Hugur og hönd - 01.06.1984, Síða 50
munkahetta
Efni: U. þ. b. 60-70 gr. af plötulopa,
40-50 gr. eingirni, undið saman.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 5 Vi.
Prjón: Garðaprjón.
Þensla: 13 L = 10 cm.
Hettan er prjónuð með ámælingu, þ.
e. að 5. og 6. hv pr eru ekki prj út umf.
Við það verður hún ekki eins fyrirferð-
armikil undir hökunni. 6. hv pr er með
lengdum lykkjum. Er það gert með
því að bregða bandinu tvisvar um pr,
þegar prj er úr L lengjast þær.
Fitjið laust upp 78 L. Prj eftir með-
fylgjandi rúðumunstri. Fellið laust af.
Jaðrið hettuna saman frá réttu, með
eingirni. Takið í hvern garð. Þvoið
hettuna, vindið upp úr mýkiefni og
leggið slétta til þerris.
H.T.
skáprjónuð peysa
Efni: Sauðsvartur plötulopi 400 gr.
Grár plötulopi 300 gr.
Priónar: Nr. 6.
Þensla: 22 umf x 12 1 = 10 x 10 cm.
Munstur: Frá réttu séð, 7 prjónar slétt,
1 brugðinn, 1 sléttur, 1 brugðinn.
Endurtekið.
Stcerð: 44-46.
Prjónuð eru tvö stykki gagnstæð úr
einum þætti af hvorum lit. Fitjaðar
upp 2 lykkjur. Aukið er út í hverri um-
ferð innan við síðustu lykkju á prjóni.
Hætt er að auka út í annarri hliðinni
eftir 9 munsturrendur til að mynda
hálsmál að framan (sjá teikn.). Fullri
breidd er náð eftir 11 rendur. Rauf
fyrir handveg byrjar eftir 12 rendur.
Úr því er fram og afturhluti prj hvor
fyrir sig. Stykkin eru saumuð saman
þannig að rendur standast á og mynda
odda, líka á öxlum. Prjónaður er renn-
ingur úr sauðsvörtum lopa í hálsmál.
Prjónaðar upp 20 1 við aðra brún V-
hálsmáls að framan, prj 1 sl 1 br í 100
umf. Saumað við hina brún V-
hálsmáls. Kragi saumaður við
hálsmál. Neðan á peysunni eru teknar
upp 1201 með sauðsvörtum lopa og prj
10 umf 1 sl 1 br. Fellt af með garðaaf-
fellingu. Ermar eru hér prjónaðar á
ská eins og peysan, en þar sem hand-
vegur er svona víður er nauðsynlegt að
ermar þrengist fram. Fylgir hér
rúðumunstur af erminni. Hin ermin
prjónuð gagnstætt. Þegar ermar eru
saumaðar í eru rendur á ermi látnar
standast á við rendur á bol. Að síðustu
er prjónaður brugðningur framan á
ermar. Teknar upp 321 prj 1 br 1 sl í 10
umf. Peysan þvegin, lögð slétt til
þerris. Auðvelt er að stækka eða
minnka þessa uppskrift þar sem hvort
stykki er ferningur. Aðeins tekið af
horninu fyrir hálsmál. Handvegur á
miðju, en nær einni rönd skemur en
inn að miðju. Sjá teikningu.
Hin peysan er enn einfaldari.
Saumuð saman úr tveimur beinum
ferningum. Hálsmál beint. Ermar
sléttprjónaðar í hring frá öxl og fram.
V. P.
50
HUGUR OG HÖND