægri pr, prj með grunnlit í 5. L
steypið síðan 4 hvítu L yfir hana.
Gætið þess að hvíta bandið liggi laust á
röngu milli hnökranna. Slítið hvíta
bandið frá eftir hverja umf, þar sem
hnökrarnir eru alltaf prj frá réttu.
Músatakkar: x 4 L fastahekl, 3 loft-
lykkjur, 1 fastal í fyrstu loftlykkju x,
endurtakið x-x.
Blússa: Byrjað er framan á vinstri
ermi. Fitjið upp á bandprjóna með lit
nr 17, 40 (50) L. Prj garðaprjón eftir
meðfylgjandi munstri. Hnökrar eru
eingöngu á framstykki. Prj að háls-
máli. Þá er bak- og framstykki prj
hvort í sínu lagi. Fellt af í vinstri hlið
hálsmáls, fitjaðar upp nýjar L í hægri
hlið. Byrjið á framst. Geymið L af
bakst. Prj vinstra bakst, fellið af. Fitjið
upp 36 (41) L og prj 3 garða. Pá eru
gerð 4 hnappagöt. Það efsta er 2 L frá
hálsmálsbrún. Fellið af 2 L, prj 7 (8) L
á milli hnappagata. Á næsta pr eru fitj-
aðar upp 2 nýjar L þar sem fellt var af.
Þegar hálsmáli lýkur er bak og framst
sameinað og prj áfram eftir munstri.
Fellt af. Saumið blússuna saman undir
höndum. Saumað er frá réttu og tekið
í borðin til skiptis, í ystu L hvers garðs.
Pils: Prj upp á hringpr L neðan á
blússu, byrjið í vinstri hlið. Prj frá
réttu, farið í hvern garð og sl L á milli.
Þegar kemur að útáhneppu á baki er
hægra stykkið látið ganga yfir 6 garða á
því vinstra og L prj upp gegnum bæði
stykkin í einu. Eiga nú að vera á pr u.
þ. b. 214 (222) L. Prj sl í hring 16 (20)
cm. Prj hvítan garð, þ. e. 1 umf sl, 1
umf br, síðan 5 umf grunnlit. Endur-
takið það þrisvar sinnum (4 sinnum
alls). Fellið af.
Frágangur: Heklið músatakka neðan á
pils, framan á ermar og í hálsmál.
Heklað er í hverja L á ermum og pilsi,
en hvern garð í hálsmáli. Gangið frá
endum, saumið í tölur og þræðið
teygjuna neðan í brún blússu á röngu.
Pressið létt yfir pilsið á kjólnum. Gott
ráð er að geyma afganginn af garninu
og prjóna neðan við kjólinn, þegar
hann verður orðinn of stuttur. Á þessu
sniði gerir ekkert til þó ermarnar
styttist.
H. T.