Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Blaðsíða 8

Hugur og hönd - 01.06.1994, Blaðsíða 8
gersemi var nú kölluð „drusla“ blygð- unarlaust. Og þá var úr vöndu að ráða: ullar- kembingin hinn mesti flöskuháls í framleiðslunni og yfirvofandi verkfall í spuna- og flókagerðardeildinni. Þróun- arverkefnið okkar var greinilega með mikla vaxtarverki og sýndi öll einkenni vaxandi íyrirtækis með aukna afkasta- getu. Undirritaðri varð ljóst að leysa þyrfti málin til lengri tíma og finna kembivél sem ekki myndi „springa“ strax í fyrirtækinu. Og á ný var gruflað, spáð og spekúlerað. Hringt og skrifað um allan heim, sendar ullarprufur í til- raunavinnslu hér og þar og reynt að leggja mat á möguleikana. Margir voru til í að selja okkur kembivél en í ljósi reynslunnar vorum við varkárar og vandlátar. Óskavélin átti að endast okkur lengi, henta fyrir ís- lenska ull og vera hönnuð með smáiðn- að og handvinnslu í huga. I allri þessari leit rákumst við á kanadískan vélaframleiðanda, Patrick Green, sem hefur getið sér gott orð sem hönnuður og smiður ullarvinnslutækja ýmiskonar. Okkur leist strax vel á til- raunakembur úr íslensku ullinni okkar frá honum og ákveðið var að hann væri rétti maðurinn til að smíða „vélina okk- ar“. Eftir mikil bréfaskrif og tilrauna- vinnslu ullar töldum við loks að okkur væri óhætt að leita eftir fjármagni til vélakaupanna. Styrkumsóknir voru skrifaðar og að nokkrum mánuðum liðnum sáum við að okkur myndi vera óhætt að leggja inn pöntun fyrir vélina (haustið 1992). Framleiðnisjóður landbúnaðarins, At- vinnuþróunarsjóður Suðurlands, Jó- hönnusjóður Félagsmálaráðuneytis og Þingborgarhópurinn lögðu fram fé til kaupanna og vélin kom síðan fullsmíð- uð til landsins um það bil ári eftir að hún var pöntuð (haustið 1993). Leitað var á náðir Hraungerðishrepps varðandi húsnæði fyrir dýrgripinn og úr varð að bókasafn hreppsins var flutt úr gamla Þingborgarhúsinu og vélinni út- hlutað því plássi sem það áður hafði haft. Gluggi var tekinn úr á efri hæð hússins og vélinni komið inn á ævin- týralegan hátt, öllum köllum sveitarinn- ar smalað saman til verksins, sem gekk vel og var tækið komið í hús fyrir jólin 1993. Og þá var kátt í höllinni, kembivélin til þjónustu reiðubúin og brúnin heldur létt á spuna- og flókagerðarkonum og jafnvel talað um að færa út kvíarnar og þjónusta annað ullarvinnslufólk. I vélinni er hægt að kemba jafnt til flókagerðar eða spuna, blanda saman hráefni og litum og gera nánast allt sem hugurinn girnist. Flókagerðarkemburn- ar eru u.þ.b. 50 cm breiðar en spuna- Fyrsta vinnslustig efiirpvott er að tœta ullina iþessum tœtara. A myndinni er Halldóra Óskarsdóttir Þingborgarkona. Efiirþvott og tœtingu fer ullin í kembingu. Helga Thoroddsen setur ull á faribandið. 8

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.